Fréttablaðið - 07.01.2021, Side 18

Fréttablaðið - 07.01.2021, Side 18
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna ÚTSALAN ER HAFIN 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Ég er eilífðarunglingur á fer-tugsaldri, kisumamma og háskólanemi. Ég hef starfað við vefmál undanfarin ár og er að setjast aftur á skólabekk til að læra meira á því sviði,“ svarar Harpa þegar hún er beðin um að lýsa sér í stuttu máli. „Mín hjartans mál eru þó dýra- og umhverfisvernd. Ég er að vinna að vefverkefni þar sem aðaláhersl- an er á dýravernd og minnkun kolefnisspors og matarsóunar. Það verður vonandi opnað á næstu dögum.“ Harpa heitir því að berjast gegn matarsóun á árinu. „Svo strengdi ég það áramótaheit að sóa engum mat. Ég er mikill ástríðukokkur og kaupi mikið af framandi matvöru þannig að það er áskorun að nota allt sem ég kaupi. Ég ákvað að nota mánudaga til að finna skapandi leiðir til að nota það sem ég á til. Það verður hægt að fylgjast með verkefninu á Instagram-síðunni Mánudagar gegn matarsóun.“ Á ekki einu sinni buxur Þegar Harpa er beðin um að lýsa fatastíl sínum greinir hún frá nýtilkomnum grunsemdum um að blátt blóð renni í æðum sér. „Ég myndi lýsa honum sem klass- ískum og tímalausum. Ég er alltaf í kjól. Alltaf. Ég á ekki einu sinni buxur. Þegar ég vil vera kasjúal til fara þá er ég eins og ég sé að fara á veiðar með Elísabetu Englands- drottningu, í Barbour-yfirhöfn, kjól og gúmmístígvélum. Ég uppgötvaði þetta þegar ég byrjaði að horfa á The Crown. Ég lifi mig mikið inn í þættina og stend mig reglulega að því að hugsa og tala við sjálfa mig með grunsamlega góðum breskum yfirstéttarhreim og er einhvern veginn orðin öll settlegri í háttum. Það læðist að mér sterkur grunur og ég ætla að fara út í apótek og kaupa svona My heritage DNA test kit.“ Hefurðu áhuga á tísku? „Ég hef mikinn áhuga á fötum og stíl en eltist ekki við tísku- strauma.“ Hvenær kviknaði sá áhugi? „Ætli það hafi ekki byrjað snemma á unglingsárunum og smekkurinn hefur kannski ekki mikið breyst. Ég nota fermingar- kjólinn minn ennþá og hef verið með sömu hárgreiðsluna í 30 ár.“ Hvaðan færðu innblástur? „Ég er hræðilega rómantísk og dramatísk og fæ aðallega innblást- ur úr skáldsögum og gömlum fal- legum ljósmyndum. Helst myndi ég vilja klæðast viktorískum síð- kjólum alla daga, en ég hef aldrei látið það eftir mér. Kannski ætti ég bara að láta verða af því, lífið er jú núna. Svo er ég mikil Star Wars- kona og þegar ég finn föt með jedi- legu sniði þá kaupi ég þau!“ Röndótt ævintýri Óhætt er að fullyrða að Harpa sé nýtin hvað fatnað snertir. „Uppá- haldsflíkin mín er ítalskur kjóll með rauðum og hvítum röndum. Hann minnir mig á sirkustjald og ég hef lent í ótrúlegum ævintýrum í þeim kjól, það hefur kannski hjálpað til hvað hann er f leginn. Mest notaða flíkin mín er gamalt klæðskerasaumað pils sem ég keypti á bílskúrssölu hjá fínni frú. Það smellpassaði á mig og ég hef notað það óspart í yfir áratug.“ Hver er þinn helsti veikleiki þegar kemur að tísku og útliti? „Svartir, klassískir kjólar og dýr krem. Ég er nýbúin að kynnast Allies of skin húðvörunum og nú er ég í fullri vinnu við að bera á mig krem frá morgni til kvölds.“ Eyðirðu miklu í föt? „Þegar kemur að fatakaupum vel ég gæði frekar en magn og kaupi fáar en frekar dýrar flíkur. Það skiptir mig miklu máli að flíkurnar séu vandaðar og geti þess vegna enst mér út ævina. Ég forðast skynditísku eins og heitan eldinn og það skiptir mig miklu máli að fötin séu framleidd við góðar aðstæður. Eitt af áramóta- heitunum var að kaupa engin ný föt á árinu. Ég ætla frekar að fara með föt sem þarfnast viðgerða og breytinga á saumastofu Hassans.“ Hvar kaupir þú helst föt? „Ég er með allt of dýran smekk miðað við tekjur þannig að ég kaupi aðallega notuð föt. Ég hef keypt mikið á Facebook-síðunni Merkjavara föt, skór og aukahlutir sem Stefán í Stefánsbúð heldur utan um. Þar hef ég til dæmis fengið Louboutin og Gucci skó, Vivienne Westwood, Marc Jacobs og Sonia Rykiel kjóla og Dolce & Gabbana jakka á spottprís. Þá sjaldan ég kaupi mér ný föt er það oftast í Geysi en þar fást mörg af mínum eftirlætis merkjum eins og Isabel Marant, Ganni, Barbour, A.P.C. og Stine Goya.“ Áttu þér uppáhaldshönnuð? „Ég dýrka Vivienne Westwood. Hún notar tískuheiminn sem vett- vang fyrir aktívisma og ég lít mikið upp til hennar. Fataval er auðvitað hápólitískt og það skiptir svo miklu máli að taka afstöðu gegn offramleiðslu, ofneyslu, sóun og dýraníði og mannréttindabrotum í tískuiðnaðinum.“ Notarðu fylgihluti og skart? „Ég er alltaf með lykilinn minn frá OrraFinn um hálsinn og hann er eina skartið sem ég þarf. Það bregst aldrei að karlmaður sem kemst nógu nálægt mér spyr: ,,Að hverju gengur þessi lykill?“ og þá get ég svarað að hann gangi að hjartanu á þeim eða öllum buxna- klaufum bæjarins eða að kynlífs- dýflissunni minni allt eftir því hvernig stuði ég er í og mér finnst ég alltaf svo sniðug. Þar sem lykill- inn er auðvitað fjöldaframleiddur velti ég því stundum fyrir mér hversu margar konur segi þetta nákvæmlega sama þegar þær eru spurðar að því að hverju lykillinn gangi.“ Hvað er fram undan hjá þér í haust? „Ég ætla að setjast aftur á skólabekk og læra vefmiðlun við Háskóla Íslands. Ég var búin að kaupa mér agalega fína skólatösku og pennaveski og allt en svo verður kennslan víst bara á zoom.“ Eitt af áramótaheitum Hörpu er að kaupa engin ný föt á þessu ári og þá frekar nýta sér saumastofu Hassans til að gera við og breyta flíkum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Harpa í rönd- ótta kjólnum sem hún segir hafa leitt sig á vit fjölda eftirminnilegra ævintýra. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Þegar ég vil vera kasjúal til fara þá er ég eins og ég sé að fara á veiðar með Elísabetu Englandsdrottningu. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.