Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Blaðsíða 2
Hvað ertu að bralla?
Ég er að fara upp í hesthús á eftir. Sólin skín og ég var að fá
hest í hús. Það er spennandi.
Nú eru síðustu tónleikarnir núna um helgina,
bjóstu við þessum vinsældum?
Nei, nei, maður er ekkert að hugsa á þeim nótunum þegar
maður byrjar. Við höfum haft gaman af þessu og vonandi
fleiri. Svo óx þetta bara, sem er yndislegt.
Er þetta ekki búið að vera skemmtilegt?
Jú, mjög gaman, og ég held það skili sér inn í stofu.
Hvað hefur þetta gefið þér persónulega?
Tónlistararfur okkar er mikill og ríkur og við erum búin að
flytja íslenska klassík, um 150 lög. Það er ótrúlega skemmtilegt
og ég get ekki neitað því að þakklætið sem ég hef fundið er alveg
ótrúlegt. Ég tárast stundum yfir því hvað fólk er virkilega hjart-
anlega þakklátt. Ég fæ alls kyns skilaboð og þakklætisvott.
Hvað verður það jákvæða sem kemur út úr þess-
um heimsfaraldri?
Þegar eitthvað bjátar á sýnir maðurinn samstöðu, fólk stendur
saman. Hjartað gægist meira fram og fær að skína. Í erlinum
gleymist það oft og fólk hættir að taka tillit hvað til annars í
brauðstritinu. Fyrir náttúruna og heiminn er meiri kyrrð. Svo
er fólk farið að uppgötva gömlu gildin, lesa meira og hlusta á
tónlist.
Hvað á að gera í sumar?
Ég fer í gönguferð á Hornstrandir og svo hestaferðir. Svo er
ég með tónleika í Háskólabíói og við vorum að setja í sölu
fjórðu aukatónleikana.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
HELGI BJÖRNSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hjartað fær
að skína
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.5. 2020
Ég þekki mann sem náði þeim undraverða árangri að fitna ekki í sam-komubanninu sem lýkur eftir helgi. Líklega einn Íslendinga, ef markamá mæðulegar frásagnir fólks í ræðu og riti að undanförnu. Að vísu
grenntist okkar maður ekki heldur, en það er auðvitað algjört aukaatriði í
þessu sambandi og tekur varla að nefna það. Ég gef mér að honum líði eins
og íslenska landsliðinu eftir að það hélt jöfnu gegn Frökkum á Laugardals-
vellinum um árið. Hafi jafntefli einhvern tíma verið ígildi sigurs þá var það á
þeim fallega degi. Og þjóðin söng sem einn maður, svo undir tók í innfluttum
sætunum beggja vegna vallarins.
Réttast væri að telja aftur í, til heið-
urs okkar jafnþunga manni.
En hvers vegna fór mittismál
þjóðarinnar annars úr böndunum í
samkomubanninu? Voru ekki allir að
hreyfa sig sem aldrei fyrr? Alltént
fékk ég það á tilfinninguna þegar ég
brá mér til byggða einn laugardag-
inn og arkaði um Vesturbæinn eins
og fínn maður. Á Ægisíðunni varð
ekki þverfótað fyrir fólki, gangandi,
hlaupandi og hjólandi, og mér leið
einna helst eins og ég væri staddur á
miðju Oxford-stræti eða á tónleikum
með Ed karlinum Sheeran. Maður
þurfti að taka á honum stóra sínum til að eiga veika von um að virða tveggja
metra regluna.
Einhver talaði um óhóflegan bakstur á umliðnum vikum; eins konar nýja
þjóðaríþrótt sem tekið hefur við af gömlu góðu glímunni. Eru hveitibirgðir
ekki svo gott sem á þrotum í landinu? Það kann að vega þungt á móti öllum
göngunum og hlaupunum. Alltaf jafn freistandi að henda í vöfflur eða pönns-
ur þegar maður er heima að vinna allan liðlangan daginn.
Þótt lífið verði frá og með mánudeginum að einhverju leyti líkara því sem
við þekktum fyrir kórónuveiruna er vissara að hafa áfram varann á enda
verða ýmsar hömlur áfram í gildi. Í bumbuboltaklúbbnum mínum velta menn
því til dæmis fyrir sér hvernig best sé að útfæra þessa sjö plús þjálfari-reglu.
Eru einhver þjálfaranámskeið í gangi svo við getum virkjað áttunda mann-
inn? Ég hef það skjalfest frá lögmönnum úti í bæ að tímar með færri iðk-
endum en átta telji ekki til stiga. En það er svo sem allt önnur saga.
Loks langar mig að þakka Helga Björns og Reiðmönnum vindanna fyrir
stórkostlega skemmtun undanfarna laugardaga. Get ekki beðið eftir loka-
gigginu í kvöld. Síðast mætti sjálfur Bó. Veit ekki hvernig Helgi ætlar að
toppa það. Tja, ugglaust er eina leiðin að vekja Elvis upp frá dauðum!
Fitnaði ekki í
samkomubanninu
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Á Ægisíðunni varðekki þverfótað fyrirfólki, gangandi, hlaup-andi og hjólandi, og mér
leið einna helst eins og ég
væri staddur á miðju
Oxford-stræti.
Heiður María Þórisdóttir
Svartur lakkrís.
SPURNING
DAGSINS
Hvað er
uppáhalds-
nammið
þitt?
Bergþór Logi Sousa
Sleikjó. Gulur og bleikur sleikjó.
Bryndís Karlsdóttir
Súrt nammi, eins og súrt hlaup.
Ríkharður Gíslason
Dökkt súkkulaði.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Helgi Björnsson verður með síðustu kvöldvöku sína, Heima
með Helga, í kvöld, laugardagskvöld. Í lok ágúst verður Helgi
með ferna tónleika í Háskólabíói undir nafninu Sumarhátíð
Helga Björns. Miðar fást á tix.is.
Ten Points Milde
23.990 kr.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
ERUM FLUTT Í STÆRRA
RÝMI Á GARÐATORGI 6
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA