Skessuhorn


Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 202022 Ölver er við rætur Hafnarfjalls og þar hafa um margra ára skeið ver- ið starfræktar sumarbúðir, aðallega fyrir stúlkur, á vegum KFUM og KFUK. Sumarbúðirnar hafa ver- ið mjög vinsælar og hefur skráning síðustu ár verið mjög góð. Að sögn Ernu Bjarkar Harðardóttur, gjald- kera í stjórn, eru margar stúlkur sem koma ár eftir ár í Ölver. í Öl- veri er unnið með góðu gildi Biblí- unnar, farið í gönguferðir, haldn- ar kvöldvökur og sungið. Borðað- ur hollur og góður matur, farið í leiki, spilað, spjallað og haft gaman. „Dagarnir í Ölveri eru viðburða- ríkir og dagskráin fjölbreytt. Dag- lega er morgunstund og biblíulest- ur, brennókeppni og aðrar íþrótta- keppnir. Þá eru æfð leikrit og sýnd á kvöldvöku og svo er heiti pottur- inn alltaf vinsæll,“ segir Erna. Tómlegt á útisvæðinu Nokkur sorg ríkir nú meðal þeirra sem elska búðirnar því tvö af vinsæl- ustu leiktækjunum eru farin. Ann- ars vegar risastórt hengirúm sem var orðið ónýtt og þurfti að taka niður og hins vegar báturinn Abba- dís. „Abbadís var gömul trilla sem var komið fyrir á útisvæðinu okk- ar og krakkarnir gátu leikið sér í. Hún var gefin hingað þar sem fyrri eigendur voru hættir að nota hana og gáfu hana því upp í Ölver. Þessi bátur var rosalega vinsælt leiktæki og er mikill söknuður af honum,“ segir Erna, en það þurfti að fjar- lægja bátinn því hann var orðinn illa farinn og ekki lengur öruggt að leika í honum. „Við höfum ver- ið að leita að öðru sambærilegu, bát eða einhverju óhefðbundnu sem krakkarnir gætu haft gaman að en það er ekki um margt að velja. Við erum ekki hagnaðardrifið félag og því ekki mikill peningur til að fjár- festa í slíku leiktæki,“ segir hún. Ef einhver veit um bát eða annað skemmtilegt sem gæti þjónað hlut- verki leiktækis sem viðkomandi vill leyfa stúlkunum í Ölveri að njóta má hafa samband við Ernu í net- fangið ernabjork@gmail.com eða í síma 691-2510. arg „Miðað við yfirborðshita sjávar sumarið 2019 og þau tengsl sem hafa komið fram við laxgengd eru góðar vísbendingar um að von geti verið á góðum smálaxagöngum í ár á sunnan- og vestanverðu landinu á komandi sumri. Stangveiði á laxi í þessum landshluta eru yfirleitt um 40% af heildarveiði náttúru- legra laxastofna á landinu.“ Þetta er meðal niðurstaðna í skýrslu sem fiskifræðingarnir Jóhannes Guð- brandsson og Sigurður Már Ein- arsson á starfsstöð Hafrannsókna- stofnunar á Hvanneyri hafa ritað. í skýrslunni er greint frá því hvern- ig fylgst hefur verið með yfirborðs- hita sjávar síðustu ár og tengslum sjávarhita við laxgengd. Tengsl eru á milli meðalhita sjáv- ar í júlí og smálaxaveiði á Vestur- landi sumarið á eftir. í júlí 2019 var sjórinn á svæðinu suðvestan við landið hlýrri en áður hefur mælst eða að meðaltali 11,75°C. „Ef gert er ráð fyrir að sama samband hald- ist þegar hitinn fer svo hátt upp gerir línulegt samband ráð fyrir rúmlega 21 þúsund fiska veiði smá- laxa á Vesturlandi 2020 en rúmlega 25 þúsunda laxa veiði ef gert er ráð fyrir að sambandið sé 2. stigs marg- liða,“ segir í skýrslunni. Þó er bent á að töluverður breytileiki sé til staðar þó að sambandið sé sterkt. Til að mynda er mikill munur á veiðinni 2008 og 2011 þrátt fyrir sambærilegt sjávarhitastig þau ár. „Helstu áhrifaþættirnir á fjölda göngulaxa eru einkum breytileg framleiðsla gönguseiða í ánum og breytileg afföll í sjávardvölinni. Hér er eingöngu unnið með tengsl sjávarhita við laxveiði ári síðar en mjög áhugavert væri að gera spálík- an þar sem fleiri breytur væru not- aðar sem tengjast seiðaframleiðslu ánna og frumframleiðni sjávar. Loftlagsbreytingar eru ekki ein- ungis að hafa áhrif á hitastig sjáv- ar en breytingar á seltu, sýrustigi og hafstraumum geta einnig haft mikil áhrif á lífríkið. Erfitt getur verið að spá fyrir áhrif umhverfis- þátta þegar gildi sem ekki hafa sést áður koma fram. Hér er eingöngu unnið með gögn sem tengjast veiði á Vesturlandi en mjög áhugavert væri einnig að hefja rannsóknir á slíku sambandi í öðrum landshlut- um sérstaklega Norður- og Aust- urlandi. Til þess þarf að merkja laxaseiði með mælimerkjum til að staðsetja beitarsvæði, en líklegt er að lax frá þessum landsvæðum noti önnur beitarsvæði en lax frá Suður- og Vesturlandi,“ segir m.a. í skýrsl- unni. mm Kristján Þór Júlíusson sjávarút- vegsáðherra boðaði grásleppuveiði- menn á fund í gær í Stykkishólmi. Tilefnið var að fara yfir stöðuna sem upp er komin vegna grásleppuveiða við Breiðafjörð. Eins og kunnugt er stöðvaði ráðherra allar grásleppu- veiðar við landið 3. maí síðastlið- inn vegna mikillar veiði norðan við landið. Heimilt verður eftir 20. maí að veiða í fimmtán daga á Breiða- firði, en á fundinum gerði ráðherra mönnum ljóst að ekki stæði til að breyta þessum 15 dögum. Hins vegar tók Kristján Þór það fram að dögunum yrði fækkað ef aflinn yrði mikill. Fundarstjórn var mikið til í höndum ráðherra og spunnust snarpar umræður, en málefnaleg- ar að mestu. Reyndu grásleppusjó- menn að knýja fram fasta daga eða fastan kvóta og sóttu hart að Krist- jáni. Sleit ráðherra fundi með þeim orðum að hann myndi meta það sem hann hefði fengið að heyra á fundinum. Á fundinum kom fram hörð gagnrýni á Guðmund Óskarsson, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Haf- rannsóknastofnunar, og stofnunina sjálfa. Var ráðherra á því að gagn- rýni væri nauðsynleg og Hafrann- sóknastofnun væri ekki yfir gagn- rýni hafin, en stofnunin byggi engu að síður yfir einu vísindunum sem til staðar eru og yrðu þau ráð því notuð áfram. sá Heilbrigðisráðherra féllst í síðustu viku á tillögu sóttvarnalæknis um að heimila opnun sundlauga og bað- staða mánudaginn 18. maí sl. Fjöldi sundgesta verður þó takmarkaður og rík áhersla lögð á hreinlæti og sótt- varnir. Fjöldi gesta verður miðaður við starfsleyfi viðkomandi laugar eða baðstaðar og er reglan sú að gestir mega aldrei vera fleiri en sem nemur helmingi hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Börn fædd árið 2015 eða síðar teljast ekki með í gestafjölda. Heimildin tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem það á við, sbr. reglugerð umhverfis- og auðlind- aráðuneytis um baðstaði í náttúrunni. Líkt og bent er á í leiðbeiningum sóttvarnalæknis er baðvatn á bað- stöðum í náttúrunni ekki sótthreins- að líkt og á sund- og baðstöðum og er fólki með undirliggjandi sjúkdóma því ráðlagt að varast slík böð. Tveggja metra nálægðarmörk gilda ekki á sundlaugarsvæðum en mælst er til þess að fólk taki mið af þeim eins og kostur er. Upplýsingar um CO- VID-19 verða felldar inn í fræðslu til allra starfsmanna sund- og baðstaða þar sem fjallað verður um veiruna sem veldur COVID-19 og eftirtalin atriði: Helstu smitleiðir veir- unnar á milli manna. Það sem hægt er að gera til að varna því að smit berist á milli manna á sund- og baðstöðum. Fyrstu viðbrögð starfsmanna ef grunur vaknar um smit innan vinnu- staðar. Leiðbeiningar um það ferli sem fer í gang þegar upp kemur COVID-19 smit. Leiðbeiningar til framlínustarfs- manna í atvinnulífinu. Hvar hægt er að finna frekari upp- lýsingar um COVID-19. Eins og segir í leiðbeiningum sótt- varnalæknis er áhersla lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfn- um og minnt er á að við erum öll al- mannavarnir. mm/ Ljósm. úr safni. Trillan Abbadís mjög vinsælt leiktæki. Ljósm. aðsend. Leita að nýju leiktæki til að taka við af Abbadís Sjávarhiti gefur vísbendingu um góðar heimtur smálaxa á Vesturlandi Setið var dreift á fundinum vegna sóttvarna. Fyrir miðju er Kristján Þór Júlíusson og Símon Már Sturluson honum við hlið. Sjávarútvegsráðherra hitti breiðfirska grásleppusjómenn Sund- og baðstaðir voru opnaðir með skilyrðum á mánudaginn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.