Skessuhorn - 20.05.2020, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 2020 19
Síðastliðið mánudagskvöld, þegar
gróðureldar blossuðu upp í Grá-
brókarhrauni, voru félagar í Björg-
unarsveitinni Heiðari kallaðir út
til aðstoðar slökkvuliðsmönnum.
„Við fórum með sexhjólið sem
nýttist vel til að ferja mannskap og
búnað um erfitt landslag,“ segir
Arnar Grétarsson formaður Heið-
ars. „Við tókum með í ferðina ný-
legan hitamyndavélardróna okkar.
Hann reyndist ómetanlegur fyr-
ir slökkviliðið til að meta aðstæður
hverju sinni. Gaf hann góða mynd
hvar eldurinn væri sterkastur. Eitt-
hvað sem reykurinn gefur ekki allt-
af upp. Það var því auðveldara að
senda mannskapinn hverju sinni
þangað sem hans var mest þörf,“
segir Arnar.
Meðfylgjandi eru tvö pör
af myndum, tekin á venjulegu
myndavél drónans og hins vegar
hitamynd af sama svæði.
mm
Ökumaður með hjólhýsi í eftir-
dragi missti stjórn á bifreið sinni
á Akrafjallsvegi vestan Fellsaxlar
á fimmtudagskvöld, með þeim af-
leiðingum að bæði bifreið og hjól-
hýsi höfnuðu utan vegar og ofan
í skurði. Að sögn lögreglu kvaðst
ökumaður hafa fundið högg koma á
bifreiðina, sem síðan snerist á veg-
inum með fyrrgreindum afleiðing-
um. Að sögn vitnis byrjaði hjólhýs-
ið að snúast á veginum og síðan bif-
reiðin. Engin slys urðu á fólki.
Aníta Gunnarsdóttir Skjóldal og
fjölskylda eiga hjólhýsið og bílinn.
Hún greindi sjálf frá því á Facebo-
ok-síðu sinni að dráttarkúla bíls-
ins hefði brotnað, sem hefði or-
sakað óhappið og að líklega væru
bæði bíll og hjólhýsi ónýt. Hvorugt
tækjanna var kaskótryggt og eig-
endur sjá ekki fram á að fá tjónið
bætt. „Við keyptum hjólhýsið fyrir
þremur vikum síðan og vorum að
fara í fyrstu útileguna. Sem betur
fer meiddist enginn en þetta fannst
okkur ferlega sárt,“ segir Aníta.
kgk
Þessa dagana er unnið við að
tengja ljósleiðara inn á bæi í
Hálsasveit og Hvítársíðu í Borg-
arfirði. Þar með sjá bændur og
búalið fram á breytta tíma í öllu
sem viðkemur samskiptum við
umheiminn, hvort sem um er að
ræða tölvusamskipti eða móttöku
sjónvarps- og útvarpssendinga.
Þessu fagna íbúar eins og gefur að
skilja og jafnvel dæmi um að slett
hafi verið í form til að fagna því að
nú sér fyrir endann á stopulu ör-
bylgjusambandi.
„Við sveitungarnir sjáum fram á
gjörbreytt og betri búsetuskilyrði
og fögnum viðkunnalega internet-
gaurnum, The cable guy, sem nú
fer milli bæja og tengir þá hvern
á fætur öðrum. Að vísu ber hann
ekki birtuna til okkar í húfun-
ni, eins og Bakkabræður forðum,
heldur leggur hann rör inn í sto-
fu fyrir ljósleiðarann og síðan er
þræðinum blásið inn. Nú er hann
að klára þessa vinnu á flestum
bæjum og við erum alsæl,“ segir
Jósefina Morell á Giljum, sem jaf-
nramt er fréttaritari Skessuhorns.
mm/ Ljósm. Josefina Morell.
Hitamyndavél í dróna reyndist vel
Ljósið berst á bæina
Viðkunnalegi internet gaurinn, The cable guy, að grafa fyrir strengnum framan við íbúðarhúsið í Giljum.
Þetta „hár“ er endi ljósleiðarans eftir
að honum var blásið inn í hús á Hofs-
stöðum í Hálsasveit.
Hjólhýsi og bíll
enduðu í skurði