Skessuhorn - 20.05.2020, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 20208
Hraðakstur meira
áberandi
VESTURLAND: Hraðakst-
ursbrotum hefur farið verulega
fjölgandi undanfarnar vikur í
umdæmi Lögreglunnar á Vest-
urlandi. Algengt er að ökumenn
séu stöðvaðir á milli 110 og 120
km hraða á klukkustund á þjóð-
vegunum og jafnvel á meiri hraða
en það. Ökumaður var stöðvað-
ur á 52 km hraða á Borgarbraut í
Borgarnesi á miðvikudaginn í síð-
ustu viku, þar sem hámarkshraði
er 30 km/klst. Ökumaður viður-
kenndi brot sitt en lét jafnframt í
ljós óánægju sína með 30 km há-
markshraða. Þá var lögreglu til-
kynnt um hraðakstur í Borgarvík
í Borgarnesi í síðustu viku. Bíll-
inn fannst og rætt var við öku-
mann, sem lofaði bót og betrun.
Einnig var rætt við foreldra öku-
mannsins, þar sem hann hafði
ekki náð sjálfræðisaldri. Öku-
maður var stöðvaður á Vestur-
landsvegi við Stekk í síðustu viku.
Reyndist hann aka eftir að hafa
verið sviptur ökuréttindum og á
von á fjársekt fyrir athæfið. -kgk
Margir að masa
VESTURLAND: Lögreglan
á Vesturlandi segir áberandi að
fólk noti farsíma undir stýri. Hef-
ur komið til tals hjá lögreglu að
gera út óeinkenndan lögreglubíl
í umferðinni til að sinna eftirliti
með því sérstaklega. Sektir liggja
við notkun farsíma undir stýri,
eins og til dæmis sá sem gripinn
var við að tala í símann á Vestur-
landsvegi við Galtarholt í síðustu
viku fékk að kynnast. Þurfti hann
að reiða fram 40 þúsund krónur í
sekt. -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
9.-15. maí
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu
Akranes: 25 bátar.
Heildarlöndun: 36.795 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF-80:
5.097 kg í einum róðri.
Arnarstapi: 35 bátar.
Heildarlöndun: 280.485 kg.
Mestur afli: Bárður SH-811:
106.669 kg sjö róðrum.
Grundarfjörður: 24 bátar.
Heildarlöndun: 963.079 kg.
Mestur afli: Drangey SK-2:
401.313 kg í tveimur löndun-
um.
Ólafsvík: 47 bátar.
Heildarlöndun: 802.776 kg.
Mestur afli: Bárður SH-81:
147.438 kg í sjö róðrum.
Rif: 31 bátur.
Heildarlöndun: 672.891 kg.
Mestur afli: Magnús SH-205:
151.824 kg í fimm löndunum.
Stykkishólmur: bátar.
Heildarlöndun: 7.879 kg.
Mestur afli: Örn SH-240:
1.870 kg í þremur róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Drangey SK-2 - GRU:
216.897 kg. 10. maí.
2. Málmey SK-1 - GRU:
204.258 kg. 12. maí.
3. Drangey SK-2 - GRU:
184.416 kg. 14. maí.
4. Tjaldur SH-270 - RIF:
80.505 kg. 13. maí.
5. Sigurborg SH-12 - GRU:
68.793 kg. 10. maí.
-kgk
Velti undir
áhrifum
HELGAFELLSSV: Lögregla
var kölluð til laust fyrir klukk-
an hálf ellefu á föstudagskvöld
vegna bílveltu á Stykkishólms-
vegi við Skjöld. Lögregla kom
þar að bíl um 25 metra utan
vegar og brak úr bílnum var
á víð og dreif. Ökumaður sat í
bílnum og kenndi sér eymsla í
hálsi, baki og víðar en var með
meðvitund. Hann var einn í
bílnum og var fluttur á sjúkra-
húsið á Akranesi til aðhlynn-
ingar. Maðurinn er grunaður
um ölvun við akstur. Bifreið-
in er mikið skemmd eftir velt-
una. Þurfti að kalla til dráttar-
bifreið til að fjarlægja bílinn.
-kgk
Ómeiddur eftir
bílveltu
BORGARBYGGÐ: Bílvelta
varð á Borgarfjarðarbraut við
Heggsstaðaveg á fimmtudag-
inn. Ökumaður missti bílinn
út af veginum hægra megin
þar sem hann valt og endaði
á vinstri hliðinni. Ökumað-
ur, sem var einn í bílnum, var
í belti og taldi sig ómeiddan
en var fluttur með sjúkrabíl til
læknisskoðunar í Borgarnesi.
Bifreiðin er mikið skemmd
eftir veltuna. -kgk
Reynt að kveikja
í bíl
AKRANES: Maður kom á
lögreglustöðina á Akranesi
síðastliðinn miðvikudag og
greindi frá því að reynt hefði
verið að kveikja í bílnum hans
um nóttina. Bíllinn stóð við
Háholt frá kl. 10:00 að kvöld-
inu áður en þegar maðurinn
kom að bílnum um sexleytið á
miðvikudagsmorgun sá hann
tusku, sem greinilega hafði
verið kveikt í, hanga út úr elds-
neytistankinum. Tuskan hafði
þó ekki brunnið. Að sögn lög-
reglu er málið til rannsóknar
en enginn liggur undir grun.
Eigandi bílsins á ekki í nein-
um deilum og ekki er vitað
af hverju reynt var að kveikja
í bíl hans. Ekkert tjón varð af
en hefði getað farið mjög illa,
að sögn lögreglu. -kgk
Fékk stykki
í bílinn
BORGARBYGGÐ Öku-
maður sem ók eftir Vestur-
landsvegi, rétt sunnan Borgar-
ness, á þriðjudaginn í síðustu
viku, varð fyrir því óláni að fá
um 50 cm langt stykki fram-
an á bílinn sinn. Taldi hann
það hafa komið af flutninga-
bíl sem hann mætti. Bifreiðin
skemmdist mikið að framan.
Ekki hefur fundist út úr mál-
inu, en það er til rannsóknar.
Spýtnabrak fannst á veginum
og að sögn lögreglu er jafn-
vel talið að stykkið sem skall
framan á bílnum hafi ekki
komið af bílnum, heldur ver-
ið á veginum og kastast á hann
þegar ekið var yfir það. Þó
segir lögregla ekkert hægt að
fullyrða neitt þar sem ekki er
vitað hvað gerðist. -kgk
Nýlega var auglýstur breyttur af-
greiðslutími í útibúum Arion banka
á Vesturlandi, sem tók gildi 12.
maí síðastliðinn. Þar kemur fram
að í Búðardal verði opið frá 10-14
þriðjudaga og miðvikudaga en alla
virka daga frá 12:30-16 í Borg-
arnesi og Stykkishólmi. Áður en
samkomubann tók gildi var opið
alla virka daga frá kl. 9-16 í Borg-
arnesi, 9-15 í Stykkishólmi og frá
10-14 í Búðardal.
Að sögn Sigurgeirs Sindra Sig-
urgeirssonar, svæðisstjóra Arion
banka á Vesturlandi, er gert ráð
fyrir að hefðbundinn afgreiðslu-
tími taki við að nýju í útibúinu
í Borgarnesi þegar létt verður á
samkomubanni. Nýr opnunartími
er hins vegar kominn til að vera í
Stykkishólmi og Búðardal. En af
hverju er verið að breyta opnunar-
tíma útibúa? „Heilt yfir hefur eftir-
spurn eftir þjónustu sem veitt er í
útibúum bankans minnkað með til-
komu sífellt betri stafrænna lausna.
Fólk kýs í auknum mæli að nýta
appið, vefinn og netbankann, sem
og þjónustuverið, enda er hægt að
sinna nær öllu sem tengist fjármál-
um með þægilegum hætti í gegnum
þessar þjónustuleiðir,“ segir Sindri
í samtali við Skessuhorn. „Eðlilega
höfum við aðlagað okkar þjónustu
að þessum nýja raunveruleika og
fækkað útibúum bankans og breytt
afgreiðslutíma bæði á höfuðborgar-
svæðinu og landsbyggðinni,“ segir
hann. „Þegar kemur að því að meta
þörfina á útibúi eða afgreiðslutíma
á hverjum stað fyrir sig tökum við
meðal annars tillit til eftirspurnar
á svæðinu en einnig samfélagslegra
þátta eins og aðgengi að bankaþjón-
ustu í nágrenninu. Eftirspurn víða
um land stendur ekki undir fullum
afgreiðslutíma alla virka daga og
því höfum við ákveðið að stytta af-
greiðslutíma víða, þar með talið á
Vesturlandi,“ bætir hann við.
Aðspurður segir svæðisstjórinn
að breyttur opnunartími komi ekki
til með að hafa áhrif á starfshlut-
fall starfsfólks. „Starfsmenn munu
sinna öðrum verkefnum á sínum
starfsstöðvum, til dæmis að svara í
síma í þjónustuveri bankans,“ segir
Sindri að endingu. kgk
Rekstrarniðurstaða Akraneskaup-
staðar var jákvæð um 655,6 millj-
ónir króna á síðasta ári. Er það tölu-
vert betri rekstrarniðurstaða en búist
var við, en gert hafði verið ráð fyrir
354,4 milljóna króna afgangi í fjár-
hagsáætlun. Ársreikningur Akranes-
kaupstaðar var samþykktur eftir síð-
ari umræðu á fundi bæjarstjórnar 12.
maí síðastliðinn.
Rekstrartekjur A og B hluta námu
8.044,2 milljónum króna á síðasta
ári, en þar af námu rekstrartekjur A
hluta 7.084 milljónum. Álagningar-
hlutfall útsvars var 14,52%, sem er
lögbundið hámark. Álagningarhlut-
fall fasteignaskatts í A flokki var
0,2865% en lögbundið hámark er
0,5%, í B flokki var álagningarhlut-
fallið 1,32% sem er lögbundið hlut-
fall og í C flokki var álagningarhlut-
fallið 1,5804%, en lögbundið há-
mark er 1,32% auk heimildar sveit-
arstjórna til að hækka álagningu A
og C flokka um allt að 25%.
Niðurstaða samstæðunnar var
sem fyrr segir jákvæð um sem nemur
655,6 milljónum, en var rekstrarnið-
urstaða A hluta var jákvæð um 657,6
milljónir. Eigið fé kaupstaðarins í
árslok 2019 nam 8.278,7 milljón-
um króna samkvæmt efnahagsreikn-
ingi, en eigið fé A hluta nam 8.399,8
milljónum.
Skuldaviðmiðið lækkaði á síðasta
ári í 23%, en var 26% árið 2018.
Veltufé frá rekstri var 15,27% en var
19,49% árið áður. Skuldahlutfallið
lækkaði milli ára, var 84% á síðasta
ári en var 87% árið 2018. Eiginfjár-
hlutfallið hækkaði úr 53% í 55% og
veltufjárhlutfallið er 2,19 en var 2,52
árið 2018. kgk/ Ljósm. mm.
Pétur Magnússon hefur verið ráð-
inn forstjóri Reykjalundar endur-
hæfingarmiðstöðvar SíBS. Tek-
ur hann við starfinu 1. júní næst-
komandi af Önnu Stefánsdótt-
ur sem hefur verið starfandi for-
stjóri stofnunarinnar. Pétur er frá
Akranesi, menntaður lyfjafræðing-
ur auk þess að hafa MBA gráðu frá
HR með áherslu á mannauðsstjór-
nun. Hann hefur stýrt Hrafnistu-
heimilunum síðastliðin 12 ár og er
formaður Samtaka fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu.
Pétur tekur við starfinu að loknu
erfiðu tímabili í sögu Reykjalund-
ar. Undir lok síðasta árs var til-
kynnt að Birgir Gunnarsson, þá-
verandi forstjóri, væri hættur störf-
um og skömmu síðar var Magn-
úsi Ólasyni sagt upp störfum sem
forstöðumanni lækninga. Við tók
hrina uppsagna lækna við stofn-
unina, en margir drógu þó upp-
sagnir sínar til baka þegar skipuð
var starfsstjórn til að lægja öldurn-
ar.
mm
Jákvæð rekstrarniðurstaða
Akraneskaupstaðar
Breyttur afgreiðslutími Arion
banka í landshlutanum
Útibú Arion banka í Búðardal. Ljósm. úr safni/ sm.
Pétur tekur við stjórnun Reykjalundar