Skessuhorn - 10.06.2020, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 10. júNÍ 20208
Grunsamlegir
menn við
höfnina
STYKKISH: Haft var sam-
band við lögreglu og greint
frá grunsamlegum manna-
ferðum við Stykkishólms-
höfn árla á sunnudagsmorg-
un. Sagt var frá tveimur
mönnum á flakki um höfn-
ina milli kl. 5:00 og 6:00, þar
sem þeir skoðuðu báta og
tóku myndir. Þótti tilkynn-
anda þetta undarleg hegð-
un svo snemma dags og taldi
að þeir hefðu verið að skoða
rúllur af bátum. Þeir drifu
sig síðan inn í bíl og óku
beint út úr bænum. Lét hann
fylgja lýsingar á mönnun-
um og bílnúmer en lögregla
hefur ekki fengið neinar til-
kynningar um þjófnað. -kgk
Dularfullt
símtal
VESTURLAND: Kona
ein í umdæminu hafði sam-
band við lögreglu þar sem
hún hafði fengið undarlegt
símtal skömmu fyrir mið-
nætti kvöld eitt í liðinni viku.
Sagði hún frá því að mað-
ur frá ákveðnu fyrirtæki í
Reykjavík hefði hringt í sig,
spurt hana um nafn og síð-
an tjáð henni að hann væri
að koma með sjónvarps-
tæki sem hún hefði pantað.
Konan hafði ekkert sjón-
varp pantað og fannst sím-
talið því grunsamlegt í meira
lagi. Lögregla kannaði málið
og við rannsókn þess kom í
ljós að þar hafði 13 ára son-
ur konunnar verið að gera sí-
maati í móður sinni. Konan
ætlaði að ræða við son sinn
vegna málsins. -kgk
Barn læst í bíl
AKRANES: Barn læst-
ist inni í bíl á Akranesi síð-
astliðinn miðvikudag. Haft
var samband við neyðar-
línu vegna þessa um hálf níu
að kvöldi. Að sögn lögreglu
læsti barnið sig sjálft inni
fyrir slysni og kom lögregla
á vettvang, opnaði bílinn og
hleypti barninu út. Þessu
tengt segir lögregla of al-
gengt að bílar séu skildir eft-
ir í lausagangi í umdæminu.
Slíkt er óheimilt skv. um-
ferðarlögum, en hætta get-
ur stafað að slíku auk þess
sem bílarnir menga á meðan.
Hefur lögregla haft afskipti
af ökumönnum vegna þessa.
-kgk
Fullur á
skutlunni
BORGARNES: Haft var
samband við lögreglu laust
eftir kl. 14:00 á laugardag
og tilkynnt um ölvaðan öku-
mann á þriggja hjóla raf-
skutlu í Borgarnesi. Lög-
regla fór á stúfana og leitaði
mannsins víða um bæinn en
fann hann ekki. -kgk
Mörg
umferðarmál
VESTURLAND: Mörg
umferðarmál komu inn á
borð Lögreglunnar á Vest-
urlandi í liðinni viku. Fyrir
utan hraðakstra, sem fjallað
er um í annarri frétt, voru
málin að mestu hefðbund-
in, að sögn lögreglu. Einn
ökumaður var stöðvað-
ur í Borgarfirði með kerru
í eftirdragi, án þess að
hafa til þess tilskilin öku-
réttindi. Ökumenn voru
áminntir fyrir að leggja
gegn akstursstefni á Akra-
nesi og númer voru klippt
af nokkrum bílum. Þá var
haft eftirlit með atvinnu-
tækjum, bæði umferðareft-
irlitið og vegaeftirlit lög-
reglu. Nokkrir voru sekt-
aðir fyrir að vera ekki með
öryggisbelti og sektaðir um
20 þús. krónur fyrir athæf-
ið. Minniháttar umferð-
aróhapp varð á Kirkjubraut
á Akranesi á mánudaginn.
Kerra sem skagaði út á göt-
una rann úr stæðinu og út á
götuna. Þar hafnaði hún á
bíl og öðrum bíl var ekið á
kerruna. -kgk
Datt af fjalla-
hjóli
SNÆFELLSBÆR: Slys
varð á jökulhálsleið mið-
vikudaginn 3. júní síðast-
liðinn, þegar maður féll af
fjallahjóli á leið niður háls-
inn. Maðurinn kenndi sér
eymsla á hægri öxl eftir
fallið. Sjúkrabíll og sjúkra-
lið fóru á vettvang og fluttu
manninn á heilsugæsluna í
Ólafsvík til aðhlynningar.
-kgk
Með gras í vasa
AKRANES: Maður var
kærður fyrir vörslu fíkni-
efna á Akranesi í vikunni
sem leið. Lögregla varð
mannsins vör þar sem hann
var á gangi í bænum. Að
sögn lögreglu lyktaði mað-
urinn af kannabis. Hann
heimilaði leit á sér og við
leitina fundust kannabis-
efnin. -kgk
Smáþjófnaðir
VESTURLAND: Drátt-
arkúlu var stolið af bifreið
þar sem hún stóð fyrir utan
Nettó í Borgarnesi í vik-
unni sem leið. Málið er til
rannsóknar og verið að fara
yfir efni úr öryggismynda-
vélum vegna þessa. Þá fékk
lögregla tilkynningu um
stolið reiðhjól á Akranesi á
föstudaginn. Lögregla hef-
ur einnig orðið vör við um-
ræðu um þjófnaði á gaskút-
um og blómakerjum, en þó
hafa henni ekki borist nein-
ar formlegar tilkynningar
um slíkt. Lögregla hvetur
íbúa umdæmisins til að láta
vita um slíka smáþjófnaði,
sem aðra. -kgk
Eins og áður hefur verið greint frá
er fyrirhugað að útbúa útsýnisstað
í Súgandisey. Stykkishólmsbær hef-
ur, í samstarfi við Félags íslenskra
landslagsarkitekta, auglýst eftir
þátttakendum í forval vegna sam-
keppni um hönnun staðarins. „Súg-
andisey er eftirsóknarverður staður
fyrir heimamenn og gesti bæjar-
ins til göngu- og náttúruuplifunar.
Meðal annars er eyjan rík af fugla-
lífi og einstöku útsýni yfir Breiða-
fjörð og bæjarstæði Stykkishólms-
bæjar. Auk þess fara vinsældir Súg-
andiseyjarvita sem myndefnis vax-
andi,“ segir í tilkynningu frá Stykk-
ishólmsbæ og FÍLA.
Í verkefninu verður leitast við að
afla hugmynd að hönnun og efnis-
notkun útsýnissvæðisins, sem á að
gegna því hlutverki að svala for-
vitni þeirra sem vilja skoða þver-
hnípt bjarg Súgandiseyjar. Valin
verða fjögur teymi til þátttöku og
fær hvert greiddar 750 þús. krón-
ur fyrir tillögur sínar. Að auki verða
fimm þúsund krónur greiddar fyr-
ir verðlaunatillöguna og stefnt að
því að semja við verðlaunahöfunda
um áframhaldandi hönnun útsýn-
isstaðarins, að því er fram kemur
í tilkynningu frá Stykkishólmsbæ.
Gerð er sú krafa að í hverju um-
sóknarteymi sé landslagsarkitekt,
maður á lista Mannvirkjastofnunar
yfir löggilda hönnuði og að teym-
ið innihaldi a.m.k. einn sem hef-
ur hlotið viðurkenningu eða verð-
laun í skipulags- og hugmyndasam-
keppnum. Valnefnd, skipuð fulltrú-
um Stykkishólmsbæjar og FÍLA,
mun meta hvaða teymi uppfylla
skilyrði til þátttöku.
kgk
Sjúkraþjálfararnir Anna Sólveig
Smáradóttir, Einar Harðarson,
Gunnar Smári jónbjörnsson og
Helga Sjöfn jóhannesdóttir opnuðu
Sjúkraþjálfun Akraness seinni hluta
maímánaðar. Eru þau fjögur eig-
endur og rekstraraðilar stofunnar,
sem staðsett er við Suðurgötu 126.
Til að halda upp á opnun stofunn-
ar buðu eigendurnir til opnunar-
teitis síðastliðinn föstudag, þar sem
gestum var boðið að koma og skoða
nýju stofuna og fræðast um starf-
semina, sem hefur gengið vel fyrstu
vikurnar, að sögn eigenda. kgk
Kristján Þór júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, hef-
ur staðfest tillögu Hafró að nýju
áhættumati vegna mögulegrar
erfðablöndunar frá laxeldi. Það er
mat á magni frjórra laxa sem strjúka
úr eldi í sjó og vænta má að komi í
ár þar sem villta stofna er að finna.
Metið er að erfðablöndun eldislaxa
við villta nytjastjofna, að teknu til-
liti til mótvægisaðgerða, verði það
mikil að tíðni arfgerða villtra stofna
breytist og valdi versnandi hæfni
stofngerða þeirra, að því er fram
kemur í tilkynningu frá atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Uppfært áhættumat gerir ráð fyr-
ir að ala megi 106.500 tonn af laxi
í sjó, mælt í hámarkslífmassa. Það
felur í sér 20 prósenta aukningu á
heimiluðu eldi frjórra laxa. Há-
markseldismagn á frjóum laxi í sjó
verður 64.500 tonn á Vestfjörðum
og 42.000 tonn á Austfjörðum.
Á Vestfjörðum er stærsta breyt-
ingin sú að við endurskoðað mat
verður leyfilegt að ala 12.000 tonn
í Ísafjarðardjúpi, en jafnframt verð-
ur leyft eldi 2.500 tonna í Önund-
arfirði. Samkvæmt áhættumatinu
verður eldi ekki stundað nær veiði-
ám í botni Ísafjarðardjúps en sem
nemur línu frá Ögurnesi að Æðey
og Hólmasundi. Ef notuð eru 400
gramma seyði má auka hámarks-
lífmassa í Ísafjarðardjúpi í 14.000
tonn. Á Austfjörðum verður 60%
aukning á hámarkseldi sem kemur
fram í Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði
og Seyðisfirði. Í Fáskrúðsfirði og
Reyðarfirði er lagt til að hámarks-
lífmassi geti orðið 14.000 og 18.000
ef notuð eru 400 gramma seyði.
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra segir að stærsta breyt-
inging í frumvarpi um fiskeldi hafi
verið lögfesting áhættumats erfða-
blöndunar. Hlutverk matsins sé að
koma í veg fyrir hugsanleg spjöll
á villtum laxastofnun. „Nú hefur
Hafrannsóknastofnun, eftir yfir-
ferð samráðsnefndar um fiskeldi,
uppfært fyrra áhættumat sitt og ég
staðfest það. Með því erum við að
framfylgja þeirri stefnu stjórnvalda
að byggja ákvarðanir um framþró-
un fiskeldis á rannsóknum og ráð-
gjöf vísindamanna. jafnframt er
verið að ýta undir að fiskeldi verði
sterk og öflug atvinnugrein þar sem
sjálfbær þróun og vernd lífríkis er
höfð að leiðarljósi,“ segir Krist-
ján Þór júlíusson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra. kgk
Horft yfir Stykkishólm. Súgandisey næst í mynd.
Boðað til hönnunarsamkeppni
um útsýnisstað
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra.
Ljósm. Stjórnarráðið.
Nýtt áhættumat erfðablöndunar staðfest
Bæjarstjórinn á Akranesi færði eigendum blómvönd í tilefni opnunarinnar. F.v. Einar Harðarson, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir,
Gunnar Smári Jónbjörnsson, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Anna Sólveig Smáradóttir.
Fögnuðu opnun Sjúkraþjálfunar Akraness