Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2020, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.5. 2020
LÍFSSTÍLL
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin,
Nettó, Heilsuhúsin, Vegan búðin,
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið
og Matarbúr Kaju á Akranesi
Chai latte
Á vegg í Conakry í Gíneu má sjá þessar illkvitnislegu kórónuveirur ásamt áminningu um að þvo sér rækilega um hendur til að afstýra kynnum við þær.
AFP
Mynd af geimfara með grímu fyrir vitum sér
með litum og merki knattspyrnufélgsins
Borussia Dortmund prýðir vegg á leikvangi fé-
lagsins, Signal Iduna Park, í Dortmund. Í þýsku
búndeslígunni er beðið eftir grænu ljósi til að
frá að klára keppnistímabilið. Yrði þá leikið án
áhorfenda og farið eftir ströngum reglum um
snertingu og samgang. Það verður leyfilegt að
tækla en ekki að faðmast.
AFP
Listamaður málar fótspor á gólfið á neðanjarðarlest í Medellin í Kólumbíu til að
minna farþega á að standa ekki of þétt saman vegna kóronuveirufaraldursins.
AFP
Heilbrigðisstarfsfólki er iðulega þakkað í vegglistaverkum um þessar mundir.
Listamaðurinn Kai „Uzey“ Wohlgemuth gerði þessa mynd í Hamm í vesturhltua
Þýskalands. „Helgað hinum raunverulegu hetjum,“ stendur við hlið myndarinnar.
AFP
Heilbrigðissatarfsfólk í hlífðarbúnaði fellur í faðma á veggmynd í Acapulco í
Guerrero -ríki í Mexikó. Tilfellum af Covid-19 fer fjölgandi í landinu. Þar var
skólum lokað í mars ásamt öðrum aðgerðum sem eru í gildi til 30. maí.
AFP
Maður með grímu tekur sjálfu fyrir framan veggmynd í Madríd á Spáni. Myndin er skrum-
skæling á þekktu atriði úr myndinni Pulp Fiction eftir Quentin Tarantino þar sem John
Travolta og Samuel L. Jackson eru í hlutverkum Vincents Vega og Jules Winnfield. Lista-
maðurinn hefur sett á þá grímur í anda kórónutíma og lætur þá vera að mynda sjálfa sig.
AFP