Fréttablaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 20
Veirueyðandi efni náðu nokkrum vinsældum á síð-asta ári, af augljósum ástæð-
um. En tískuvefurinn Women’s
Wear Daily velti því upp hvort
veirueyðandi efni yrðu áberandi í
framtíðinni eða hvort þau hætti að
skipta máli þegar bóluefnin binda
enda á faraldurinn.
Faraldurinn flýtti verulega fyrir
þróun veirueyðandi efna. Snemma
á síðasta ári, þegar fyrsta bylgjan
var að fara af stað og áherslan á
öryggi jókst verulega, tóku stórir
textílframleiðendur í Evrópu sig til
og settu á markað ýmis ný efni með
veirueyðandi eiginleika. Þá var
talið að slík efni yrðu mjög vinsæl
og myndu róa neytendur sem
óttuðust COVID-19. En síðan þá
hefur komið í ljós að efni og textíll
eru ekki miklir smitberar, heldur
berst veiran með lofti. Það virðist
því ósennilegt að veirueyðandi
efni verði mjög vinsæl, sérstaklega
núna þegar við sjáum vonandi fyrir
endann á faraldrinum.
Bjartsýnir framleiðendur
Engu að síður hefur framleiðsla
á efnum með veirudrepandi
eiginleika aukist verulega og Fabio
Tamburini, framkvæmdastjóri
Cotonificio Albini, sem framleiddi
ViroFormula-efnið í samstarfi við
fyrirtækið HeiQ , segir að nokkur
ólík vörumerki vilji nota þessi efni,
bæði í götutísku og lúxusvörur.
Hann heldur því fram að þó að
bóluefnin geri okkur kleift að halda
venjulegu lífi áfram, eigi neytendur
samt eftir að halda áfram að sækja
í veirueyðandi efni. Nú sé fólk
meðvitaðra en áður um hættuna og
þegar við förum öll að troða okkur
aftur inn í pakkaðar almennings-
samgöngur, komi fólk til með að
vilja tryggja öryggi sitt eftir fremsta
megni. Þess vegna eigi eftirspurnin
ekki eftir að minnka.
Giorgio Todesco, framkvæmda-
stjóri Marzotto-ullarframleiðand-
ans, sem framleiðir efni úr náttúru-
legu garni sem hafa veirueyðandi
eiginleika, segir að ástæðan fyrir
velgengni vöru þeirra sé að við-
skiptavinir horfi nú í auknum mæli
til tæknilegra eiginleika fatnaðar-
ins. Hann segir að efnin þeirra
höfði sérstaklega til smásala sem
sjá starfsfólki sínu fyrir einkennis-
búningum, vörumerkja í Asíu og
götutískumerkja.
Luxury Jersey, annar fram-
leiðandi sem nýtti sér líka tæknina
frá HeiQ , hefur séð mikla aukningu
í eftirspurn frá fyrirtækjum sem
framleiða þægilegan íþrótta-
fatnað. Yfirmaður fyrirtækisins,
Federico Boselli, telur að fólk verði
almennt meðvitaðra um hrein-
læti og örverur eftir faraldurinn og
því verði veirueyðandi fatnaður
vinsæll.
Aukið öryggi
Efnafyrirtækið Rudolf Group
hefur gert rannsóknir sem sanna
að tækni þess hafi veirueyðandi
eiginleika sem virka líka á kórón-
aveirur. Alberto De Conti, yfir-
maður tískudeildar fyrirtækisins,
telur að þessi efni eigi áfram eftir
að skipta máli, þar sem bæði neyt-
endur og vörumerki vilja aukið
hreinlæti, jafnvel þó að eftirspurn-
in minnki eitthvað vegna nýrra
bóluefna. Hann benti líka á að
vegna allrar upplýsingaóreiðunnar
sé aukinn áhugi og eftirspurn eftir
áreiðanlegum og auðskiljanlegum
rannsóknaniðurstöðum og textíl-
markaðurinn vilji alvöru virkni
sem sé hægt að kynna fyrir við-
skiptavinum, en ekki hraðsoðnar
auglýsingabrellur.
Veirueyðandi efni koma aldrei
í staðinn fyrir hlífðarbúnað og
eyða ekki hættunni á því að fá
smitsjúkdóma, en það er viðbúið
að margir vilji gera allt sem hægt
er til að tryggja sig og þessi efni
virka í raun og veru. Auk þess er
aldrei að vita nema annar faraldur
gangi yfir og þá gætu smitleiðirnar
verið öðruvísi. Sumir telja að þessi
markaður eigi bara eftir að vaxa
og þannig búa til frjóan jarðveg
fyrir frekari rannsóknir og þróun,
á meðan aðrir eru meira hikandi.
Það er þó ljóst að veirueyðandi
efni eru ekki líkleg til að hverfa af
markaði, þó að erfitt sé að spá fyrir
um eftirspurnina. Þau eiga líka
sennilega eftir að njóta sérstakra
vinsælda í ákveðnum geirum, til
dæmis fyrir einkennisbúninga og
kannski líka íþróttafatnað.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Framtíð veirueyðandi efna óljós
Ætli vinsældir veirueyðandi efna haldi áfram að aukast á þessu ári eða hætta þau að skipta máli
með tilkomu bóluefna? Því er erfitt að svara, en framleiðendur efnanna eru samt bjartsýnir.
Vinsældir
veirueyðandi
efna hafa
aukist veru-
lega á þessu ári
og framleið-
endur þeirra
eru bjartsýnir
á að þær haldi
áfram. En það
er samt hætta á
að áhugi á þeim
dvíni þegar
bóluefnin enda
faraldurinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Veirueyðandi
efni koma aldr-
ei í staðinn fyrir
hlífðarbúnað og
eyða ekki hætt-
unni á því að fá
smitsjúkdóma,
en það er við-
búið að margir
vilji gera allt
sem hægt er til
að tryggja sig og
þessi efni virka í
raun og veru.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . JA N ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R