Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Síða 20
Vissulega er það persónubundið í hvaða tilgangi fólk notarsnyrtivörur og hjá sumum gilda einfaldlega engar reglur. Efþú notar snyrtivörur í þeim tilgangi að hressa upp á andlitið
eru hér 10 góð ráð sem förðunarfræðingar hafa gefið í gegnum tíðina
fyrir okkur sem viljum nota snyrtivörur til að líta sem best út á öllum
aldursskeiðum.
1. Nærandi og rakagefandi krem minnka fínar línur
Fínar línur á húðinni kunna að vera vegna vannærðrar húðar, sem einfald-
lega vantar raka. Byrjaðu á því að bera næringarríkt og rakagefandi and-
litskrem og/eða -sermi á húðina til að fá jafnari og heilbrigða ásýnd. Þyrst
og vannærð húð drekkur einnig í sig allt það sem sett er ofan á hana, til
dæmis farða, svo að förðunin endist skemur ef þú undirbýrð húðina ekki
nægilega vel.
Prófaðu Super Aqua Emulsion frá Guerlain
Glæný formúlan býr yfir nýrri tækni sem hjálpar að auka raka í húðinni og veitir
langvarandi árangur. Aquacomplex Advanced-tæknin eykur vökvaflæði til húð-
arinnar og veitir vörn gegn rakatapi. AquaBiotic-kerfið eykur styrk húðarinnar,
en formúlan vinnur einnig gegn öllum fyrstu öldrunarmerkjum húðarinnar. Í klín-
ískri rannsókn jókst rakastig húðarinnar um 58% sólarhring eftir ásetningu og yf-
irborð húðarinnar varð sterkara. Ljómi húðarinnar jókst um 29%. Þessi tækni-
lega og rakagefandi formúla kemur í þremur mismunandi áferðum: Light er létt
og gelkennd, Universal er flauelsmjúk og Rich er kremkennd og nærandi.
2. Kremaðar og fljótandi formúlur gera meira fyrir húðina
Með því að nota kremaðar og fljótandi formúlur fær húðin mýkri og nátt-
úrulegri ásýnd en ef þú berð púður á hana. Púður getur einnig sest í línur og
stórar svitaholur á húðinni og aukið ásýnd þeirra.
Prófaðu Color Haze Multi-Use Pigment frá ILIA
Þetta er náttúruleg formúla sem nota má á bæði kinnar, varir og augu. Form-
úlan veitir matta ásýnd og er án allra óæskilegra aukaefna.
3. Litað dagkrem eða léttur farði gera þig frísklegri
Þungur og fullþekjandi farði getur haft öfug áhrif þegar húðin býr yfir óreglulegri áferð.
Þess í stað skaltu kynna þér léttan farða eða litað dagkrem til að virka frísklegri. Byrj-
aðu á miðju andlitsins, þar þarf yfirleitt mestu þekjuna vegna roða og litamisfellna, og
láttu farðann dofna út á ytri hluta andlitsins.
Prófaðu Intensive Skin Serum Foundation SPF 40 frá
Bobbi Brown
Þessi nýi farði jafnar húðlitinn auk þess sem formúlan býr yfir öflugum húðbætandi
áhrifum. Active Skin Energizing Complex sér til þess að endurhlaða húðina nær-
ingu og veitir farðinn húðinni náttúrulega, ljómandi ásýnd.
Argireline-peptíð og breiðvirk sólarvörn verndar húðina fyrir
slæmum áhrifum mengunar, viðheldur kollagenforða húðar-
innar og hægir á öldrunarmerkjum hennar.
4. Ljós augnskuggi birtir yfir augnsvæðinu
Með aldri þynnist húðin og á augnlokunum fer húðliturinn að
verða ójafnari. Notaðu ljósan augnskugga til að jafna út svæð-
ið og ef þú vilt móta augnumgjörðina frekar er tilvalið að nota
náttúrulega litatóna til þess. Til að skyggja augun geturðu próf-
að að blanda dekkri augnskugga örlítið fyrir ofan glóbus-línuna
til að skapa lyftandi ásýnd.
Prófaðu Eye Colour Palette frá Sensai
Fjórar litasamsetningar eru í boði og inniheldur hver augn-
skuggapalletta fjóra litatóna. Byrjaðu á að bera ljósasta litinn yfir
allt augnlokið og notaðu hina litina til að skerpa augnumgjörðina.
5. Endurhugsaðu augnlínufarðann
Þegar húðin var rennislétt gat maður dregið augnlínufarðann hvert
sem mann langaði. Með aldri slaknar á húðinni og augnfellingin kann að leggj-
ast yfir augnlínufarðann. Það skapar í raun skugga í fínum línum og hrukkum
og gerir þær meira áberandi. Eitt frábært förðunarráð er að nudda augn-
blýanti inn á milli augnháranna og/eða inn á vatnslínu efra augnloksins. Þannig
skerpirðu augnumgjörðina án þess að taka pláss ofan á augnlokinu eða ýkja
fínar línur í kringum augun. Það er einnig tilvalið að prófa sig áfram með
brúna tóna í stað svartra en svartir litatónar við augun kunna að ýta undir
þreytumerki.
Prófaðu 24/7 Glide-On Eye Pencil frá Urban Decay
Þessi langvarandi formúla kemur í fjölmörgum litum, silkimjúk og þar af leið-
andi auðveld í notkun.
6. Of dökkar og skarpar augabrúnir heyra sögunni til
Sumum finnst freistandi að lita augabrúnirnar kolsvartar, svo að liturinn end-
ist lengur, og láta móta þær svo hressilega að það er engu
líkara en þær hafi verið teiknaðar á. Öll svona áberandi
skerpa ýtir undir fínar línur á tilteknu svæði. Góð regla er
að miða lit augabrúnanna við náttúrulegan hárlit og fara
ekki meira en einum eða tveimur litatónum frá honum.
Prófaðu Brow Define Pencil frá Lancôme
Örmjór blýanturinn er fullkominn til að þétta augabrúnirnar,
teikna ný hár og í boði eru náttúrulegir litatónar.
Formúlan er þar að auki vatnsheld.
7. Varalitablýantur mótar og held-
ur varalitnum á sínum stað
Með tíð og tíma verða varirnar stundum minni
ásýndar og meira um línur í kringum þær. Gloss og
varalitir, sem eru of sleipir í sér, renna gjarnan af
vörunum og út í þessar línur. Til að stöðva það er
gott ráð að byrja á því að móta varirnar með vara-
litablýanti. Vaxkennd formúlan stöðvar blæðingu
varalitarins og þú getur mótað varirnar betur.
Prófaðu Le Crayon Lévres frá Chanel
Nýju varalitablýantarnir frá Chanel er mjög langvarandi, mjúkir og koma í mjög fal-
legum litatónum.
8. Bjartur varalitur lífgar þig við
Eitt fljótlegasta förðunarráðið til að fá líflegri ásýnd er einfaldlega að bera á sig bjartan
varalit. Bæði kallar það oft fram augnlitinn og húðlitinn.
Prófaðu Love Me Lipstick frá MAC
Formúlan veitir ákafan lit en nærir varirnar allan daginn með innihaldsefnum á borð
við argan-olíu.
9. Kinnaliturinn settur hærra
Hver man ekki eftir förðunarráðinu að brosa og bera kinnalitinn á epli kinnanna? En
þegar þú hættir að brosa virðast epli kinnanna falla niður andlitið. Hættu að miða við
epli kinnanna og settu frekar á þig kinnalit út frá línu kinnbeinanna.
Prófaðu Glow 2 Go frá Clarins
Þessi kremuðu kinnalitastifti eru tvískipt þar sem kinnalitur er öðrum megin
og ljómi/bronser er hinum megin. Hentugt í veskið og er fljótlegt í notkun.
10. Aukin hlýja í andlitið
Sólarpúður er frábært til að hressa upp á andlitið og fá sólkysst útlit. Það mótar einnig
andlitið á náttúrulegan hátt.
Prófaðu Powder Bronzer frá Anastasia Beverly Hills
Í boði eru sex litatónar sem þú velur eftir undirtón húðar þinnar. Púðuragnirnar eru
svo fínmalaðar að áferðin verður nánast kremkennd og virkar fullkomlega náttúruleg
á húðinni.
Guerlain Super
Aqua Emulsion
Pre & Pro-Aging
Hydration,
18.599 kr.
Clarins Glow 2
Go, 5.999 kr.
ILIA Color Haze
Multi-Use Pig-
ment, 4.990 kr.
(Verslunin Nola)
Bobbi Brown
Intensive Skin
Serum Fo-
undation SPF
40, 10.998 kr.
Anastasia Beverly
Hills Powder Bron-
zer, 5.990 kr. (Versl-
unin Nola)
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2020
LÍFSSTÍLL
Með aldrinum breytist húð okkar
og því er oft ágætt að endurskoða
snyrtivörurnar sem maður notar
og hvernig maður notar þær.
Lilja Ósk Sigurðardóttir
snyrtipenninn@gmail.com
10 förðunar-
ráð fyrir
þroskaða húð
Sensai Eye
Colour Palette,
8.999 kr.
Urban Decay 24/7 Glide-
On Eye Pencil, 3.299 kr.
Lancôme Brow
Define Pencil,
3.921 kr.
Chanel Le Cra-
yon Lévres
Longwear Lip
Pencil, 4.399 kr.
MAC Love Me
Lipstick í litnum
My Little Secret,
3.990 kr.