Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 202024
Fiskistofa hefur tekið saman yfirlit
yfir afla og meðafla grásleppubáta
á vertíðinni sem stóð frá 10. mars
og fékk óvæntan endi 2. maí í til-
efni af endurmati Hafrannsóknar-
stofnunar á stöðu stofnsins og afla-
brögðum. Margar útgerðir gátu
því ekki stundað veiðarnar í þá 44
daga sem heimilaðir höfðu verið og
enn aðrar voru ekki byrjaðar veið-
ar. Bátar við Breiðafjörð, sem vana-
lega byrja um eða eftir 20. maí, fá
leyfi til veiða í 15 daga frá 20. maí
eða síðar á þessu ári.
Það voru 157 grásleppubátar
sem lönduðu um 4.655 tonnum í
heildina á þessu tímabili nú í vor.
Heildarafli í grásleppu var tæp-
lega 4.085 tonn og meðafli var því
um 570 tonn. „Það er afar mikil-
vægt að skrá allan meðafla á veið-
unum bæði í fiski sem og sel og sjó-
fuglum. Nákvæm skráning á öllum
meðafla er forsenda þess að hægt sé
að sýna fram á það gagnvart vott-
unaraðilum og stjórnvöldum þeirra
ríkja þar sem aflinn er fluttur inn
að staðgóð þekking og vísindaleg-
ar rannsóknir liggi að baki veiðun-
um og þeim reglum sem um þær
gilda,“ segir í tilkynningu frá Fiski-
stofu.
mm
Byggðarráð Dalabyggðar
mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra
að stöðva grásleppuveið-
ar. Segir ráðið að stöðvun
veiðanna komi mjög illa
við Dalabyggð. í sveitar-
félaginu sé starfandi fisk-
vinnslufyrirtækið Sæfrost
ehf. sem hafi starfsemi af
frystingu hrogna. Á síð-
asta ári hafi Sæfrost verið næst stærst
í grásleppuvinnslu á landsvísu, með
á sjötta hundrað tonn. Undanfar-
in ár hafi vinnslan tryggt fólki at-
vinnu í um fimm mánuði á ári og á
sumri komanda hafi staðið til að tíu
manns hefðu atvinnu þar í sumar.
Fyrirtækið hafi tryggar sölur, bæði
á vottuðum og óvottuðum hrogn-
um. „í fámennu samfélagi þar sem
atvinna er fábrotin munar um hvert
starf. Nú stefnir í a.m.k. 75% minni
vinnslu hjá Sæfrosti ehf. ef staðið
verður við stöðvun veiða. Á sama
tíma hafa ýmsar atvinnugreinar í
Dalabyggð orðið fyrir verulegum
búsifjum vegna COVID-19 og ekki
er séð hvaða atvinnugrein geti grip-
ið þá aðila sem annars hefðu starfað
við frystingu og söltun. Grásleppu-
veiðar eru ekki búbót heldur at-
vinna sem margar fjölskyldur reiða
sig á og hafa gert til fjölda ára,“ seg-
ir í ályktun byggðarráðs.
Rétt eins og bæjarstjórn Stykk-
ishólmsbæjar bendir byggðarráð
Dalabyggðar á að þeir 15 dagar
sem veiða á við Breiðafjörð frá og
með 20. maí muni ekki
bæta upp þá 44 daga sem
sjómenn gerðu ráð fyrir
að geta gert út. „Einnig
er óljóst hvort allir munu
fá að veiða í 15 daga eða
lokað verði á veiðar þeg-
ar ákveðnum afla er náð.
Það er óviðunandi með
öllu að grásleppusjómenn
á innanverðum Breiða-
firði, sem fara síðast-
ir af stað, lendi í því að bíða í von
og óvon eftir því hvernig veiðin
gengur á öðrum svæðum,“ segir í
ályktun byggðarráðs, sem minnir
jafnframt á að bent hafi verið á að
mikil gengt grásleppu og afli norð-
ur af landinu bendi til að stofnin
sé stærri en Hafrannsóknarstofn-
un gerði ráð fyrir í sinni ráðgjöf.
Stofnvísitalan hafi vaxið og ekkert
bendi til þess að stofnstærðin standi
ekki undir nýtingu sem fyrri við-
miðunargildi gerðu ráð fyrir. Jafn-
framt setur ráðið spurningamerki
við uppreikning á tunnumagni fyrri
ára, sem leiddi til skerðingar á ráð-
gjöf Hafró á leyfilegu heildarafla-
marki í ár. Ráðið skorar því á Hafró
og sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra að endurskoða heimild
til veiða á innanverðum Breiða-
firði og fjölga veiðidögum til sam-
ræmis við áður gildandi reglugerð.
Sömuleiðis er skorað á Alþingi að
endurskoða þegar í stað núverandi
fyrirkomulag veiðanna svo að þessi
staða komi ekki upp aftur.
kgk
Samningar hafa tekist við dýra-
lækna í dreifðum byggðum um að
sinna nauðsynlegri dýralæknaþjón-
ustu til næstu fimm ára. Samhliða
voru gerðir verkkaupasamningar
við dýralækna um að sinna opin-
berum störfum fyrir Matvælastofn-
un. Gerir það stofnuninni kleift að
fækka héraðsdýralæknum og hag-
ræða í rekstri.
Samningar við dýralækna koma í
kjölfarið á starfi starfshóps sem sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
skipaði á síðasta ári, um þjónustu
dýralækna í dreifðum byggðum og
vaktþjónustu dýralækna. Hlutverk
hópsins var að endurskoða skipulag
þjónustu í dreifðum byggðum sem
og vaktþjónustu dýralækna. Megin-
markmiðið var að tryggja aðgengi
að dýralæknaþjónustu í dreifðum
byggðum og vaktþjónustu utan
dagvinnutíma á hagkvæman og að-
gengilegan hátt með velferð dýra
að leiðarljósi.
Aukið aðgengi
að dýralæknum
í ráðuneytinu er samhliða þessu
unnið að endurskoðun reglugerð-
ar um Matvælastofnun. Með setn-
ingu hennar er stefnt að fækkun
umdæma stofnunarinnar úr sex í
fjögur, eigi síðar en í árslok 2021.
Þjónustusvæði dýralækna verða hins
vegar níu með ellefu fullar staðar-
uppbætur fyrir dýralækna. Fækkun
umdæma MAST byggir á mögu-
leikum stofnunarinnar til að kaupa
þjónustu af dýralæknum sem samið
hefur verið við. Vegna dýralækna-
þjónustu var samið við sex dýra-
lækna og fjögur fyrirtæki þar sem
starfa tveir eða fleiri dýralæknar.
Stofnunin gerði síðan verkkaupa-
samninga við sextán dýralækna.
Með nýrri reglugerð um dýra-
læknaþjónustu í dreifðum byggð-
um er þjónustusvæðum fækkað úr
tíu í níu, en fullar staðaruppbætur
verða þó ellefu talsins, en voru tíu
áður. „Með þessu fyrirkomulagi
skapast viðunandi starsskilyrði fyr-
ir dýralækna þannig að þeim hug-
nist að starfa í dreifðum byggðum
landsins. Nýtt skipulag dýralækna-
þjónustu felur í sér aukið aðgengi
að dýralæknum og komið er á sam-
starfi við Matvælastofnun, sem
skapar aukna tekjumöguleika fyrir
þjónustudýralækna. Þeim er jafn-
framt tryggður réttur til fjarveru
vegna veikinda og orlofs og þak er
sett á vaktskyldu þeirra,“ segir í til-
kynningu frá Matvælastofnun.
Millibilsástand
á Vestursvæði
Fyrirhuguð fækkun umdæma Mat-
vælastofnunar úr sex í fjögur, sem
gert er ráð fyrir í nýrri reglugerð
um Matvælastofnun, hefur það í för
með sér að Vestursvæði, sem sam-
anstendur af Vesturlandi og Vest-
fjörðum, verður að líkindum skipt
upp. Borgarfjarðarsvæðið og Snæ-
fellsnes munu þá renna inn í Suð-
vesturumdæmi og Dalir og Vest-
firðir inn í Norðvesturumdæmi.
Reglugerðin er sem fyrr seg-
ir í endurskoðun hjá ráðuneyt-
inu og þessi skipting tekur ekki
gildi fyrr en hún hefur verið sam-
þykkt. Þangað til verður Vesturum-
dæmi óbreytt og það gerir það að
verkum að ákveðið millibilsástand
skapast. Elísabet Hrönn Fjóludótt-
ir lét af störfum héraðsdýralækn-
is í umdæminu 1. maí síðastliðinn
og vegna fyrirhugaðrar fækkunar
umdæma verður ekki auglýst eft-
ir nýjum héraðsdýralækni í henn-
ar stað. Sigurborg Daðadóttir yf-
irdýralæknir mun sinna störfum
héraðsdýralæknis í Vesturumdæmi
þangað til breytingin verður sam-
þykkt. „Starfsmenn umdæmisins,
Kristín Þóra Þórhallsdóttir eftir-
litsdýralæknir og Guðlaugur Ant-
onsson dýraeftirlitsmaður, munu
sinna sínum störfum áfram. Ef það
þarf að afgreiða einhver embættis-
verk sem Kristín getur ekki sinnt á
meðan þetta millibilsástand varir,
þá mun ég gera það,“ segir Sigur-
borg í samtali við Skessuhorn.
Mikil kerfisbreyting
Sigurborg segir að með þjónustu-
samningunum og fyrirhugaðri
fækkun embætta muni heilmikil
kerfisbreyting eiga sér stað. „Af því
að við erum búin að semja um að
kaupa verk af þjónustudýralæknum
sem eru starfandi í dreifðum byggð-
um þá getum við sagt að við þurf-
um ekki héraðsdýralækna staðsetta
í þessum dreifðu byggðum, af því
fólk hefur aðgang að hinum dýra-
læknunum,“ segir hún. „Með því að
fækka umdæmum úr sex og í fjög-
ur fækkar um tvo héraðsdýralækna
í landinu. Það er ákveðin hagræð-
ing fólgin í því en á móti kemur að
verkin fara ekki heldur mun Mat-
vælastofnun kaupa þá þjónustu af
dýralæknunum sem eru á staðnum.
Með því er bæði verið að styrkja
og þétta aðgengi að dýralæknum
og styðja betur við afkomumögu-
leika þeirra dýralækna sem starfa í
dreifðum byggðum landsins, sam-
hliða hagræðingu hjá Matvæla-
stofnun,“ segir Sigurborg að end-
ingu. kgk
Birta samantekt grásleppuveiða
og meðafla í vor
Grafið sýnir að hafnir með flesta báta, landanir og afla voru Bakkafjörður, Ólafsfjörður og Siglufjörður. Hæst hlutfall með-
afla var á Ársskógssandi, Ólafsvík og Keflavík. Nokkrar hafnir eru ekki með neinn skráðan meðafla en þær eru Djúpivogur,
Eskifjörður, Hvammstangi, Neskaupstaður og Norðurfjörður.
Dalamenn mótmæla
stöðvun grásleppuveiða
Fé rekið til réttar. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Ljósm. úr safni/ sá.
Samið um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum
Fækkun umdæma MAST skapar millibilsástand á Vestursvæði