Skessuhorn - 20.05.2020, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 21. tbl. 23. árg. 20. maí 2020 - kr. 950 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Tilboð gildir út maí 2020
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
Bérnaise burger meal
1.890 kr.
MáltíðÁ sjötta tímanum síðastliðið mánu-
dagskvöld kom upp eldur í þurrum
og viðkvæmum gróðri í Grábrók-
arhrauni í Norðurárdal. Eldsupp-
tök voru skammt frá Paradísarlaut.
Tiltækur mannskapur frá Slökkvi-
liði Borgarbyggðar var kallaður til
sem og mannskapur frá Slökkviliði
Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Síð-
ar um kvöldið barst auk þess liðs-
auki frá Brunavörnum Suðurnesja.
Þannig voru hátt í eitt hundrað
manns sem börðust við eldana og
sinntu gæslu, en slökkvistarfi lauk
tólf tímum síðar. Lauslega áætlað
brunnu 10-15 hektarar lands, eink-
um mosi og kjarr sem vex í úfnu
hrauninu á svæði milli þjóðvegarins
og Norðurár. Ljóst er að gríðarlegt
tjón hefur orðið á gróðri og langur
tími mun líða þar til ásýnd svæðis-
ins verður söm.
Svæðið sem eldarnir brunnu á
er erfitt yfirferðar og engir veg-
slóðar liggja þar um. Aðstæður til
slökkvistarfs voru því með versta
móti. Slökkvibílar komast ekki að
eldinum nema frá tveimur stöðum,
annars vegar frá þjóðveginum og
hins vegar frá malarnámu skammt
suðvestan við Tröð. Slökkviliðs-
menn urðu því að leggja út mörg
hundruð metra af slöngum og bún-
aði til að sprauta á eldinn. Einnig
var notast við klöppur. One Seven
froðubílar frá Slökkviliði Akra-
ness og Hvalfjarðarsveitar reyndist
einkar notadrjúgur í þessu verkefni
en froðan sjöfaldar virkni vatnsins.
Bót í máli var að suðlægur fremur
hægur vindur var á svæðinu meðan
á þessu stóð.
Lögregla og björgunarsveit-
ir stýrðu umferð á þjóðveginum
framhjá vettvangi enda var mjög
blint á kafla vegna reyks. Umferð
var einungis leyfð í aðra áttina í
einu og fóru björgunarsveitarmenn
fyrir bílalestunum. Flugumferð var
bönnuð yfir svæðinu í fimm kíló-
metra radíusi, þar sem slökkviliðs-
menn notuðu dróna til að meta um-
fang og útbreiðslu eldsins. Engin
mannvirki eru á svæðinu sem brann
og því enginn mannskapur í hættu.
Aðspurður segir Bjarni slökkviliðs-
stjóri að eldsupptök liggi ekki fyrir,
en hann reiknar með að eldurinn
hafi byrjað skammt frá Paradísar-
laut.
Bjarni slökkviliðsstjóri vill nota
þetta tækifæri og benda á mikilvægi
þess að ríkisvaldið komi landstórum
sveitarfélögum til aðstoðar svo þau
geti tekist á við þá náttúruvá sem
gróðureldar eru. Hættan á þeim er
sífellt að aukast t.d. vegna veðurfars
og minni búfjárbeitar. „Mér finnst
ríkisvaldið sýna þessu lítinn skiln-
ing. Það vantaði þó ekkert upp á
að í kjölfar Mýraeldanna 2006 var
blásið til ráðstefna og skýrslugerð-
ar um viðbrögð við gróðureldum í
náttúru landsins. Þær skýrslur hafa
hins vegar ekki skilað neinum ár-
angri til aukins stuðnings við okk-
ur sem sinnum brunavörnum og
slökkvistörfum. Gróðureldar eru
vaxandi náttúruvá hér á landi og
geta eins og dæmin sanna blossað
upp hvar sem er. Við vorum ein-
faldlega heppin að í þessu tilfelli
brann fjarri mannabústöðum,“ seg-
ir Bjarni.
Sjá myndasyrpu frá baráttunni
við eldana á bls. 14-15. mm
Gróðureldar í Grábrókarhrauni
Slökkviliðsmenn sprauta One Seven froðu á glæður í mosavöxnu hrauninu skammt vestan við Paradísarlaut. Ljósm. mm.
Snorri Kristleifsson flugmaður flaug yfir svæðið skömmu eftir að eldurinn hafði
breiðst út. Svæðið liggur miðja vegu milli fossanna Laxfoss sem er í forgrunni og
Glanna. Ljósm. sk.
sími 437-1600
Verið ávallt
velkomin í
Landnámssetur
Frá og með 18. maí
er Landnámssetrið opið alla daga
frá kl. 10:00 – 21:00
Starfsfólk okkar
tekur með ánægju
á móti ykkur
Bókaðu tíma í þægilegri bankaþjónustu
arionbanki.is
Útibúið okkar í Borgarnesi er opið alla virka daga kl. 12.30�16.00 þar til nýjar
leiðbeiningar um samkomur verða gefnar út.
Við leggjum enn áherslu á tímabókanir í útibúinu og hvetjum viðskiptavini til að
bóka fund með því að panta símtal á arionbanki.is. Við hringjum síðan til baka og
festum tíma.
Við hvetjum viðskiptavini til þess að nýta áfram stafrænar þjónustuleiðir bankans. Þú
�innur nánari upplýsingar og leiðbeiningar um notkun Arion appsins á arionbanki.is/app.
Þú getur líka haft samband við þjónustuverið í síma 444 7000.