Skessuhorn - 20.05.2020, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 2020 23
Guðmundur vert á
Vogi, sveitasetri á Fells-
strönd í Dölum, vekur
athygli á að um hvíta-
sunnuna, laugardag-
inn 30. maí klukkan 20,
verða þau íva og Már
með söngskemmtun á
Vogi sveitasetri. „Að-
gangur er ókeypis, en
hægt er að kaupa allar
veitingar á staðnum, og
að sjálfsögðu er gisting
í boði,“ segir í tilkynn-
ingu. Nánari upplýsing-
ar er að finna á Facebo-
ok síðu Vogs Sveita-
seturs.
mm
í ljósi atvinnuástands í samfélaginu
vegna Covid-19 faraldursins hef-
ur Snæfellsbær ákveðið að fjölga
sumarstörfum hjá bæjarfélaginu
verulega á sumri komanda. Und-
anfarin ár hefur bæjarfélagið ráð-
ið á bilinu 16 til 20 ungmenni til
að sinna ýmsum verkefnum sem
til falla á sumrin, svo sem flokks-
stjórn í vinnuskóla og aðra sum-
arvinnu. En í ljósi atvinnuástands
ungs fólks nú hefur verið ákveðið
að Snæfellsbær ráði nálægt 40 ung-
menni til starfa í sumar. Stór hluti
þeirra tekur að sér ný störf í bæjar-
félaginu, ekki hefðbundin sumaraf-
leysingastörf, að því er fram kemur
á vef Snæfellsbæjar.
Fyrstu sumarstarfsmennirnir
koma til starfa í maí og verða við
störf hjá Snæfellsbæ fram í miðjan
ágúst. Hluti starfanna fellur undir
atvinnuátak bæjarfélagsins í sam-
vinnu við Vinnumálastofnun. Það
felur í sér að stofnunin hefur sam-
þykkt að greiða niður hluta launa
tólf starfsmanna í tvo mánuði.
„Allir sumarstarfsmenn hjá Snæ-
fellsbæ verða samt sem áður ráðn-
ir til starfa í allt sumar eða þar til
skólahald hefst,“ segir á vef Snæ-
fellsbæjar. kgk/ Ljósm. úr safni.
Fulltrúar Bændasamtaka íslands,
Sambands garðyrkjubænda og
stjórnvalda hafa skrifað undir sam-
komulag um endurskoðun á samn-
ingi um starfsskilyrði framleiðenda
garðyrkjuafurða, sem er einn hinna
fjögurra búvörusamninga. Mark-
mið samkomulagsins er meðal ann-
ars að stuðla að framþróun og ný-
sköpun í garðyrkjunni með áherslu
á aðgerðir í loftslagsmálum. Við
næstu endurskoðun samningsins
árið 2023 er markmiðið að fram-
leiðsla á íslensku grænmeti hafi
aukist um 25%, miðað við meðal-
framleiðslu áranna 2017 til 2019,
meðal annars í því skyni að auka
markaðshlutdeild innlendrar fram-
leiðslu. Stjórnvöld munu auka fjár-
veitingar í garðyrkjusamninginn
um 200 milljónir króna á ári. Aukn-
ingin kemur til framkvæmdar strax
á þessu ári. Peningarnir nýtast m.a.
til beingreiðslna vegna raforku-
kaupa, aðgerða í loftslagsmálum,
þróunarverkefna og til fjölbreyttari
ræktunar á grænmeti hér á landi.
Beingreiðslur til
raforkukaupa
Fyrirkomulagi á niðurgreiðslu á raf-
orku verður breytt með þeim hætti
að ylræktendum verða tryggðar
beingreiðslur vegna lýsingar í stað
niðurgreiðslu kostnaðar. Þetta er
gert til þess að stuðla að hagfelld-
ari starfsskilyrðum greinarinnar.
Hámarksstuðningur beingreiðslna
vegna lýsingar á hvern framleið-
enda verður mest 17,5% af þeirri
heildarfjárhæð sem til ráðstöf-
unar er á viðkomandi rekstrarári.
Fjármunir til beingreiðslna vegna
flutnings- og dreifingarkostnaðar
raforku verða 375 milljónir króna á
árinu 2020.
Fjölbreyttari ræktun
nýtur beingreiðslna
Við samninginn bætist nýr flokk-
ur beingreiðslna vegna ræktunar
á öðrum grænmetistegundum en
gúrkum, paprikum og tómötum.
Heildarfjárhæð verður 37 milljón-
ir króna á ári. Greiðslurnar hefjast
strax á þessu ári. Veittir verða sér-
stakir jarðræktarstyrkir til útirækt-
unar á grænmeti og garðávöxtum
til manneldis. Ekki er greitt fram-
lag fyrir ræktun undir einum hekt-
ara. Þar er meðal annars um að ræða
allar afurðir til manneldis sem vaxa
neðanjarðar eins og kartöflur, róf-
ur, gulrætur, næpur og aðrar sam-
bærilegar afurðir. Afurðir ræktaðar
ofanjarðar, svo sem blómkál, hvít-
kál, kínakál, rauðkál og aðrar sam-
bærilegar afurðir geta einnig not-
ið jarðræktarstyrkja en þar verður
upphæð fyrir hvern ræktaðan hekt-
ara hærri, þar sem kostnaður við
þá framleiðslu er umtalsvert meiri.
Framlög til jarðræktarstyrkja verða
70 milljónir króna á ári.
Fagna samningnum
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka íslands, segir að það
sé fagnaðarefni að búið sé að ljúka
endurskoðun garðyrkjusamningsins
á þessum undarlegu tímum. „Mik-
ill skilningur er meðal neytenda að
styrkja íslenska framleiðslu. í samn-
ingnum vega þyngst áhrif hans á
útiræktunina. Við sem framleið-
endur höfum haft miklar áhyggj-
ur af þeirri framleiðslu undanfar-
in ár, þar sem of fáir bændur hafa
séð sér hag í að stunda hana. Hart
hefur verið sótt að framleiðslunni á
grundvelli afnáms tolla og takmark-
aðs stuðnings. Sá skilningur samn-
ingsaðila og þær áherslur sem lúta
að tollvernd íslenskrar garðyrkju,
lífrænni ræktun og umhverfismál-
um eru jákvæðar. Mikil sóknarfæri
eru í garðyrkju almennt og ekki síst
hér á okkar hreina landi þar sem við
njótum þeirra forréttinda að vökva
okkar afurðir með hreinu drykkjar-
vatni. Eins og segir í slagorðum
garðyrkjubænda: „íslenskt græn-
meti, þú veist hvaðan það kemur“
og „blóm gera kraftaverk“.
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
,fagnaði sömuleiðis samkomu-
laginu. „Þessi samningur mark-
ar tímamót fyrir íslenska garð-
yrkju. Stærsta breytingin er sú að
við erum að stórauka framlög til
að niðurgreiða flutnings- og dreif-
ingarkostnaðar rafmagns og auka
við jarðræktarstyrki til að stuðla að
fjölbreyttari ræktun á grænmeti hér
á landi. Með því erum við að skapa
forsendur til að auka framleiðslu
á íslensku grænmeti um 25% á
næstu þremur árum og auka þannig
markaðshlutdeild innlendrar fram-
leiðslu.“
Nánar má lesa um innihald samn-
ingsins á vef landbúnaðarráðuneyt-
isins. mm
Víðir Haraldsson í Ólafsvík hefur
sjómennsku að aðalstarfi. Rær hann
ýmist á sínum eigin báti eða fyrir
aðra. Sjómennskan er þó ekki það
eina sem Víðir leggur fyrir sig, en
hann tekur að sér hin ýmsu köfun-
arverkefni. Aðspurður sagði Víðir
að hann hafi keypt sér köfunarbún-
að árið 2005. Æfði hann sig í byrj-
un með því að kafa fyrir þá á Örvari
SH í Rifshöfn. Sagði hann að verk-
efnin væru mismunandi svo sem að
skera úr skrúfum báta, zinka báta
þar sem hægt er að skrúfa zinkinu
á, og bara sitthvað sem til fellur.
Að sögn Víðis er alltaf nóg að
gera og hafi lakasta árið verið árið
2017, en búið sé að vera nóg að
gera frá áramótum. Eiginkona
Víðis er Kolbrún Þóra Ólafsdótt-
ir. Hún fer alltaf með honum þeg-
ar hann fer að kafa og er honum til
aðstoðar. Sagði Víðir að það hittist
nú oft þannig á að hann væri ný-
komin í land þegar hann þyrfti að
fara til að kafa en hans aðalstarf er
sjómennska eins og áður segir. Þeg-
ar blaðamaður hittu þau hjón síð-
astliðinn fimmtudag voru þau ein-
mitt að undirbúa sig fyrir að kafa
niður að Landeyju SH til að skera
úr skrúfunni. þa
Kolbrún Þóra og Víðir skömmu fyrir köfun í Rifshöfn.
Stundar köfun
og sjómennsku
Snæfellsbær fjölgar sumarstörfum
Már og Íva væntanleg á Vog
Fulltrúar bænda og stjórnvalda eftir undirritun samningsins. Ljósm. Golli
Stefnt að fjórðungsaukningu innlendrar garðyrkju