Skessuhorn - 20.05.2020, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 2020 25
Su
do
ku
Ungmennafélag Grundarfjarðar
hélt aðalfund félagsins fimmtudag-
inn 14. maí síðastliðinn. Þar voru
hefðbundin aðalfundarstörf á dag-
skrá. Það urðu mannabreytingar í
stjórn en Halldóra Dögg Hjörleifs-
dóttir og Dagný Ósk Guðlaugs-
dóttir gengu úr stjórninni en Hall-
dóra hafði gegnt stjórnarstörfum á
annan áratug. Fundurinn var hald-
inn í íþróttahúsi Grundarfjarðar
og þar var passað upp á að nægt bil
væri á milli stjórnarmanna og ann-
arra fundargesta. tfk
Síðastliðinn fimmtudag barst björg-
unarbátnum Björg í Rifi útkall um
kl. 14:30. Um var að ræða línubát-
inn Landeyju SH sem var vélar-
vana eftir að hafa fengið drauganet í
skrúfuna norður af Rifi. Gekk vel að
manna Björgina og var látið úr höfn
skömmu síðar. Ferðin gekk vel og
greiðlega gekk að koma taug á milli
enda veður gott. Um fjögurleitið
var komið með Landeyju í Rifshöfn
þar sem skorið var úr skrúfunni.
Tók það ekki langan tíma og gátu
þá skipverjar á Landeyju haldið til
veiða aftur til að ljúka við að draga
línuna sem varð eftir. þa
Menntamálaráðuneytið hefur stað-
fest tillögu frá Minjastofnun og
nokkrum velunnurum Háskólans
á Bifröst um friðun elstu bygging-
anna á Bifröst sem reistar voru um
miðbik síðustu aldar. í tilefni þess-
ara tímamóta verður boðað til kaffi-
samsætis fyrir alla velunnara skól-
ans í veitingasalnum á Bifröst. Lilja
Dögg Alfreðsdóttir menntamála-
ráðherra mun ávarpa samkomuna.
„Sigvaldi Thordarson teiknaði
elstu bygginguna á Bifröst, en þar
er nú rekinn veitingastaður. Hús-
ið þykir fallegt og stíhreint og ber
höfundarverki Sigvalda fagurt vitni
og menningarsögulegt gildi gömlu
húsanna hér á Bifröst er mikið,“
segir í tilkynningu.
Samkvæmið hefst klukkan 15.00
á morgun, fimmtudaginn 21. maí,
sem er uppstigningardagur.
mm
Þjóðhátíðardagur Norðmanna var
á sunnudaginn, 17. maí. Af því til-
efni tók Guðjón S Brjánsson, al-
þingismaður og félagi í Norræna
félaginu, sig til og dró að húni fána
frænda vorra í austri, utan við Ráð-
hús Akraness við Stillholt. Með
honum í verkefninu voru ungir og
efnilegir félagsmenn í Norræna fé-
laginu, þeir Alexander Veigar og
Guðjón Máni.
mm
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytið hefur gert nýjan samning við
Icelandair sem ætlað er að tryggja
lágmarks flug til Evrópu og Banda-
ríkjanna til og með 27. júní í sumar.
Flogin verða tvö flug á viku á þrjá
áfangastaði út samningstímann.
Hægt er að framlengja samning-
inn fram í september ef þörf kref-
ur. Áfram verður flogið til Boston,
London og Stokkhólms en flug til
New York og Kaupmannahafnar
verður skoðað á tímabilinu. „Mark-
miðið er sem fyrr að tryggja flug-
samgöngur til og frá landinu vegna
þess ástands sem skapast hefur
vegna Covid-19 faraldursins,“ segir
í tilkynningu.
Nýi samningurinn gildir frá
sunnudeginum 17. maí til laugar-
dagsins 27. júní nk. Ráðuneytið
getur framlengt samningnum tví-
vegis, fyrst til 8. ágúst og aftur til
19. september nk. Um er að ræða
framhald á samningum sem gerðir
hafa verið við Icelandair um lág-
marks millilandaflug á tímabilinu
27. mars til og með 16. maí.
Ríkið mun greiða að hámarki 300
milljónir kr. vegna upphafstímabils
samningsins frá 17. maí til 27. júní.
Greiðslur fyrir flug á öllu tíma-
bilinu geta að hámarki orðið 500
milljónir kr. Tekjur Icelandair af
flugunum munu enn fremur lækka
greiðslur.
mm
Gáttin, oryggisbrestur.island.is, var
opnuð með formlegum hætti í síð-
ustu viku. Vefgáttinni er ætlað til að
auðvelda tilkynningar fyrirtækja og
stofnana um öryggisatvik í rekstri
þeirra. Gáttin er samvinnuverk-
efni Persónuverndar, Póst- og fjar-
skiptastofnunar/CERT-IS og Lög-
reglunnar undir forystu samgöngu-
og sveitarstjórnarráðuneytisins.
í sameiginlegri fréttatilkynningu
hlutaðeigandi kemur fram að í gátt-
inni sé á einum stað og með sam-
ræmdum hætti hægt að tilkynna um
öll öryggisatvik og öryggisbresti
hvort sem þau heyra undir Pers-
ónuvernd eða netöryggissveitina
CERT-IS sem Póst- og fjarskipta-
stofnun rekur. Einnig er hægt að
tilkynna atvikin til Lögreglunnar.
Öryggisatvikin geta verið netatvik,
tengd netárásum eða netglæpum,
en geta einnig birst í öðrum miðl-
um, einkum atvik sem varða vernd
persónuupplýsinga. Gáttinni er
ætlað að bæta þjónustu við þá aðila
sem er skylt að tilkynna öryggisat-
vik samkvæmt lögum. mm
Björgin sótti bát sem
fékk í skrúfuna
Ný stjórn Ungmennafélags Grundarfjarðar f.v: Sigríður Guðbjörg Arnardóttir
formaður, Ragnar Smári Guðmundsson meðstjórnandi, Tómas Freyr Kristjánsson
gjaldkeri, Lísa Ásgeirsdóttir ritari og Guðbrandur Gunnar Garðarsson meðstjórn-
andi. Ljósm. Hinrik Konráðsson.
Aðalfundur UMFG
Tilkynningasíða opnuð
fyrir öryggisatvik í rekstri
Boðað til kaffisamsætis vegna friðunar
elstu bygginganna á Bifröst
Flaggað Norðmönnum til heiðurs
Lágmarks millilandaflug tryggt í sumar