Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2020, Side 2

Skessuhorn - 20.05.2020, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 20202 Nú þegar virk smit eru á hraðri niðurleið og samfélagið að opnast á ný skulum við ekki gleyma því að kórónuveiran gæti herjað á okkur á ný. Mun- um að gæta að hreinlæti og að halda okkur í hæfilegri fjar- lægð hvert frá öðru. Á morgun verður sunnanátt 8-13 m/s og skúrir, en yfir- leitt léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 8-15 stig og hlýjast norðaustanlands. Á föstudag er útlit fyrir austanátt og síðar norðaustanátt 8-13 m/s en 13-18 m/s við suðaust- urströndina. Skýjað og fer að rigna á Austurlandi um kvöld- ið. Hiti frá sjö stigum austast á landinu en upp í 16 stig á Norður- og Vesturlandi. Á laug- ardag er útlit fyrir norðaust- anátt og rigningu um norð- an- og austanvert landið, bjart með köflum suðvestanlands. Hiti 5-15 stig, hlýjast sunnan- lands. Á sunnudag og mánu- dag verður breytileg átt og lík- ur á vætu í flestum landshlut- um og heldur kólnandi. Í síðustu viku spurðum við á vef Skessuhorns hvort lesend- ur hvort þeir noti reiðhjól sem ferðamáta. 67% svöruðu því neitandi, 24% nota reiðhjól sem ferðamáta á sumrin og 9% segjast nota reiðhjólin allt árið. Í næstu viku er spurt: Ætlar þú að kíkja í sund í þessari viku? Slökkviliðsfólk sem kom að því að slökkva gróðurelda í Grá- brókarhrauni unnu í hálfan sól- arhring að slökkvistarfi. Þetta eru Vestlendingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Undirbúa íþróttahúss- byggingu HVALFJSV: Búið er að gera grófa þarfagreiningu á nýju íþróttahúsi við Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit. Gerir hún ráð fyrir eitt þúsund fer- metra mannvirki sem verði viðbygging við sundlaugar- hlutann í Heiðarborg og að eldri íþróttasalur verði rifinn. Þetta kom fram á fundi mann- virkja- og framkvæmdanefnd- ar Hvalfjarðarsveitar 8. maí sl. Sveitarstjórn fjallaði um málið þriðjudaginn 12. maí og samþykkti tillögu nefnd- arinnar að heimila bygg- ingafulltrúa að leita tilboða hjá fjórum verkfræðistofum í þarfagreiningu, hönnun og útboðsgögn vegna byggingar nýs íþróttahúss. Verkfræði- stofurnar fjórar eru VSÓ, Verkís, Mannvit og EFLA. -kgk Íbúum fjölgar lítilsháttar VESTURLAND: íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 27 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. maí sl. Það jafn- gildir 0,2% fjölgun. íbúar á Vesturlandi eru nú 16.693 að tölu. Hlutfallslega fjölg- aði mest í Eyja- og Mikla- holtshreppi á tímabilinu, eða um 4,8%, og í Snæfellsbæ um 1,8%. íbúum Stykkishólms- bæjar fækkaði um 16, sem jafngildir fækkun um 1,3% og í Helgafellssveit fækkaði um einn íbúa sem jafngild- ir 1,5%. Lítilsháttar fækk- un varð í tveimur landshlut- um; Vestfjörðum og á Norð- urlandi eystra. íbúum á höf- uðborgarsvæðinu fjölgaði um 1.460 á tímabilinu og á Suð- urlandi um 340 en íbúum á Vestfjörðum fækkaði um 20 íbúa og íbúum á Norðurlandi eystra fækkaði um 39. -mm Veðurhorfur Undanfarin fjórtán ár hefur Land- búnaðarháskóli íslands leigt reiðhöll og tengda aðstöðu að Mið-Fossum í Andakíl til kennslu í reiðmennsku og umhirðu hrossa. Mannvirkin eru öll í eigu Ingimundar hf., fjölskyldu Ármanns Ármannssonar heitins. „Aðstaðan á Mið-Fossum hentar Landbúnaðarháskólanum einstak- lega vel og staðsetningin er ákjós- anleg. Umgjörðin er góð og býður upp á einstaka möguleika til útrásar og tekjuöflunar á þessu sviði meðal annars í tengslum við mikinn áhuga á íslenska hestinum erlendis,“ segir Ragnheiður I Þórarinsdóttir, rekt- or Lbhí. Nýr leigusamningur var endur- nýjaður síðastliðinn fimmtudag og samhliða ákveðið að unnið verði að leiðum til þess að skólinn geti eign- ast Mið-Fossa til framtíðar. „Kaup á Mið-Fossum eru skynsamleg bæði út frá nýtingar- og fjárhags- sjónarmiðum. Með aðstöðunni þar yrði til grundvöllur fyrir sam- þættri landbúnaðarmiðstöð sem eflir starfsemi skólans auk þess sem miklir möguleikar skapast til sam- nýtingar sem bæði eflir starfsemi skólans og skapar aukna möguleika til tekjusköpunar. Hér er bæði horft til útrásar með námskeið sem skap- ar skólanum sterkan sess og aukinn sýnileika og bættrar nýtingar á hús- næði skólans að Hvanneyri, bæði skólahúsnæðis og gistirýmis,“ segir í tilkynningu. mm/ Ljósm. LhhÍ. Við afgreiðslu ársreiknings Akra- neskaupstaðar 12. maí sl. fyrir árið 2019 lögðu bæjarfulltrúar Sjálf- Vilja skoða að Höfða verði breytt í sjálfseignarstofnun Hlíðasmára 19, 2 hæð, 201 Kópavogur Sími: 534 9600 | Netfang: heyrn@heyrn.is Heyrðu umskiptin fáðu heyrnartæki til reynslu Löggiltur heyrnar- fræðingur SK ES SU H O R N 2 01 9 stæðisflokks, sem skipa minnihluta í bæjarstjórn, fram bókun vegna rekstrar og afkomu bæjarsjóðs. í henni færðu þeir meðal annars í tal þá þröngu stöðu sem hjúkrunar- og dvalarheimili víðs vegar um land- ið eru í. Víðast duga tekjur ekki til að standa undir lögbundinn- ar starfsemi. í bókun bæjarfulltrú- anna segir m.a.: „Áhyggjuefni er að Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði sé rekið með tapi þrátt fyrir að bagga lífeyrisskuldbindinga hafi verið létt af starfseminni. Ljóst er að fjárveitingar ríkisins duga ekki til standa undir lögbundinni starf- semi hjúkrunarheimila og eng- ar vísbendingar eru um að breyt- ing verði þar á. Nú er svo komið að sveitarfélög treysta sér ekki til að sinna rekstri nýrra hjúkrunarheim- ila og önnur íhuga að skila hjúkr- unarheimilum í rekstri til ríkisins. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka því þann vilja sinn að lokið verði við athugun á því hvort hag- kvæmara sé breyta Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða í sjálfseign- arstofnun.“ mm Endurnýjun leigusamnings um Mið-Fossa og skoða kaup Skrifað var undir endurnýjaðan samning í hesthúsinu að Mið-Fossum. Ármann Fr. Ármannsson skrifar undir fyrir hönd Ingimundar hf. og Ragnheiður I. Þórarins- dóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þar sem heimild til flutnings aflamarks í botnfisktegundum yfir á næsta fiskveiðiár er aukin tímabund- ið úr 15% í 25%. Er þetta gert til að stuðla að meiri sveigjanleika við veiðar og vinnslu til að bregðast við áhrifum COVID-19 á íslensk- an sjávarútveg. „Samkvæmt gögnum Fiskistofu var hlutfall landaðs botnfiskafla 65% hinn 15. maí sl. en var tæp 70% á sama tíma í fyrra. Mikill samdráttur í eftirspurn eftir fersk- fiski í heiminum í kjölfar CO- VID-19 er helsta ástæða þessarar lækkunar en einnig hefur dregið úr eftirspurn fyrir frosnum afurðum á síðustu vikum. Við þær aðstæður var talið rétt að veita tækifæri til frekari sveigjanleika við veiðar og vinnslu með því að hækka heimild til flutnings úr 15% í 25%,“ segir í tilkynningu. mm Vænn þorskur úr Eskey ÓF á kajanum á Akranesi fyrr í þessum mánuði. Aukið svigrúm til að flytja aflamark milli ára

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.