Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2020, Page 13

Skessuhorn - 20.05.2020, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 2020 13 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Smiður - Akranes BM Vallá á Akranesi, Smellinn, leitar að öflugum trésmið í hópinn. Um er að ræða 100% framtíðarstarf en skilgreindur vinnutími er frá kl. 7.30-16.50. Umsóknir óskast rafrænt í gegnum Alfreð en umsóknafrestur er til og með 25. maí. Nánari upplýsingar um starfið veitir Steingrímur Már Jónsson, rekstrarstjóri eininga- verksmiðju Smellinn. Helstu verkefni og ábyrgð Dagleg umsjón trésmíðaverkstæðis• Mótasmíðar fyrir einingaframleiðslu• Skipulag og yfirsýn verkefna og tímaáætlana• Önnur verkefni tengd starfinu• Menntunar- og hæfniskröfur Sveinspróf í trésmíði• Góð færni og reynsla í teikningalestri• Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð• Framúrskarandi þjónustulund og vilji til að fylgja ströngum • öryggis- og gæðakröfum. Góð færni í íslensku og /eða ensku• SK ES SU H O R N 2 02 0 Gréta Björgvinsdóttir útfararstjóri s: 770 0188 Guðný Bjarnadóttir útfararstjóri s: 869 7522 www.borgutfor.is Borg útfararþjónusta borg@borgutfor.is Borg útfararþjónusta veitir alhliða þjónustu við syrgjendur þegar að útför kemur, óháð trúarbrögðum og lífsskoðunum. EB flutningar Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Akraness Tvær ferðir á dag Allir almennir vöruflutningar Get sótt pakka í búðir Símanúmer 788-8865 ebflutningar@gmail.com Undanfarna daga hefur verið góð- ur afli í öll veiðarfæri hjá bátum og skipum á Snæfellsnesi. Á Arnarstapa var í síðustu viku mjög góður afli hjá handfærabát- unum, að sögn Guðmundar ívars- sonar hafnarvarðar. „Það tók suma sjómenn aðeins einn klukkutíma að ná skammtinum á strandveiðum, en það hefur ekki verið svona mikil fiskgengd hér í fimm ár. 36 hand- færabátar hafa landað á Arnarstapa að undanförnu auk þess sem neta- báturinn Bárður II SH hefur mok- fiskað í netin og aflinn verið þetta frá 15 tonnum og yfir 20 tonn,“ segir Guðmundur. Svipaða sögu er að segja frá Ólafsvík og Rifi. Þar hefur einnig verið góður afli í öll veiðarfæri og í gær var Steinunni SH með 41 tonn í dragnót sem fékkst í aðeins einu kasti. Mikið líf hefur því verið í höfn- um Snæfellsbæjar og þegar aflinn er góður og margir bátar á sjó verð- ur oft löng bið eftir löndun. Menn kippa sér þó ekkert upp við það og halda sínu góða skapi þótt fiskverð mætti vera hærra. af Góður afli í öll veiðarfæri Löndunarbið í Ólafsvík. Kristán Helgason, skipveri á Bárði SH, gat ekki annað en brosað og hlegið þegar hann kom að landi, enda aflinn 15 tonn. Ásgeir Elíasson var í sínum öðrum túr á strandveiðibátnum Reyni Axels SH. Ásgeir var ekkert ósáttur með þótt aflinn hafi verð 550 kíló. „Þetta kemur allt þegar ég er búinn að læra betur á þetta,“ sagði hann og brosti.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.