Málfríður - 2016, Page 10
var haldin í risastóru alþjóðlegu ráðstefnuhúsi, ICC,
í Birmingham í Englandi og var mjög vel skipulögð.
Frá morgni til kvölds römbuðu þúsundir kennara frá
öllum heimshornum um ráðstefnuhúsið frá einum
fyrirlestri til annars. Í fyrstu störðum við opinmynntar
hvor á aðra og veltum því fyrir okkur hvaða nörda-
samkomu við værum eiginlega komnar á, en fljótlega
urðum við samdauna kliðnum og ákafanum og byrj-
uðum að sjúga í okkur þekkinguna eins og mauraætur
í Mósambík.
Við höfðum tilhneigingu til að velja fyrirlestra sem
gengu út á nýjungar í tækni og orðaforðakennslu, enda
langaði okkur til þess að koma heim aftur með eitt-
hvað nothæft í farteskinu. Sumt var spennandi, annað
veitti innblástur og svo voru einstaka málstofur sem
minna höfðuðu til okkar. Hæfileikann til að greina
hismið frá kjarnanum öðlast maður örugglega með því
að mæta árlega á IATEFL. Við upplifðum okkur fremur
illa þjálfaðar á ráðstefnusviðinu og urðum stundum
International Association for Teachers of English as
a Foreign Language (IATEFL) ráðstefnan var haldin
í fimmtugasta skipti 13.-16. apríl síðastliðinn en við
stöllurnar vorum að taka þátt í fyrsta sinn. Ráðstefnan
10 MÁLFRÍÐUR
Lilja Ágústa Guðmundsdóttir og Sólrún Inga Ólafs-
dóttir, enskukennarar við Borgarholtsskóla
Bitnar af IATEFL-æðinu