Skessuhorn - 20.05.2020, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 20. MAí 202028
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Börnin á leikskólanum Hnoðrabóli
í Reykholtsdal fengu skemmtilegan
gest í heimsókn til sín í dag. Móð-
urlaust folald sem fæddist á Gríms-
stöðum fyrir um viku síðan kom inn
í leikskólagarðinn. Börnin sýndu
folaldinu takmarkalausan áhuga og
væntumþykju. Folaldið fékk ómælt
knús og klapp frá þeim enda voru
þau að passa það vel þar til Adda
Karen, heimasætan á Grímsstöð-
um, kom og sótti folaldið með vin-
konu sinni Sesselju frá Deildar-
tungu. „Sveitin iðar af nýju lífi á
vorin sem börnin hér á Hnoðrabóli
fá að njóta hér á Grímsstöðum,“
segir Sjöfn Guðlaug Vilhjálmsdótt-
ir leikskólastjóri. mm
Háskóli íslands og Hafrannsókna-
stofnun hafa gert með sér sam-
komulag um samvinnu um nýja
námsleið í sjávar- og vatnalíffræði
með áherslu á fiskifræði sem verð-
ur í boði frá og með næsta hausti
við Líf- og umhverfisvísindadeild
Háskólans. Stofnanirnar hafa um
árabil átt gott samstarf bæði á sviði
kennslu og rannsókna. Þannig hafa
starfsmenn Hafrannsóknastofnun-
ar m.a. sinnt kennslu við háskólann
og kennarar skólans hafa haft rann-
sóknaraðstöðu á Hafrannsókna-
stofnun. Auk þess hafa nemendur
og kennarar háskólans haft aðgang
að rannsóknaskipum stofnunarinn-
ar, bæði til kennslu og rannsókna,
og stofnanirnar hafa unnið sam-
an að rannsóknum í tengslum við
rannsóknarsetur og stofnanir víða
um land.
Um er að ræða tveggja ára meist-
aranám, sem kjörsvið innan líffræði
við Háskóla íslands, sem er byggt
að jöfnum hluta á námskeiðum
(60 einingar) og rannsóknarverk-
efni (60 einingar). Gert ráð fyrir að
Hafrannsóknastofnun muni ráða
sérfræðing til að hafa umsjón með
meistaranáminu og sinna kennslu
í námskeiðum á námsbrautinni
ásamt kennurum Háskóla íslands.
mm
Varðhundarnir fóru að gelta og
góla, ég leit upp frá tölvunni og
fann að mér leið eitthvað skringi-
lega. Ég fór út í garð og reyndi að
róa hundana niður en þeir héldu
áfram að gelta. Jæja, var einhver
eðla eða fugl búinn að stela mat
úr dallinum þeirra, það væri ekki í
fyrsta skiptið. Nei, gamla tíkin Júlía
var oftast róleg yfir því þó að ungi
rakkinn Rex væri að rífast við eðlu
eða fugl. Var einhver að reyna að
klifra yfir vegginn? Nei, hundarn-
ir virtust ekki vera að fylgjast með
veggnum. Ég horfði í kringum mig,
vindurinn lék um laufin en vindur-
inn var að aukast, núna voru topp-
arnir á trjánum í garðinum farnir
að sveiflast til og frá. Mangó ávext-
ir féllu niður úr trjánum í sandinn.
Þetta var furðulegt.
Það segir kannski mikið þegar
maður frá blessaða Borgarnesi, stað
sem er þekktur fyrir að vera eitt
mesta rokrassgat á landinu, er farinn
að furða sig á smá vindhviðum. En
þið verðið að skilja að veðrið hérna
í Níger í Vestur-Afríku er allt öðru-
vísi en við eigum að venjast heima á
íslandi. Þegar ég skoða veðurspána
fyrir borgina Niamey þá er hún
alltaf eins, bara mjög heitt, mjög
þurrt og nær enginn vindur. Svona
er spáin vikum og mánuðum saman
þar til að regntímabilið byrjar. Það
er vonlaust að ræða um veðrið við
heimafólk, það er ekkert til að tala
um, veðrið er alltaf eins.
Þið getið ímyndað ykkur hve erf-
itt þetta er fyrir mig ef ég er með
fólki og það kemur vandræðaleg
þögn. Það er mér í blóð borið að
byrja að tala um veðrið og reyna að
fylla upp í þögnina á svona stund-
um, en heimafólkið hérna bara
hreinlega skilur ekki spurning-
arnar mínar. Þau horfa bara á mig
og svara: Já, það er heitt, já það er
þurrt, já það er logn, og hvað með
það?
Ég var orðinn svo vanur að það
væri ekkert veður hérna að það tók
mig smá stund að átta mig á hvern-
ig mér leið þegar ég stóð þarna í
garðinum. Ég fann bara einhvern
veginn á mér að loftþrýstingurinn
var að breytast, eins og sannur ís-
lendingur þá fann ég það í beinun-
um að það væri stormur á leiðinni.
Ég var skælbrosandi, það var loks-
ins að koma alvöru veður!
Brosið hvarf þegar ég sá sand-
vegginn nálgast. Hugurinn minn
var bara ekki að skilja hvað ég var
að horfa á, þetta var eins og ið-
andi fjallgarður á hreyfingu. Vin-
kona mín Noemi Mioara tók þess-
ar myndir þegar stormurinn nálg-
aðist hennar hús, en ég fattaði ekki
að taka upp símann. Ég stóð bara
stjarfur og horfði á húsin og heilu
hverfin bara hverfa þegar veggur-
inn skreið yfir, og áður en ég vissi
af var ég sjálfur horfinn inn í sand-
storminn. Agnarfín sandkorn fylltu
augu, eyru, nef og munn og vind-
urinn reif mann til og frá. Hliðið
opnaðist og kærastan mín Sasha
kom keyrandi inn í garðinn. Henni
hafði verið ráðlagt að fara heim eins
hratt og hún gæti. Við og hundarnir
komum okkur í skjól á meðan sand-
stormurinn gerði himinn blóðrauð-
an og svo var sandmökkurinn svo
þykkur að allt var í niðamyrkri.
Rafmagnið fór af og við sátum
inni í stofu við kertaljós og horfð-
um og hlustuðum saman á krafta
náttúrunnar flæða yfir borgina.
Svo breyttist hljóðið, við fórum að
heyra þrumur. Á eftir sandstorm-
inum komu þrumur, eldingar og
svo mikið regn að garðurinn okk-
ar leit út eins og tjörn. Við vorum
mjög þakklát að húsið okkar er
upphækkað því það munaði litlu
að flætt hefði inn. Tíminn leið en
á endanum minnkaði vindurinn og
sólin fór að skína aftur. Við stigum
út í garð og bara lyktin af regni eft-
ir svona storm í eyðimörkinni er
hreinlega ólýsanleg - ég var líkleg-
ast alveg jafnglaður með storminn
og plönturnar í garðinum. Þær hafa
loksins vatn til að vaxa og ég hef
loksins veður til að tala um í vand-
ræðalegum þögnum.
Geir Konráð Theódórsson í Níger.
Vandræðalegar þagnir
á undan veðrinu
Börnin á Hnoðrabóli
fengu folald í heimsókn
Fulltrúar Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnunar hittust niðri á höfn í blíðunni
á dögunum og staðfestu samstarfssamninginn. Ljósm. HÍ.
HÍ og Hafró mennta fiski-
fræðinga framtíðarinnar