Skessuhorn - 20.05.2020, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 202018
Á föstudag voru opnuð tilboð í
byggingu búsetukjarna fyrir fatlaða
íbúa á Snæfellsnesi, sem fyrirhugað
er að reisa við Ólafsbraut í Ólafsvík.
Verkís annaðist útboðið fyrir hönd
Félags- og skólaþjónustu Snæfell-
inga. Fimm tilboð bárust í verk-
ið, en í því felst fullnaðarfrágang-
ur búsetukjarnans. Áætluð verk-
lok á heildarverkinu eru 30. ágúst
2021. Kostnaðaráætlun hljóðar upp
á tæpar 243,2 milljónir króna.
Lægsta heildartilboðsverðið, að
meðtöldum virðisaukaskatti, átti
Húsheild ehf., rúmar 276 milljón-
ir króna. Spennt ehf. bauð rúm-
lega 277,1 milljón, A ísax ehf. bauð
277,6 milljónir og Heinz byggingar
buðu rúmar 294,6 milljónr. Að auki
barst frávikstilboð frá Spennt ehf.,
sem hljóðar upp á rúmlega 207,8
milljónir króna. kgk
Stjórnvöld styðja eins og kunn-
ugt er við sumarnám menntastofn-
ana til að sporna gegn atvinnuleysi
og efla menntun meðal ungs fólks.
Landbúnaðarháskóli íslands tekur
þátt í þessu verkefni og mun bjóða
upp á námskeiðspakka í sumar. Eru
þar skyldufög á einhverjum braut-
um BS náms sem hægt er að nýta
sem valfög í öllu grunnnámi og í
einhverjum tilfellum til framhalds-
náms einnig. Að auki verður val-
kúrs í boði á starfsmenntanámsstigi.
Nemendur sem eru þegar innritað-
ir í nám á vorönn 2020 greiða ekki
skráningargjald vegna sumarnám-
skeiða. Námskeið Lbhí standa öll-
um nemendum hinna opinberu há-
skólanna til boða í gegnum gest-
anámssamning skólanna án kostn-
aðar. Námskeiðin eru einnig í
boði fyrir áhugasaman almenning
í gegnum Endurmenntun Lbhí.
Kennslutímabilið er frá 25. maí til
10. júlí 2020. Lágmarksþátttaka í
hvert námskeið er 12 manns.
Námskeið í boði:
Jarðfræði íslands - 4 ECTS •
Náttúruvernd - 4 ECTS •
Sjálfbær þróun - 4 ECTS•
Mengun - uppsprettur og áhrif •
- 6 ECTS
Sustainable agriculture: The •
intersection of Agroecology
and Sustainable Rural Deve-
lopment - 2 ECTS
Farsæll matarfrumkvöðull - 2 •
ECTS / 2 fein (nýr valkúrs,
bæði á háskólastigi og starfs-
menntanámsstigi)
Umhverfismat áætlana og •
undirbúningur umhverfis-
skýrslu - 2 ECTS
Ný úrræði í meðhöndlun á líf-•
rænum úrgangi - 2 ECTS (nýr
valkúrs)
•
Einnig verður boðið upp á
grunnnámskeið í efnafræði og bók-
haldi síðsumars. Þau námskeið eru
hugsuð sem undirbúningsnámskeið
fyrir nýnema næsta hausts og eru
því ekki einingarbær inn á feril hjá
Lbhí en gætu ef til vill gagnast ein-
hverjum sem þarf á frekari undir-
búningi á þessum sviðum. Um-
sóknarfrestur er til og með 21. maí.
Skráning og nánari upplýsingar eru
á: kennsluskrifstofa@lbhi.is og í
síma 433-5000.
mm/LbhÍ
Sóknaráætlanir landshlutasamtaka
fá 200 milljóna króna sértæka fjár-
veitingu úr ríkissjóði sem er liður í
fjárfestingarátaki stjórnvalda til að
sporna gegn samdrætti í hagkerf-
inu í kjölfar heimsfaraldurs kór-
ónuveiru og styðja við verkefni á
landsbyggðinni. Viðbótarfjárveit-
ingin mun renna til sjö landshluta-
samtaka sveitarfélaga á landsbyggð-
inni. 150 milljónir kr. skiptast jafnt
á milli landshlutanna og 50 m.kr.
dreifast á að teknu tilliti til hlutfalls
atvinnutekna í gistingu og veiting-
um árið 2018 á hverju svæði fyrir
sig. Hver landshluti fær því samtals
á bilinu 25,2 m.kr. til 36 m.kr. til
ráðstöfunar. Hingað á Vesturland
renna 28,4 milljónir króna.
Landshlutasamtök sveitarfé-
laga ráðstafa þessum pengingum á
hverju svæði. Skilyrði er að pening-
unum skuli varið í verkefni sem eru
atvinnuskapandi og/eða stuðli að
nýsköpun og að leggja skuli áherslu
á þær atvinnugreinar sem orðið
hafa hvað verst úti vegna Covid-19
faraldursins.
Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi hafa þegar ákveðið að nýta
fjármunina í tvö áhersluverkefni
tengd ferðaþjónustu sem ítarlega
hafa verið kynnt í Skessuhorni áður.
Annað verkefnið er Ferðaleiðir á
Vesturlandi sem á rætur í Áfanga-
staðaáætlun Vesturland. Vinna er
þegar hafin við ferðaleiðir á Akra-
nesi og í Hvalfirði, á Snæfellsnesi
er unnið að gerð ferðaleiða í sam-
starfi við Svæðisgarð Snæfellsness,
í Dalabyggð er ferðaleið í mótun
sem yrði hluti af Vestfjarðaleiðinni
og loks er að hefjast vinna við ferða-
leið í Borgarfirði. Hitt verkefnið
snýst um markaðssetningu og við-
burði á Vesturlandi. Það mun snú-
ast um átak í að markaðssetja Vest-
urland og stuðla að því að sem víð-
ast verði viðburðardagskrá í gangi í
landshlutanum. mm
Nú þegar kórónufaraldurinn hefur
gengið yfir heiminn hefur sérstak-
lega mikið álag verið á heilbrigðis-
kerfið okkar og þá framlínustarfs-
menn sem þar starfa. í Borgarnesi
hefur borið á því undanfarið að erf-
itt hefur verið að fá tíma hjá heim-
ilislækni en að sögn Lindu Krist-
jánsdóttur, yfirlæknis Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands í Borgarnesi,
skýrist það af manneklu. Einn sér-
fræðilæknir í 40% starfi hjá HVE í
Borgarnesi varð að hætta þar þeg-
ar Covid-19 barst til landsins því
hann starfaði einnig á Landsspítal-
anum og mátti ekki lengur starfa á
tveimur stöðum.
„Við höfum verið tveir læknar hér
í fullu starfi og vegna kórónuveir-
unnar höfum við þurft að skiptast á
að mæta á stofuna, annar læknirinn
hér og hinn heima,“ útskýrir Linda.
Þriðji læknirinn á stofunni hætti
núna 8. maí og ekki er von á öðr-
um lækni í hans stað fyrr en í lok
júní. „Við erum núna tvær að sinna
rúmlega þriggja lækna stöð í um
4000 manna héraði og þess vegna
er smá bið eftir tíma,“ segir Linda
en leggur áherslu á að öll bráðatil-
felli fái strax þjónustu. „Alla daga er
vakthjúkrunarfræðingur sem heyrir
í þeim sem telja sig ekki geta beðið
eftir að hitta lækni. Hjúkrunarfræð-
ingurinn getur þá kallað fólk inn,
tekið blóð- eða þvagprufur og met-
ur svo hvort það þurfi að fá viðtal
við lækni líka,“ segir Linda og bætir
við að þurfi fólk að hitta lækni sam-
dægurs eigi það að hringja á heilsu-
gæslustöðina og láta vita af því en
ekki bara bóka næsta lausa tíma.
Aðspurð segir Linda þetta ekki
í fyrsta skipti sem starfsstöð HVE
í Borgarnesi sé undirmönnuð en
það sé lítið hægt að gera ef ekki fást
læknar þar til starfa. „Við erum lít-
il stöð og það hefur mikið að segja
þegar það vantar lækni, jafnvel bara
þó einn læknir sé veikur í einn dag.
Við erum að jafnaði að hitta 11-14
skjólstæðinga á dag og taka níu
símatíma, hver læknir, svo ef maður
dettur út einn dag vegna veikinda
þarf að finna öllum þessum ein-
staklingum nýja tíma og þetta getur
haft rosalega mikið að segja,“ segir
Linda. „Ef við náum að vera alltaf
allavega þrír læknar í húsi er bið-
tíminn ekki mikill.“
arg
Landshlutasamtök fá auka-
fjárveitingu í ferðaþjónustu
Búsetukjarninn sem fyrirhugað er að reisa við Ólafsbraut í Ólafsvík.
Fimm vilja
byggja búsetukjarna
Skimað fyrir Covid-19 í Borgarnesi. Hér eru Linda og Rósa hjúkrunarfræðingur að
taka sýni saman. Ljósm, úr safn/glh
Læknaskortur útskýrir langan
biðtíma í Borgarnesi
Fjölbreytt sumarnám verður
í boði við LbhÍ