Fréttablaðið - 07.01.2021, Page 29

Fréttablaðið - 07.01.2021, Page 29
Það var nokkuð afgerandi munur á efstu þremur bílunum og öðrum í vinsældum á árinu 2020. Í fyrsta skipti er vinsæl- asti bíllinn hreinn rafmagns- bíll, enda fluttur inn í skips- förmum snemma á árinu, en Tesla seldi 856 slíka á árinu. Samk væmt f rétt at ilk y nning u frá Bílgreinasambandinu voru nýskráningar nýrra fólksbíla 9.369 talsins á árinu 2020. Er það undir meðaltali síðustu ára og um 20,1% færri bílar en voru nýskráðir á árinu 2019 þegar þeir voru 11.728 talsins. Einstaklingar keyptu til að mynda 7,1% f leiri fólksbíla en árið 2019 og almenn fyrirtæki keyptu sömuleiðis 7,1% f leiri fólksbíla. Bílaleigur drógu hins vegar úr kaupum um 57,4% á milli ára og því ljóst að heildarsamdráttinn má fyrst og fremst rekja til minni umsvifa í ferðaþjónustunni, sem á sér augljósar skýringar. Toyota vinsælasta merkið Það er athyglisvert að skoða sölu merkja í tölum Samgöngustofu, en samkvæmt þeim er Toyota vin- sælasta bíltegundin með 1.383 selda bíla á árinu sem er 14,8% markaðs- hlutdeild. Munar þar mest um sölu á RAV4 og Land Cruiser en einnig komst Corolla á lista með um 140 bíla og Yaris með 235 bíla. Í öðru sæti yfir vinsælustu merkin er Kia með 9,9 % markaðshlutdeild og 929 selda bíla. Eru það bílar eins og Kia Niro, Sorento, Ceed og Sportage sem halda uppi sölunni þar. Þriðja vin- sælasta merkið er Tesla með 9,6% af markaðinum en Model 3 sér nánast einn um að halda uppi sölu 903 bíla í heildina. Volkswagen er fjórða mest selda merkið en var í þriðja sæti í fyrra. Nissan og Ford hafa dottið niður um nokkur sæti en í stað þeirra hefur Hyundai komist í fimmta sætið með 697 selda bíla. Nærri þreföldun á sölu rafbíla Árið 2020 var einstakt þegar kemur að skráningum nýorkubíla (rafmagn, tengiltvinn, hybrid og metan) og varð stórt stökk á milli ára í nýskráningum þeirra, sem hlutfall af heildarskráningum. Samtals stóð þessi hópur bíla fyrir 57,9% nýskráninga en til saman- burðar var hlutfallið 27,6% árið 2019. Hreinir rafmagnsbílar fóru þarna fremstir í f lokki með 25,2% af öllum nýskráningum eða 2.920 bíla miðað við 1.178 í fyrra. Þar næst komu tengiltvinnbílar með 19,9%, hybrid bílar með 12,5% og metanbílar með 0,4% en þar seld- ust aðeins 42 miðað við 69 í fyrra. Vinsælasti hreini raf bíllinn var eins og áður sagði Tesla Model 3 en næstur kom Nissan Leaf með 184 bíla. Þriðji var Audi e-Tron 50 með 163 selda bíla, en nýjasti bíllinn í f lokki hreinna raf bíla er ID.3 sem er kominn með 124 bíla á árinu. Helmingi fleiri bifhjól skráð Þegar aðrir ökutækjaf lokkar eru skoðaðir má sjá að hjólhýsi voru 606 skráð á árinu sem er talsverð aukning síðan í fyrra, og munar þar líklega talsvert um ferðalög innanlands hjá landanum í sumar. Dráttarvélar voru 461 talsins miðað við 408 í fyrra. Bifhjól voru samtals 827 sem er rúmlega helmingsaukn- ing frá árinu 2019 þegar þau voru samtals 408. Eru tölur yfir þung bifhjól og torfæruhjól svipaðar og í fyrra en létt bifhjól 447 á móti 33 í fyrra. Telur þar eflaust mest að farið er að skrá létt bifhjól í f lokki 1, sem stundum eru kallaðar gangstéttar- vespur. Hópbifreiðar eru aðeins 43 skráðar á árinu í báðum flokkum, en voru 119 í fyrra og þar spila áhrif heimsfaraldursins greinilega inn í. Takk fyrir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur þakkar öllum velunnurum sínum innilega fyrir veittan stuðning. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Hátúni 12b 105 Reykjavík BÍLAR Tesla hefur hingað til verið mest selda rafbíla- merkið í Noregi en nú kemur VW Group sterkt inn. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Tesla Model 3 mest seldi bíll ársins á Íslandi Tesla Model 3 kom, sá og sigraði árið 2020 með 856 slíka skráða á árinu, sem fylltu Sundahöfnina á tímabili. Gangstéttarvespur sáu um að fjölga skráningum bifhjóla um helming. Athyglisvert er að sjá miklar sveiflur milli ára vegna tilkomu rafbílanna. Toyota byrjar nýtt ár með krafti og býður til bílasýningar laugardaginn 9. janúar hjá viðurkenndum söluað- ilum í Kauptúni, á Selfossi, Akureyri og í Reykjanesbæ. Fjórir fjórhjóladrifnir bílar verða í aðalhlutverki, nýr Highlander Hybrid sem nú er frumsýndur á Íslandi, 70 ára afmælisútgáfa Land Cruiser með aflmeiri vél, nýr Hilux með stærri vél og aukinni dráttar- getu og RAV4 Hybrid og Plug in Hybrid. Nýr Toyota Highlander Hybrid kemur nú á markað í fyrsta sinn í V-Evrópu og þar með á Íslandi. Góð reynsla er komin á Highlander víða um heim frá því hann kom fyrst á markað árið 2000. Highlander er stór sportjeppi með mikið innanrými, tveggja tonna dráttargetu og veghæð sem sæmir jeppa eða 20,3 cm. Hröðun frá 0-100 km/klst. er 8,3 sek. Nýr Toyota Hilux verður sýndur með verulegum breytingum. Ber þar hæst ný vél sem er 2,8 lítra í stað 2,4 lítra. Ný fjöðrun er komin í Hilux ásamt f leiri breytingum. 33" breyting með heilsársdekkjum og felgum fylgir þegar keyptir eru aukahlutir fyrir 300.000 kr. eða meira hjá viðurkenndum söluað- ilum Toyota. Verðmæti kaupaukans er um 570.000 kr. Toyota Land Cruis er heldur upp á 70 ára afmæli á þessu ári og er nú kominn með endurbætta vél sem eykur af l og hröðun bílsins. Fjórir fjórhjóladrifnir á fjórum stöðum Toyota frumsýnir um helgina nýjan Highlander auk nýrrar útgáfu af Hilux. Samkvæmt fréttaveitunni CNN Business hefur Noregur farið fram úr markmiðum sínum í sölu raf bíla á síðasta ári en 54% bíla sem seldir voru í landinu árið 2020 voru raf- bílar. Tesla hafði hingað til verið mest selda raf bílamerkið þar í landi en nú bregður svo við að Volkswagen Group kemur sterkt inn og selur meira. Alls var hlutfall raf bíla 42% af sölu árið 2019 en þá var mest seldi bíllinn Tesla Model 3. Í fyrra var það hins vegar Audi e-tron sem seldist meira en alls seldust 9.227 slíkir í Noregi árið 2020. Tesla seldi samt vel af Model 3 og hefði eflaust selt f leiri bíla ef þeir hefðu átt þá til, en alls seldust 7.770 slíkir. VW ID.3 kom skammt á eftir með 7.754 bíla, en hann kom á markað síð- sumars í Noregi. Athyglisvert er að Volkswagen er að koma inn af krafti með framleiðslugetu sína og Tesla virðist ekki geta haldið lengur for- skoti sínu þess vegna. Í Noregi er eftir sem áður mikill skattaafsláttur af raf bílum og greinilegt er að almenningur er dug- legur við að nýta sér það. Afsláttur- inn verður til þess að í raun verður ódýrara að kaupa raf bíl en sam- bærilegan bíl með brunahreyf li. Þessu til viðbótar njóta ökumenn raf bíla fríðinda eins og að mega aka á strætóreinum og borga minni veggjöld og fyrir ferjuleiðir. Í Nor- egi eru nú 10.000 hleðslustöðvar fyrir almenning og hvergi eru fleiri hleðslustöðvar miðað við höfða- tölu. Meirihluti sölu 2020 rafbílar í Noregi Vinsælasti rafbíllinn í Noregi var Audi e-tron sem fór fram úr Tesla Model 3 með 9.227 slíka selda. E-Tron 50 n 2020 n 2019 0 100 200 300 400 500 600 700 800 900 Model 3 Rav 4 Out- lander Land cruiser (150 series) Niro Yaris og Yaris Hybrid Kona Leaf ✿ Samanburður á söluhæstu bílunum 2019 og 2020 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 7 . J A N Ú A R 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.