Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2020, Side 20

Skessuhorn - 20.05.2020, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 202020 í byrjun apríl síðastliðnum kynnti Akraneskaupstaður viðspyrnu sveit- arfélagins vegna kórónaveirunn- ar. Ein af aðgerðum bæjarfélags- ins var að auka fjárveitingar til við- halds og framkvæmda á þessu ári. Við fjárhagsáætlunargerð fyrir yfir- standandi ár samþykkti bæjarstjórn að heildarfjárfestingar yrðu 1.506 milljónir króna. Nú hefur bæjar- stjórn samþykkt flýtiframkvæmd- ir því til viðbótar að upphæð 321 milljónir. Skiptist sú upphæð þann- ig að 208,5 milljónir fara í fjárfest- ingaverkefni og 112,5 milljónir í gjaldfærðar framkvæmdar. Kostn- aðarauka vegna eignfærslu verður mætt með lækkun á handbæru fé og kostnaðarauka vegna gjaldfærslu verður mætt með lækkun á áætluð- um rekstrarafgangi. Aukin fjárveiting verður lögð í: Viðhald gatna.• Stofnstíga sem tengjast Flóa-• hverfi og Krókatúni/Vestur- götu. Gangstéttar í eldri hverfum • bæjarins. Gangstéttar í nýjum hverfum, • Skógarhverfi. Græn verkefni eins og gróður-• setning í Flóahverfi. Leikvellir á opnum svæðum, • alls 17 talsins. Rekstur stofnanalóða.• Uppbygginu Fjöliðjunnar • vegna hönnunarvinnu. Uppbyggingu svæða vegna • hugmyndasamkeppni á Langa- sandi og markaðssetningu á at- vinnuhverfinu í Flóahverfi. Uppbyggingu búningsklefa • í sundlaugarklefum á Jaðar- sbökkum. Verkefni tengd aðgengismál-• um fatlaðra í stofnunum Akra- neskaupstaðar. Framkvæmdir við Þekjuna, frí-• stund Brekkubæjarskóla. Frekari hönnun á íþrótta-• mannvirkjum við Jaðarsbakka. Uppbyggingu á köldum potti • við sundlaugina á Jaðarsbökk- um. Lagfæringu á sætum í stúku • við aðalvöll knattspyrnuvall- arins. Aðgerðir á Jaðarsbökkum fyrir • aðstöðu kennara og íA. Framkvæmd til að drena tjald-• svæðið við Kalmansvík. Tilfallandi verkefni.• Snúa vörn í sókn „Við framangreinda ákvörðun var haft að leiðarljósi að tryggja at- vinnu á Akranesi og snúa þannig vörn í sókn vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 er að hafa á atvinnu- lífið á íslandi. Akraneskaupstað- ur er að fjölga og flýta verkefnum, þar á meðan verkefnum sem voru á áætlun næstu ára svo sem uppbygg- ingu á Jaðarsbökkum. Hönnunar- ferli þess svæðis fer í gang í ár og er mikil tilhlökkun innan bæjarstjórn- ar og samfélagsins í heild að koma því svæði í betra horf og sjá hér stærra íþróttahús, betri búnings- aðstöðu og fleira. Við erum einnig að leggja aukið fjármagn til grænna verkefna og annarra stærri verk- efna eins og hugmyndasamkeppni um Langasandssvæðið. Þar er und- ir mjög stórt svæði frá Jaðarsbraut og út að Sólmundahöfða sem við viljum mynda framtíðarsýn með og vinna að uppbyggingu í tengslum við heilsueflingu í allri sinni mynd. Við reiknum með að fara með það verkefni í gang nú um næstu mán- aðamót,“ segir Sævar Freyr Þráins- son bæjarstjóri. mm Allir háskólar landsins og alls 15 framhaldsskólar hyggjast bjóða upp á sumarnám í sumar. Breidd- in í námsframboði þeirra er mik- il. Bæði verður hægt að taka ein- ingarbæra áfanga sem og fjölbreytt námskeið. Sérstök áhersla verður á nám sem nýtist sem undirbúningur fyrir háskólanám, námskeið á sviði iðn- og verknáms, valkostir á sviði símenntunar og færnibrýr fyrir at- vinnuleitendur sem vilja skipta um starfsvettvang. Boðið verður upp á nám sem tekur frá einni og upp í tíu vikur. Upplýsingar um náms- framboð skóla verður að finna á heimasíðum þeirra en aðsókn mun ráða því hvaða námsframboð verð- ur endanlega í boði. Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi Lilju D Alfreðsdóttur menntamálaráðherra og Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra á blaðamanna- fundi í Hí síðastliðinn miðvikudag. Þau kynntu aðgerðir stjórnvalda vegna sumarstarfa og sumarnáms. Stjórnvöld ætla að ná til þess hóps námsmanna sem ekki fær starf eða aðgang að öðru úrræði í sumar og munu verja um 2,2 millj- örðum kr. í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn. Markmiðið er að með átakinu verði til 3.400 tímabund- in störf fyrir námsmenn, 18 ára og eldri, sem skiptast á milli opinberra stofnana og sveitarfélaga. Um er að ræða fjórum sinnum stærra átak en ráðist var í eftir hrunið, sumrin 2010 og 2011. Átak þetta verður unnið í sam- vinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög og er undirbúningur þegar vel á veg kominn. Sveitar- félögin munu sjálf auglýsa störfin en Vinnumálastofnun mun auglýsa störf á vegum stofnana ríkisins. Störfin verða auglýst opinberlega á næstu dögum og þurfa stofnanir og sveitarfélög að skapa ný störf í tengslum við átakið. Miðað er við ráðningartímabilið frá 1. júní til 31. ágúst. Þegar hafa verið staðfest 1.709 störf við sveitarfélögin, sem þau geta auglýst strax. í byrjun næstu viku er gert ráð fyrir að Vinnumála- stofnun staðfesti allt að 1.700 störf við stofnanir ríkisins sem verða auglýst í kjölfarið. Komi í ljós að þessi fjöldi sumarstarfa og annarra úrræða nái ekki til nægilega margra námsmanna verður leitað leiða til að skapa fleiri störf og/eða tryggja aðrar leiðir til framfærslu. Ekki nægjanlegt að mati námsfólks Landssamtök íslenskra stúd- enta og Stúdentaráð Háskóla ís- lands sendu í kjölfar kynningar ráðherranna frá sér ítarlega yf- irlýsingu. Þar kemur m.a. fram að staða námsfólks er grafalvar- leg. „Sjö þúsund horfa fram á at- vinnuleysi á komandi sumri. Það eru um 40% námsmanna. Boð- aðar aðgerðir um 3400 til 4400 störf eru ekki nægilega öflug við- brögð. 87% íslenskra stúdenta vinna á sumrin og 68% íslenskra stúdenta vinna samhliða námi. Námsmenn á íslandi geta ekki eingöngu reitt sig á námslána- kerfi LíN til framfærslu, en sjóð- urinn lánar ekki fyrir fullnægjandi framfærslu. Þrátt fyrir mikla at- vinnuþátttöku námsmanna og af launum þeirra sé greitt í atvinnu- leysistryggingasjóð þá hefur þessi hópur ekki rétt á atvinnuleysis- bótum, öryggisneti sem stendur öðru launafólki til boða,“ sagði í yfirlýsingunni. mm Aukið fé til framkvæmda til að bregðast við áhrifum Covid Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri. Ljósm. kgk. Ráðhús Akraneskaupstaðar. Ljósm. mm. Aðgerðir stjórnvalda vegna sumarstarfa og sumarnáms

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.