Skessuhorn - 20.05.2020, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 20206
Fasteignavið-
skipti í apríl
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 48 samningum um
húsnæði þinglýst í aprílmán-
uði. Þar af voru 26 samn-
ingar um eignir í fjölbýli, 15
samningar um eignir í sérbýli
og sjö samningar um annars
konar eignir. Heildarveltan
var 2.024 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 42,2
milljónir króna. Af þessum 48
voru 35 samningar um eign-
ir á Akranesi. Þar af voru 24
samningar um eignir í fjöl-
býli, tíu samningar um eign-
ir í sérbýli og einn samningur
um annars konar eign. Heild-
arveltan var 1.682 milljón-
ir króna og meðalupphæð á
samning 48,1 milljónir króna.
-mm
Fella niður
hátíðarhöld
HVALFJ.SV: Samkvæmt
fundargerð sveitarstjórn-
ar Hvalfjarðarsveitar frá 12.
maí hefur verið fallist á til-
lögu menningar- og mark-
aðsnefndar sveitarfélagsins að
fella niður hefðbundin hátíð-
arhöld 17. júní í Heiðarskóla.
Ákveðið var að falla frá hefð-
bundnum hátíðarhöldum
vegna Covid-19 ástandsins en
verið er að skoða möguleika á
að streyma dagskrá á netinu.
-arg
Selja Norðmönn-
um laxakælikerfi
AKRANES: Stærsti framleið-
andi Atlantshafslax í heiminum,
Mowi í Noregi, hefur ákveðið
að setja upp íslaust ofurkæling-
arkerfi frá Skaganum 3X í nýja
verksmiðju sem er í byggingu
á Herøy í Noregi. „Við erum
stöðugt að vinna með lausn-
ir sem minnka kolefnisfótspor
okkar í gegnum alla virðiskeðj-
una. Þetta kerfi er hluti af því
sem gerir laxframleiðsluna enn
sjálfbærari,“ segir Ørjan Tvei-
ten, svæðisstjóri Mowi Nord í
tilkynningu. Verksmiðjan verð-
ur stærsta laxaverksmiðjan sem
mun nota þessa kælitækni frá
Skaganum 3X. „Þetta er mik-
ilvægur áfangi fyrir okkur þar
sem þetta er enn ein staðfest-
ingin á því að framtíðin í kæl-
ingu og varðveislu sjávarfangs
liggur í þessari nýjung okkar
sem er íslaus ofurkæling,“ seg-
ir Magni Veturliðason fram-
kvæmdastjóri Skagans 3X AS í
Noregi. -mm
Myndavélabíllinn
á ferðinni
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturlandi var við hraða-
eftirlit á myndavélabíl embætt-
isins víða á Snæfellsnesi í síð-
ustu viku. Þriðjudaginn 12. maí
fór hann víða. Milli 9 og 10 að
morgni dags var hann á Snæ-
fellsnesvegi við Eiðhús, þar sem
hámarkshraði er 90 km/klst.
Alls voru 28 ökutæki hraðamæld
og sex ökumenn kærðir. Sá sem
hraðast ók var á 127 km hraða.
Síðdegis sama dag var bíllinn í
Grundarfirði og mældi hraða
við Grundargötu, þar sem há-
markshraði er 35 km/klst. Alls
voru 33 ökutæki mæld og tveir
kærðir. Sama dag var bíllinn við
Ólafsbraut í Ólafsvík þar sem
mældir voru 47 bílar og þrír
ökumenn kærðir. Daginn eftir,
miðvikudaginn 13. maí, var bíll-
inn við hraðamælingar á ýmsum
stöðum í Stykkishólmi þar sem
er 50 km hámarkshraði. Alls var
hraði 41 bifreiðar mældur og
tveir ökumenn voru kærðir. Að
sögn lögreglu virðist ástandið
hafa verið nokkuð gott á Snæ-
fellsnesi almennt, með tilliti
til hraðaksturs. Á mánudaginn
var myndavélabíllinn á Akra-
nesi og mældi hraða 69 bifreiða
við Akraneshöll milli 11:30 og
12:30, þar sem hámarkshraði er
30 km/klst. Átta ökumenn voru
kærðir og sá sem hraðast ók var
á 55 km hraða á klst. Lögregla
minnir á að þetta sé hættuleg-
ur staður þar sem grunnskóla-
börn eru á ferð milli skóla og
íþróttahúss og segir að eftirliti
þar verði sinnt áfram. -kgk
Átök í skóla
AKRANES: Átök komu upp
milli tveggja nemenda sem lent
hafði saman í skóla á Akranesi
í vikunni sem leið. Lögregla og
sjúkrabíll voru kölluð á vett-
vang. Rætt var við kennara, for-
eldra og skólastjórnendur vegna
þessa og barnaverndaryfirvöld-
um gert viðvart. -kgk
Að undanförnu hafa staðið yfir
breytingar á versluninni í Búðardal
og var Krambúð opnuð þar síðast-
liðinn föstudag. Frá því í október
2017 hefur Samkaup rekið verslun í
Búðardal undir merkjum Kjörbúð-
arinnar, en áður var rekin þar versl-
un Samkaup Strax. „Nú horfum við
fram á mikla óvissu og algjörlega
óvíst hvernig framtíðin verður, eng-
inn erlendur ferðamaður er á land-
inu og óvíst hvernig ferðamennsk-
an verður í sumar. Við ákváðum því
að breyta um búðargerð sem hentar
betur til að mæta þeirri eftirspurn
sem við sjáum fyrir og reyna að hafa
upp í það mikla sölutap sem við
erum að verða fyrir,“ segir Gunnar
Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri
verslunarsviðs Samkaupa, í samtali
við Skessuhorn.
„Krambúðin er
samkeppnishæf“
Dalamenn hafa lýst áhyggjum yfir
því ef breytingin komi til með
að hafa í för með sér hærra vöru-
verð. Til að mynda lýsti byggðarráð
Dalabyggðar einmitt þeim áhyggj-
um þegar stjórnendur Samkaupa
kynntu fyrirhugaða breytingu á
fundi ráðsins fimmtudaginn 7. maí
síðastliðinn, eins og fram kemur í
fundargerð. Þeir Dalamenn sem
Skessuhorn hefur rætt við undan-
farna daga hafa tekið í sama streng.
„Krambúðin er samkeppnishæf
við aðra aðila á markaði og við ætl-
um að vera góð í að uppfylla þarfir
og langanir viðskiptavinarins í tíma,
nákvæmlega þegar þær koma upp,“
segir Gunnar Egill. „Það gerum
við með því að vera með lykilvörur
heimilisins á hagstæðu verði, lengri
opnunartíma en við stefnum á að
hafa opið frá 9-21 í sumar, frábæru
„taktu með“ kaffi, öflugu og flottu
„bakað á staðnum“ vöruvali ásamt
góðu hraðeldunar- og skyndibitaúr-
vali,“ bætir hann við.
Engar breytingar
á starfsliði
Samkaup rekur rúmlega 60 versl-
anir um land allt og Gunnar seg-
ir að sú niðursveifla sem framund-
an sé komi til með að snerta rekst-
ur nær allra þeirra verslana. Hann
segir enn fremur að engar breyting-
ar verði hvað varðar starfsfólk versl-
unarinnar í Búðardal með breyting-
unni frá Kjörbúð yfir í Krambúð.
„Sem við teljum lykilatriði en það
hefur staðið vaktina með okkur og
mikilvægt að svo verði áfram,“ segir
Gunnar Egill. Eins og fyrr segir var
verslunin opnuð síðastliðinn föstu-
dag. kgk/ Ljósm. sm.
Í tilefni opnunarinnar veittu Samkaup þrjá samfélagsstyrki, 75 þúsund krónur
hvern. Þá hlutu Ungmennafélagið Ólafur Pá, Slysavarnadeild Dalabyggðar og
Foreldrafélag Auðarskóla.
Krambúð í stað Kjörbúðar í Búðardal
Frá fyrsta opnunardegi Krambúðarinnar.
Svipmynd úr versluninni.