Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2020, Qupperneq 7

Skessuhorn - 20.05.2020, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 2020 7 Velferðar- og mannréttindasvið Endurhæfingarhúsið Hver - fjölbreytt verkefni Skrifstofa velferðar- og mannréttindasviðs Fjöliðjan vinnu- og hæfingarstaður Frístundastarf með fötluðum Búsetuþjónusta fatlaðra Félagsstarf aldraða Stuðnings- og stoðþjónusta Sértækt úrræði barnaverndar (Holtið) Skóla- og frístundasvið Greining á stöðu og tækifærum vegna innleiðingu á heilsueflandi og barnvænu samfélagi Frístundastarf, leikjanámskeið og liðveisla barna Guðlaug - heit laug við Langasand Leikskólar á Akranesi Skipulags- og umhverfissvið Aðstoð við byggingarfulltrúa Aðstoð á skipulags- og umhverfissviði Mælingarverkefni (hæðarmælingar og úrvinnsla) Umhirða og viðhald á fasteignum sveitarfélagsins Mótun, umhirða og viðhald opinna svæða Stjórnsýslu- og fjármálasvið Innleiðing verkefnis á sviði nýsköpunar og þróunar Efling stafrænnar þjónustu sveitarfélagsins Mannauðsmál (starfsmannahandbók og innri vefur) Menningar- og safnamál Þróun safnfræðslu Unnið er í samvinnu við Vinnumálastofnun og er þetta tiltekna úrræði bundið eftirfarandi skilyrðum: Ráðningarsambandið varir að hámarki í tvo mán-• uði og skal eiga sér stað á tímabilinu 1. júní til og með 31. ágúst næstkomandi. Starfstímabilið innan þessa ramma er umsemjanlegt. Starfs- hlutfallið er 100% á ráðningartíma. Skilyrði er að umsækjendur hafi búsetu • í sveitarfélaginu. Umsækjendur verða að uppfylla þau skilyrði að • hafa stundað nám á vorönn 2020 og séu skráðir í nám haustið 2020. Skila þarf staðfestingu frá skóla um slíkt með umsókn. Námsmenn þurfa að ná 18 ára aldursmarki á • árinu eða vera eldri. Umsóknarfrestur er til og með 24. maí næst- komandi og skal fylgja öllum umsóknum ferilskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni viðkomandi til starfsins. Auk þess verður að fylgja með staðfesting frá skóla um skólavist á vor- og haustönn 2020. Störfin henta öllum kynjum. Nánari upplýsingar má finna á www.akranes.is/lausstorf Akraneskaupstaður opnar fyrir umsóknir vegna sumarátaksstarfa námsmanna SK ES SU H O R N 2 02 0 Ríkisstjórn Íslands samþykkti nýverið sérstakt framlag til sumarátaksverkefna fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Markmiðið er að fjölga tímabundið störfum fyrir þennan markhóp þar sem þau eiga engan eða takmarkaðan rétt til atvinnuleysisbóta. Samtals hefur verið úthlutað 1000 störfum til sveitarfélaga og fékk Akraneskaup- staður samtals 35 störfum úthlutað. Akraneskaupstaður auglýsir nú 20 störf laus til umsóknar og verður í nokkrum störfum ráðið fleiri en einn til starfa. Um er að ræða ný störf, í þeim skilningi að þau eru umfram áætluð sumarstörf kaupstaðarins. Störfin eru svohljóðandi: SK ES SU H O R N 2 02 0 PEERS námskeið í félags- færni fyrir 11-15 ára krakka Frá byrjun september 2020 til desember 2020 verður haldið PEERS námskeið í félagsfærni fyrir 12-15 ára krakka og foreldra/ forráðamenn þeirra. Námskeiðið fer fram vikulega í Þorpinu. Aðeins tíu krakkar geta skráð sig og fer skráning fram á netfangið dagny@brak.is. Námskeiðið fer fram vikulega í Þorpinu. Aðeins tíu krakkar geta skráð sig og fer skráning fram á netfangið dagny@brak.is. Leiðbeinendur námskeiðsins eru Berglind Ósk Jóhannesdóttir þroskaþjálfi, Berta Ellertsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Lilja Lind Sturlaugsdóttir þroska- þjálfi, Ruth Jörgensdóttir Rauterberg þroskaþjálfi, Sigríður Ragnars- dóttir náms- og starfsráðgjafi og Katrín Rós Sigvaldadóttir náms- og starfsráðgjafi. Á PEERS námskeiði í félagsfærni er markmiðið að: Barnið læri að eignast vini og halda þeim.• Að foreldri/forráðamaður læri að styðja barnið í að finna • sér viðeigandi vini. Að foreldri/forráðamaður læri leiðir til að styrkja færni barnsins • við að eignast vini. Að foreldri/forráðamaður læri leiðir til að efla félagslegt • sjálfstæði barnsins. Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst næstkomandi og kostar námskeiðið kr. 30.000. Vakin er athygli á því að hægt er að nýta tóm- stundastyrk sveitarfélaga fyrir námskeiðinu. Þegar umsóknarfrestur er liðinn verður haft samband við alla sem skráðu sig til að kanna hvort námskeiðið henti barninu og út frá því raðað í hópinn. Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is Nú er Markaðsstofa Vesturlands. í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, að setja af stað verk- efni til að efla viðburða- og menn- ingardagskrá á Vesturlandi í sum- ar. Verkefnið er styrkt af Sóknar- áætlun Vesturlands. „Markmiðið er að auka upplifun og dægradvöl til að laða að fleiri gesti og fá þá til að dvelja lengur á Vesturlandi og auðga lífsgæði íbúa, en ekki síður til að styðja við bakið á þeim sem vilja standa fyrir viðburðum og eflingu skapandi greina á Vesturlandi,“ seg- ir Margrét Björk Björnsdóttir, for- stöðukona Markaðsstofu Vestur- lands. „Þannig teljum við að þetta verkefni geti bæði stutt við ferða- þjónustu og þá sem vinna að menn- ingu, listum og skapandi greininum á Vesturlandi.“ Markaðsstofan hefur leitað eftir stuðningi sveitarfélaga á Vesturlandi við að undirbúa og vinna þetta verk- efni. „Við höfum biðlað til sveitar- félaganna um að deila upplýsingum um þetta verkefni bæði til þeirra stofnana innan sveitarfélagsins sem ástæða er til og út til íbúa eins og kostur er á. Við bendum einnig á að sveitarfélögin standa fyrir margvís- legum rekstri á t.d. söfnum, sýning- um, íþróttamannvirkjum og fleiru þar sem gætu falist mörg tækifæri til að setja upp viðburði eða móttöku sem hægt væri að setja í viðburða- dagskrána sem við ætlum að setja saman og kynna í sumar á Vestur- landi. Þar má t.d. benda á móttöku og leiðsögn í söfnum og sýningum, öðruvísi opnunartíma, ljóðalestur í laugunum, opna fjölskyldu-fót- boltaæfingu einu sinni í viku, vatns- leikfimi, síðdegiste í bókasafninu, opin bókarýni og samtal, bæjarrölt og hvaðeina sem sveitarfélögunum dettur í hug. Allt er vel þegið sem innlegg í þessa viðburðadagskrá og mun styrkja svæðin til sóknar,“ segir Margrét Björk. Nánari upplýsingar um verk- efnið gefur Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi Vesturlands á netfanginu; sigursteinn@ssv.is mm/ Ljósm. úr safni. Hvetja til menningarverkefna á Vesturlandi í sumar

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.