Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.01.2021, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 07.01.2021, Qupperneq 8
ORKURANNSóKNASJóÐUR Ert þú að grúska fyrir grænan heim? Eitt stærsta verkefni okkar er að skila jörðinni til komandi kynslóða í jafn góðu eða betra ástandi en við tókum við henni. Nútíminn kallar á grænar lausnir til að ná þessu takmarki, og ein stærsta græna lausnin er orkuvinnsla úr auðlindum sem endurnýja sig og valda lítilli losun á gróðurhúsalofttegundum. Rannsóknaverkefni sem tengjast orku- og umhverfismálum geta skipt sköpum í leitinni að þessum grænu lausnum og Orkurannsóknasjóður styður við slík verkefni á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Við auglýsum nú eftir umsóknum um styrki frá sjóðnum. Nánari upplýsingar, auk umsóknareyðublaðs, er að finna á vef Landsvirkjunar landsvirkjun.is Umsóknum er skilað á netfangið orkurannsoknasjodur@landsvirkjun.is Umsóknarfrestur er til og með 11. janúar 2021 Lánaáætlun ríkissjóðs fyrir árið 2021 leggst almennt vel í markaðs­aðila, en skuldabréfaút­gáfa ríkissjóðs á inn­lendum verður nokkru minni en væntingar stóðu til. Er það einkum vegna fyrirhugaðrar lántöku í erlendri mynt og sölu ríkissjóðs á hlut í Íslandsbanka. Verði f jórðungshlutur seldur í fyrsta kasti, svo dæmi sé tekið, með skráningu bankans á markað gæti það skilað ríkissjóði mögulega 30 til 40 milljörðum. Allir formenn stjórnarf lokkanna þriggja hafa lýst sig hlynnta sölu ríkissjóðs á Íslandsbanka og kveðið er á um söluna í stjórnarsáttmála ríkis­ stjórnarinnar. Lánamál ríkisins birtu útgáfu­ áætlun ársins 2021 eftir lokun markaða á síðasta viðskiptadegi nýliðins árs. Ávöxtunarkrafa óverð­ tryggðra skuldabréfa flokka ríkisins hefur verið nokkuð stöðug það sem af er vikunni, en nettó lánsfjárþörf ríkissjóðs á þessu ári er áætluð um 352 milljarðar króna. Athygli vekur að magnbundin íhlutun Seðla­ banka Íslands á fjármagnsmörkuð­ um er ekki hluti af áætlun Lánamála ríkisins. Allf lestir markaðsaðilar gera ráð fyrir því að einhver hluti skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs endi á bókum Seðlabankans, sem mun að óbreyttu verka til lækkunar á ávöxtunarkröfu ríkisbréfa og þar með lækka fjármagnskostnað hins opinbera. Nettó útgáfa minni en 2020 „Útgáfuáætlunin í ríkisbréfum er lægri en við gerðum ráð fyrir þegar nýtt fjárlagafrumvarp var kynnt síðastliðið haust. Ef við tökum tillit til gjalddaga ríkisbréfa þá er nettó útgáfan rúmlega 70 milljarðar króna í ríkisbréfum í ár samanborið við um 120 milljarða í fyrra,“ segir Ingólfur Snorri Kristjánsson, for­ stöðumaður skuldabréfastýringar Íslandssjóða. Halli á rekstri ríkissjóðs á árinu 2020 er áætlaður um 270 milljarðar króna. Samkvæmt fjárlögum árs­ ins 2021 verður halli ársins 2021 svo 320 milljarðar króna. Margir höfðu áhyggjur af því að ríkissjóði gæti reynst dýrt að fjármagna halla áranna 2020 og 2021 á innlendum f jármagnsmörkuðum, þar sem stóraukið framboð ríkisskulda­ bréfa myndi hækka fjármagns­ kostnað hins opinbera með hækk­ andi ávöxtunarkröfu. Minni lántaka á innlendum fjár­ magnsmörkuðum en vænst var breytir hins vegar þeirri mynd sem margir aðilar á markaði höfðu teiknað upp síðasta haust. „Þetta gerir það að verkum að framboðs­ þrýstingurinn í ríkisbréfum verður minni en við töldum áður, en auð­ vitað helst þetta í hendur við að vel takist að fjármagna það sem upp á vantar. Þar vegur líklegast þyngst erlend lántaka og eignasala,“ segir Ingólfur Snorri. Lántaka ríkissjóðs á erlendum mörkuðum er fyrirhuguð á næsta ári, en væntingar markaðsaðila um stærðargráðu slíkrar útgáfu eru um einn milljarður evra, eða sem nemur liðlega 156 milljörðum króna miðað við gengi krónunnar um þessar mundir. Sjóðstaða ríkis­ sjóðs í erlendri mynt er rífleg, að því er kemur fram í umfjöllun Lána­ mála ríkisins, eða um 218 milljarðar króna. „Miðað hve fjármagnsþörf ríkis­ sjóðs er mikil nú á fyrri hluta árs þá held ég að erlend lántaka ætti að eiga sér stað fyrr en seinna, sem og kaup Seðlabankans á ríkisbréfum,“ segir Stefán Broddi Guðjónsson, sérfræðingur í skuldabréfum hjá Arion banka. „Heilt yfir líst mér vel á þetta plan. Ég hef samt áhyggjur af því hvernig muni ganga með útgáfu víxla, sérstaklega til skemmri tíma. Í janúar og febrúar eru samtals 80 milljarðar af víxlum á gjalddaga,“ bætir hann við. Framþung víxlaútgáfa Stefán Broddi nefnir einnig að lán­ taka ríkissjóðs hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) myndi hluta af fjármögnun ríkisrekstrarins á næsta ári, en laust fé ÍLS er það fjármagn sem safnast upp hjá sjóðnum vegna uppgreiðslna heimila á íbúða­ lánum. „Snemma árs í fyrra þrýsti Seðlabankinn ÍLS út úr beinum inn­ lánum hjá sér með það að markmiði að stuðla að auknu lausu fé í umferð. Aukið laust fé í umferð styður aukin útlán banka og stuðlar að kaupum banka, og annarra lánafyrirtækja eins og ÍLS, á ríkisvíxlum.“ Taki ríkissjóður lán frá ÍLS, dragi þann­ ig úr getu síðarnefnda aðilans til að taka þátt í víxlaútboðum ríkissjóðs. Lánaáætlun leggst vel í markaðinn Dágóður hluti hallarekstrar áranna 2020 og 2021 verður fjármagnaður með eignasölu, erlendum lántökum og lánum Íbúðalána- sjóðs til ríkissjóðs. Magnbundin íhlutun Seðlabanka Íslands ekki hluti af lánaáætlun ríkissjóðs, þó að flestir vænti slíkra aðgerða. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun taka endanlega ákvörðun um sölu á hluta eignar ríkissjóðs í Íslandsbanka síðar í mánuðinum. MYND/GVA Þórður Gunnarsson thg@frettabladid.is MARKAÐURINN 7 . J A N Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.