Fréttablaðið - 07.01.2021, Page 21
Skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands, Ingibergur Þorkels-son, ræðir um þær nýjungar
sem hann hefur verið að kynna.
Hvað varð til þess að þú skrifaðir
bók um hugræna enduforritun?
„Ég hef í mörg ár unnið með
meðferðir sem virka vel í dáleiðslu-
ástandi. Nokkrar þeirra eru bæði
öflugar og fljótvirkar. Dáleiðslu-
skóli Íslands hefur undanfarin ár
kennt þessar meðferðir, þátta-
meðferð (Parts Therapy), persónu-
þáttameðferð (Ego State Therapy)
og Yager-meðferð (Subliminal
Therapy),“ svarar Ingibergur. Ég
hef einnig notað áfallameðferð
Colin A. Ross M.D. sem heitir „The
Trauma Model“.
Hann heldur áfram: „Ég gerði
mér grein fyrir að með því að
samþætta þessar meðferðir, nýta
þá hluta hverrar þeirra sem gáfu
mestan árangur væri hægt að
skapa frábæra meðferð. Ég hef líka
fylgst með nýjustu rannsóknum
í taugafræði og nýtt þá þekkingu
til að fullkomna ferlið. Mér fannst
liggja beinast við að kenna eina
sameinaða meðferð frekar en
þrjár. Þess vegna skrifaði ég bókina
Hugræn endurforritun og skólinn
kennir nú þá meðferð auk endur-
litsdáleiðslu (Regression Therapy).“
Efnið var tilbúið í huganum
Hvenær var fyrsta námskeiðið
kennt sem byggir á nýju bókinni?
„Ég kenndi í fyrsta skipti samein-
aða meðferð, Hugræna endurfor-
ritun, á haustnámskeiðinu 2020,“
svarar Ingibergur. „Ég fékk fyrstu
eintökin með DHL í tæka tíð fyrir
námskeiðið, um miðjan október.
Ég byrjaði að skrifa bókina í
ágúst og átti ekki von á að gefa
hana út í fyrra. En þegar ég byrjaði
að skrifa þá rann þetta bara fram,
viðstöðulaust. Efnið var greinilega
tilbúið í huganum, ég átti bara eftir
að koma því á pappírinn.“
Hvernig gekk nemendum að til-
einka sér þessa aðferð?
„Nemendur stóðu sig frábær-
lega,“ segir Ingibergur. „Námskeið-
ið er mjög krefjandi og nemendur
vinna meðferðir hver á öðrum
allan daginn á milli þess sem kennt
er. Í lok námskeiðsins kom í ljós
að allir útskriftarnemarnir voru
tilbúnir til að hefja meðferðarstarf
og eru að koma sér upp aðstöðu
til þess. Þau eru full sjálfstrausts
og hafa margsannað sig á nám-
skeiðinu og eftir það. Þetta nám
er þroskandi fyrir nemendurna
og maður sér miklar breytingar á
þeim. Flest segjast hafa öðlast nýtt
líf og lært ótalmargt um sjálf sig.“
Hugurinn er undraveröld
Aðspurður að því hvað sé svona
merkilegt við þessa meðferð svarar
Ingibergur: „Meðferðin felst í
því að fá okkar innri lækni til að
gera breytingar í huganum. Við
fæðumst sem tvennd: Sjálfið og
innri styrkur. Sjálfið stjórnar lífi
einstaklingsins en innri styrkur
styður sjálfið með ráðum og dáð.
Sjálfið nýtir mest dagvitundina
en innri styrkur undirvitundina,
þar sem er aðgangur að öllum
minningum og öllum þáttum
hugans. Í hugrænni endurforritun
er innri styrkur ávarpaður sem
Centrum, sem er sá titill sem dr.
Edwin Yager, höfundur Yager-
meðferðar notaði. Í raun er innri
styrkur/Centrum þinn innri
læknir sem getur læknað flest í
huga þínum,“ útskýrir hann.
„Í meðferðinni er unnið með
þætti hugans sem í raun skiptast á
um að vera þú en sem fæstir taka
Ný árangursrík dáleiðslumeðferð
Hugræn endurforritun er ótrúlega öflug og hraðvirk dáleiðslumeðferð sem Ingibergur Þorkelsson
hefur þróað út frá þremur öðrum þekktum meðferðum og nýjustu rannsóknum í taugafræði.
Ingibergur Þorkelsson, skólastjóri Dáleiðsluskólans, kenndi nýja meðferð í
haust sem kallast Hugræn endurforritun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
eftir í eigin fari dagsdaglega. Einnig
er unnið með afrit af öðru fólki
sem þú hefur gert að hluta þíns
stjórnkerfis með því að tileinka þér
skoðanir og viðhorf foreldra þinna,
kennara og annars yfirvalds.
Þessi afrit eru svo að tala til þín í
huganum og stjórna þér. Sum eru
jákvæð en önnur neikvæð og þau
þarf að losna við.“
Hvernig fer meðferðin fram?
„Meðferðarvinna í hugrænni
endurforritun byggist á því að
fá Centrum til þess að gera þær
breytingar sem þarf í huga og
líkama,“ segir Ingibergur.
„Fátt virðist vera Centrum
ofviða og hann gerir allar þær
breytingar sem sjálfið óskar eftir
með aðstoð meðferðaraðilans eða
í beinum samskiptum þegar þeim
hefur verið komið á. Meðferðar-
þegar upplifa Centrum á ýmsan
hátt. Þeir lýsa honum/henni sem
hluta af þeim sjálfum eða þá sem
sálinni sinni, sem æðra mætti,
sumir jafnvel heilögum anda.
Lækningamátturinn er ótvíræður
og fátt sem Centrum telur sig ekki
geta læknað, hvort sem það er
hugrænt, hugvefrænt eða líkam-
legt.“
Bjóða meðferðarpakka í dáleiðslumeðferð
Ingibergur hefur nú þjálfað hóp
meðferðaraðila sem hafa lokið
220 tíma námi í meðferðardá-
leiðslu með áherslu á Hugræna
endurforritun. Meðferðin
hefur reynst mjög áhrifarík í
vinnu með fíkn, kvíða, mígreni,
ofnæmi, vefjagigt, tengslarof og
afleiðingar áfalla og ekki síður
til að efla innri styrk, innsæi o.fl.
Það hefur sýnt sig að þörfin er
mikil fyrir þessa meðferð. Eftir
umfjöllun um dáleiðslu í sjón-
varpsþættinum Undir yfirborðið
á Hringbraut haustið 2019 hefur
orðið mikil vakning og eftirspurn
eftir meðferð.
Nú býðst heildstæður pakki
hjá þessum meðferðaraðilum
sem eru þrjú skipti (hver tími er
90-120 mínútur) á samtals 30.000
krónur, sem er um þriðjungur
af almennu verði. Einu skilyrði
þess að fá þriggja skipta með-
ferðarpakka á þessum kjörum
er að þú samþykkir að mæta í
öll þrjú skiptin (á dagsetningum
og tímum sem þú ákveður með
meðferðaraðilanum) og sam-
þykkir að fylla út eyðublað um
líðan eftir hvern tíma. Eyðublaðið
er bæði gagnlegt fyrir þig til að
átta þig á breytingum á líðan
þinni og fyrir meðferðaraðila til
að meta árangur af meðferðinni.
Tímana þrjá þarf að greiða í
upphafi fyrsta tíma. Innifalið í
meðferðarpakkanum er bókin
Hugræn endurforritun eftir Ingi-
berg Þorkelsson, sem nýlega kom
út, en þar eru áhrifaríkar reynslu-
sögur og meðferðin vel útskýrð.
Ef þú vilt nýta þér þetta tæki-
færi þá skaltu fylla út eyðublaðið
sem er á síðunni daleidsla.is/
medferd
Næsta grunnnámskeið skólans hefst 19. febrúar, 2021
Næsta framhaldsnámskeið hefst 9. apríl, 2021
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 7 . JA N ÚA R 2 0 2 1