Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.5. 2020 Elsku Fiskurinn minn, það er svo ótrúlegt að sjá það hvað lífið getur gefið manni mörg kraftaverk. Og það gerist oft akkúrat á þeirri stundu sem maður býst ekki við því, en það er nefnilega sá tími sem þú ert að synda inn í núna. Það er svo mikill vilji í þér að framkvæma, breyta og bæta. Og þótt þú segir sjálfum þér jafn- vel aftur og aftur að núna sé ekki rétti tíminn, þá er það gjörsamlega ekki satt því allt er að breytast í höndunum á þér og verða betra. Það verður svo mikið að gera hjá þér að þú annar ekki eftirspurn. Allur sá kvíði sem þú hafð- ir fyrir þessum tíma og sumrinu er í raun og veru spenna sem gefur þér kraft til afkasta svo miklu meira en þú bjóst við. Þú lagar til í kringum þig, slakar á í huganum og eflir hreysti þína. Ég dró fyrir þig tvö spil og annað spilið sýnir þig eins og að koma út úr lirfu og verða að fiðr- ildi. Þetta tengir það að þú verðir ánægður með líkama og útlit og hefur aðdáendur allt í kring- um þig. Hitt spilið sem ég dró sýnir eins og máttuga orku eða anda sem heldur uppi himnunum fyrir þig. Þetta táknar að þú hafir sérstaka vernd sem fylgir þér svo þú getir farið óhindrað í þá átt sem þú velur. Þér leiðist nefnilega svo sannarlega að hjakka í sömu hjólförunum þótt þú finnir öryggi í því. En bæði skynsemi og áræði verður alveg í réttum skömmtum og það fer þér svo vel. Þú ert svo sannarlega heppinn í ástum, en ef þú nennir ekki ástinni er það líka allt í lagi því þú ert svo dásamlega heppinn að fá að hanga með þér. Vertu duglegur í að jarðtengja þig og faðma móður jörð, vera úti í náttúrunni og elska, í því er mátturinn fólginn. Afköst í annatíð FISKARNIR | 19. FEBRÚAR – 20. MARS Elsku Hrúturinn minn, það hefur verið alls kyns ókyrrð í kringum þig og þú þarft að passa þig að láta ekki utanaðkomandi persónur hafa áhrif á þína líðan. Það hefur svo margt og mikið verið að gerast undanfarinn mánuð. Margt af því mun hjálpa þér að ná betra jafnvægi og tök- um á því sem þú vilt að gerist. Sá tími sem þú ert að fara inn í núna kemur með svör við svo mörgu. Þetta lætur þig sjá heildarmyndina, hvað skiptir máli og hvað er algjörlega aukaatriði. Þetta er svo góður tími fyrir þig til að semja um allt mögulegt, breyta í orkunni þinni í vellíðan. Þú ert að fara inn í svo hamingjuríkt tímabil sem sýnir þér ástina og þú lærir svo sannarlega vel að meta það sem þú hefur og það sem þú færð. Til þess að efla ástina þarftu einungis að gefa skilyrðis- laust, vera auðmjúkur og þá dettur allt í rétta gírinn. Þótt þér finnist þú hafa verið vanmáttugur í mörgu, þá er það bara þín eigin skoðun því núna muntu nota þetta tímabil svo sterkt til að byggja þig upp. Það kemur yfir þig ólýsanleg ró sem þú nærð að nota til að styrkja þig og hjálpa öðrum. Þú átt eftir og ert jafnvel búinn að hafa samband við þær manneskjur sem hafa einhvern tímann gert þér lífið leitt, því núna ertu tilbúinn til að fyrirgefa, gleyma og laga þær aðstæður sem hafa orð- ið í lífi þínu. Svo í þessum anda þá styrkist hvert einasta bein í þínum kroppi. Þetta tímabil sýnir þér líka nýja og sterka möguleika á því hvernig þú vilt byrja haustið. Þú ákveður og setur á framkvæmdalistann þinn öfluga hluti. Það er svo mikilvægt að skýra fram- kvæmdalistann sinn ekki tossalista, því þú ert enginn tossi, heldur persónan sem situr við stýrið í lífi þínu. Þú einn berð ábyrgð á því hvernig þér líður, það er ákvörðun og þú einn þarft að taka hana og veröldin stendur svo sannarlega með þér. Svörin berast HRÚTURINN | 21. MARS – 20. APRÍL Láttu engan að þér hæða, þú munt á gjörðum þínum græða. Knús og kossar Elsku Steingeitin mín, ég veit að lífið er langhlaup, sem getur gert þig dálítið pirraða á köflum. En þá get ég sagt þér að þú ert eins og O-blóðflokkurinn. Sá flokkur passar við alla blóðflokka og bjargar þar af leiðandi lífi margra og er svo mikilvægur í öllu sínu látleysi. Það er svo mikið að gerast og þú ert að tengjast við fólk sem er öðruvísi en þú bjóst við að myndi heilla þig. Þessu fylgir mikið fordómaleysi og þú lokar alveg á það að detta það í hug að dæma aðra. Í þessu öllu er svo spennandi saga í kringum þig. Þú virðist vera búin að æfa þig að fara á þeim hraða sem aðrir í kringum þig eru á. Þú ert að læra svo mikið af öðrum og öllu sem er að gerast í kringum þig að þér finnst eins og kærleikurinn renni í æðum þínum. Þú miklar ekki fyrir þér hlutina, heldur stendur stöðug og breytir því sem þú getur breytt og sleppir því að hugsa um það sem þú getur ekki breytt. Þú skalt hafa það sterkt í sálu þinni hverju þú ert virkilega búin að áorka og ekki reyna að toppa sjálfa þig. Samheldni verður það sem ein- kennir og góðar fréttir sem þú hefur verið að bíða eftir eru á leiðinni. Þér finnst þú þurfa að taka töluverða ábyrgð og í því felast ný tækifæri. Eftir því sem á líður færðu meiri virðingu þótt þú sért ekki endilega að kalla eftir henni. En þú ert kannski ekki búin að vera nógu öflug að sinna vinum þínum svo gefðu þeim tíma, það er allt sem þarf. Þú endurskipuleggur svo margt til framtíðar og gerir samninga sem verða þér ábatasamir og það áttu virkilega skilið. Ef þú ert á lausu þarftu að vera búin að ákveða hvort þú vilt langtímasamband og vera harð- ákveðin í því að þú nennir að gefa þig alla í það. Annars flöktirðu frá einu blómi til annars því þú ert stödd í stóru blómabeði og það er úr mörgu að velja. Tími allt sem þarf STEINGEITIN | 21. DESEMBER – 19. JANÚAR Elsku Vatnsberinn minn, þú ert svo tilfinningaríkur og mikill í eðli þínu og af- gerandi í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú gefst aldrei upp þótt á móti blási heldur finn- ur þér bara nýjan farveg. Að sjálfsögðu viltu halda öllum góðum og stundum er gott að dylja til- finningar sínar og láta sem ekkert sé. En það getur verið gott að tala sérstaklega vel um þá sem fara í taugarnar á þér, í því felst lausnin til þess að allt gangi vel. Það er mikilvægt fyrir þig að hafa reglu á því í hvað þú vilt eyða tíma þínum, því það hendir þig öðru hverju að festast í einskis nýtum tímaþjófi. Tónlist er læknandi fyrir þig, hún gefur þér kraft til að rísa upp á hverjum degi. Ég dró fyrir þig tvö spil úr stóra töfraspilabunkanum mínum og þar birtist mynd af persónu sem er að láta hugsanir angra sig. En þar kemur líka sterklega fram að það sé bara heilinn í þér að villa þér sýn. Ýttu þessum þankagangi til hliðar með því að þegar þú færð þessar erfiðu hugs- anir að setja inn aðrar betri. Þetta verður þér auðvelt því að sálin er forstjórinn yfir heilanum. Hitt spilið sem þú fékkst er mynd af þér með mikla uppskeru. Allt sem þú óskar þér er á milli handa þinna. Þetta táknar veraldleg gæði og gjafir og talan níu prýðir spilið sem er tákn fyrir að þú tengist svo vel alheiminum sem er svo afskaplega smár eins og við sjáum svo vel nú. Þú notar þennan kraft og þessar gjafir til að byggja upp í kringum þig, svo þú getur verið alveg rólegur. Ástin gæti verið búin að banka hjá þér og þú búinn að hitta eða kynnast ástinni, jafnvel þótt þú vitir ekki af því. En ef þú ert í sambandi þá skaltu byggja þig upp, því þá verðurðu ást- fangnari af makanum en þú hefur nokkru sinni áður verið. Ekki spá í hvað aðrir hugsa því lífið stendur með þér. Sálin er forstjóri heilans VATNSBERINN | 20. JANÚAR – 18. FEBRÚAR Elsku Sporðdrekinn minn, þú dásamlega einstaka vera, fullt tungl í Sporðdreka er staðsett sjöunda maí og þá skaltu vera tilbúinn með óskalistann þinn. Og þá skiptir miklu máli að hafa óskirnar stórar. Þú skalt biðja um höll þótt þú þurfir bara hús og búast við mun meiru og sjá það fyrir þér og mundu að ekkert er þér ómögulegt yfir þennan magnaða tíma sem blessar þig. Þú færð það sem þú vilt í ást og athöfnum, svo leggðu það sterkt fyrir að þú vitir hvað þú vilt. Það getur þýtt að þú slítir einhver sambönd sem þér hafa fundist mikilvæg en eru einskisnýt eða einskis virði. Það getur verið þú þurfir að nota reiði eða miklar tilfinningar til þess að slíta á tengsl, en það er réttur tími fyrir allt og þú munt finna það á þér þegar þú lætur til skarar skríða. Ég dró magnað spil úr töfrastokknum mínum fyrir þig og það segir: Að sannleikurinn komi í ljós. Með því koma nýir tímar og þetta mun hjálpa þér svo mikið og sterkt, þú þarft ekki að leita að hamingjunni, því þú ert hamingjan. Það er yfir þér tímabil þar sem blessun er ást, þetta þýðir að vond ást springur en góð ást eflist. Svo það verður mikil hreyfing í kringum þig og alls ekki allt auðvelt, en ef tím- inn er bara auðveldur kemur ekkert út úr honum. Ef þú skoðar hvað hefur verið að gerast undanfarið þá sérðu á mörgum sviðum að þú hefur verið að efla sjálfan þig. Þessi styrkleiki á bara eftir að magnast og gera þér svo innilega kleift að breyta andrúmsloftinu í kringum þig og láta þér líða vel. Þú ert hamingjan SPORÐDREKINN | 23. OKTÓBER – 22. NÓVEMBER Elsku Bogmaðurinn minn, þótt aðstæður hafi gefið þér að maður geti ekki stjórn- að öllu, þá bjóðast þér bara nýjar leiðir. Þú aðlagar þig að lífinu eins og ekkert hafi ískorist. Þetta er sannarlega góður tími fyrir þig ef þú ert eitthvað tengdur sköpun. Hugmyndirnar fæðast ein af annarri sem hefðu ekki birst þér ef allt hefði bara verið venjulegt. Þú ert svo fljótur að hugsa og beina þar af leiðandi þrótti þínum í rétta átt og þetta sérðu sérstaklega núna í maímánuði. Þú hef- ur svo einstaka hæfileika til að hlusta á skoðanir annarra og fara milliveginn í lífsbröltinu. Það er mikil hreyfing á því tímabili sem er yfirstandandi, sumir hafa verið að skipta um húsnæði, aðrir að spekúlera í því að færa sig úr stað. Það smellur allt og gengur vel. Sumt er að sjálfsögðu ekki það sem þú hefur ákveðið, en þá eru bara lífið og alheimurinn að finna út hárrétta stöðu fyrir þig, svo slepptu því alveg að vera óþolinmóður. Það getur verið að þú sért búinn að vera pirraður á peningaflæðinu og þurfir að endurskoða sumt í því tillliti. En þegar það er allt búið og gert, þá er staðan betri en þú sást hana fyrir áður. Þú ert að fyllast svo mikilli lífsorku og þrá til að breyta, því það fer þér langbest að vera alltaf á hreyfingu, taka nýjum áskorunum og láta ekkert stoppa þig. Ef þér finnst að það sé búið að vera of lítið að gerast og hlutirnir hafi staðið steinrunnir og fastir, þá færðu aflið akkúrat núna til að brjóta niður veggi og leggja nýja vegi. Þú ert skemmtileg persóna og átt fjölda vina, ert yfirleitt miðpunktur athyglinnar og nýtur þess í flestum tilfellum. En svo ertu líka eins og hellisbúinn; þarft að hafa einveru og hlaða batteríin. Spáðu samt mikið í að hafa svefninn í lagi, því þá kemur jafnvægið sem þú ert búinn að vera að leita eftir. Ekki hafa móral þótt þér finnist þú hafa getað gert betur. Fyrir þig ef þú ert á lausu, þá eru ástríður allt í kringum þig og ástarengillinn Venus er að skjóta örvum í átt til þín. Vert þú sá aðili sem tekur af skarið og býður ástinni inn í líf þitt. Allt smellur BOGMAÐURINN | 23. NÓVEMBER – 20. DESEMBER

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.