Bæjarins besta

Útgáva

Bæjarins besta - 24.03.1987, Síða 4

Bæjarins besta - 24.03.1987, Síða 4
4 BÆJARINS BESTA ORKUBÚ VESTFJARÐA Laus staða í fjármáladeild er laust til umsóknar starf afgreiðslugjaldkera. Þetta er heilsdagsstarf og laun eru skv. kjarasamningum F.O.S. Vest. Skriflegar umsóknir þar sem fram koma m.a. upplýsingar um menntun og fyrri störf óskast sendar Orkubúi Vestfjarða, Stakkanesi 1, ísa- firði, fyrir 1. apríl. Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri fjármála- deildar, Guðmundur Halldórsson, í síma 3211. BB fær jákvætt svar frá Noregi: Helgi Ragnarsson þjálfar meistaraflokk ÍBÍ Gamli jaxlinn úr FH í Hafnarfirði, Helgi Ragnarsson, sem nú er handknattleiksþjálfari hjá Fred- riksborg í Oslo, verður þjálfari meistaraflokks ÍBÍ í sumar. Við á BB fréttum að þetta hefði verið rætt og beðið væri eftir svari frá Helga, svo að við hringdum út á föstudaginn og fengum afdráttar- laust svar frá honum. Helgi kvaðst vera samnings- bundinn við Fredriksborg til maíloka. Hann sagðist þó koma fyrr til ísafjarðar, en ekki væri enn Ijóst hvort það yrði um pásk- ana eða ekki fyrr en í lok apríl. Það fer eftir því, hvort lið hans kemst í fjögurra liða úrslit („Slutt- spillet") eða ekki. Helgi Ragnarsson er 35 ára að aldri. Hann spilaði með meistara- flokki FH um margra ára skeið, eða frá 1968 til 1983. Árið 1984 var hann stðan þjálfari liðsins ásamt Inga Birni Albertssyni, með góðum árangri. Auk þess þjálfaði hann kvennlið FH árin 1974-76, og sumarið 1978 brá hann sér austur á land og þjálfaði Þrótt í Neskaupstað. í samtalinu við BB sagðist Helgi ekki hafa séð neitt sem heitið gæti til ÍBÍ-liðsins síðan það var í 1. deild. Hann kvaðst aftur á móti vera bjartsýnn á sumarið og vonaðist til þess að ýmsir gamlir og góðir burstuðu rykið af takkaskónum og kæmu til liðs við ÍBÍ. Hann sagðist vita að í liðinu væri samhentur (sam- fættur?) kjarni sem hefði verið með undanfarin ár, en auk þess væru margir snjallir leikmenn á leiðinni upp úr yngri flokkunum. Helgi sagðist ekki ætla að spila sjálfur með meistaraflokki, því að hann hefði ekki spilað lengi, en allt í lagi væri að spila með B-liðinu, eins og hann orðaði það. Eldavél Til sölu Rafha eldavél. Upþlýsingar í síma 3849. Toyota Til sölu Toyota Hi-Lux 4x4 árgerð 1980. Lengri gerð. Uppl. í símum 3132 og 4995. Datsun 180 B Til sölu Datsun 180 B Station. Ekinn 94 þús. km. Árgerð 1978. Mjög gott ásigkomulag. Uþpl. í síma 4318. Barngóð kona Vill einhver barngóð kona passa fyrir mig tæplega 2 ára strák og 4 ára stelpu (er á leikskóla e.h.) 6-7 daga í mánuði. Vinsamlegast hafið samband við mig í síma 3983. Kristín Karlsd. í 4863 Til sölu er bifreiðin í-4863 sem er Daihatsu Charade Run- about árgerð 1983. Ekinn 64 þús km. Sjálfskiptur. Skipti koma ekki til greina. Uppl. í síma 3772 eftir kl. 19. Rúm Til sölu rúm, 115x200 cm. Upplýsingar í síma 4375. Heiða Björk Jóhannsdóttir: Ég myndi bara kaupa saumavél. Halldor Guðmundsson: Fjárfesta eitthvað og skella mér til útlanda. Elín Tryggvadóttin Ég myndi reyna að kaupa eitt- hvað sem mig langar í. Hvað myndir þú gera ef þú ynnir milljón? Óskar Þór Lárusson: Ég myndi kaupa landið.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.