Skessuhorn - 10.06.2020, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 10. júNÍ 202012
Haldnir voru tveir kynningarfund-
ir í Dalabúð síðastliðinn miðviku-
dag fyrir íbúa Dalabyggðar. Boðað
var til þeirra til að kynna fyrirhug-
aða auglýsingu um breytingu á að-
alskipulagi í sveitarfélaginu. Báðir
fundirnir fjölluðu um breytingar á
aðalskipulagi vegna skilgreiningar á
iðnaðarsvæði á landi í gamla Laxár-
dalshreppi. Annars vegar í landi Sól-
heima og hins vegar í landi Hróð-
nýjarstaða. Þar er sem kunnugt er
fyrirhugað að reisa vindorkugarða.
Ekki var fjölmennt á fundunum er
gera má ráð fyrir að áheyrendur
hafi verið fleiri en fundargestir þar
sem báðum fundum var streymt á
YouTube-rás sveitarfélagsins, Dala-
byggð TV.
Eftir kynningarfundina voru
gögnin lögð fyrir umhverfis- og
skipulagsnefnd ásamt sveitarstjórn
til frekari afgreiðslu. Á fundi um-
hverfis- og skipulagsnefndar síðast-
liðinn föstudag snerust tveir fyrstu
dagskrárliðir um undirbúning
vegna væntanlegra vindorkugarða,
þ.e. tillaga að breytingu á aðal-
skipulagi Dalabyggðar 2004-2016.
Breytingin varðar skilgreiningu
iðnaðarsvæðis vegna uppbyggingar
vindorkuvers til raforkuframleiðslu
í landi Sólheima annars vegar og á
Hróðnýjarstöðum hins vegar.
Afgreitt úr nefnd
Á fundi sveitarstjórnar 14. nóvem-
ber síðastliðinn var samþykkt
að vinna að aðalskipulagsbreyt-
ingu vegna breyttrar landnotkun-
ar í landi beggja jarðanna í sam-
ræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulags-
laga. „Lýsing vegna breytinganna
hefur þegar verið samþykkt. Um-
sagnir þar til bærra aðila liggja fyrir
og hefur verið haldinn íbúafundur
þar sem breytingarnar voru kynnt-
ar,“ sagði í fundargerð umhverfis-
og skipulagsnefndar um afgreiðslu
vegna fyrirhugaðra framkvæmda
á Sólheimum. Nákvæmlega sam-
hljóða afgreiðsla var á fundi nefnd-
arinnar vegna Hróðnýjarstaða. „Nú
er lagður fram uppdráttur og grein-
argerð sem sýnir tillögu að aðal-
skipulagsbreytingunni. Umhverfis-
og skipulagsnefnd samþykkir fram-
lagðan uppdrátt/greinargerð og að
hann skuli auglýstur í samræmi við
31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010
og vísar honum til staðfestingar í
sveitarstjórn,“ segir í bókun nefnd-
arinnar. Umhverfis- og skipulags-
nefnd hefur þannig samþykkt fyr-
ir sitt leyti aðalskipulagsbreytingu
vegna vindmyllugarða á báðum
jörðunum í Laxárdal. Komi til þess
að sveitarstjórn auglýsi umræddar
skipulagsbreytingar mun frestur til
að gera athugasemdir við þær vera
minnst sex vikur. Næsti fundur í
sveitarstjórn Dalabyggðar er fyrir-
hugaður á morgun, fimmtudag.
Leggja til íbúakosningu
Athygli vekur að jafnframt er
tekið fram í bókunum skipulags- og
umhverfisnefndar á föstudaginn,
vegna beggja jarðanna, að nefnd-
armenn komu því á framfæri við
sveitarstjórn að íhugað verði að láta
framkvæma viðhorfskönnun með-
al íbúa í Dalabyggð gagnvart nýt-
ingu vindorku til raforkuvinnslu í
sveitarfélaginu. Ljóst er að málið
er umdeilt innan sveitarfélagsins,
einkum vegna nálægðar fyrirhug-
aðs virkjanasvæðis á Hróðnýjar-
stöðum við byggð sm/mm
Sveitarstjórn Dalabyggðar mun á
fundi sínum næstkomandi fimmtu-
dag, 11. júní 2020, taka ákvörðun
um hvort auglýst verði breyting á
aðalskipulagi Dalabyggðar sem fel-
ur í sér að breyta hluta tveggja land-
búnaðarjarða í iðnaðarsvæði til þess
að þar megi reisa vindorkuvirkjanir.
Annað þessara verkefna mjög ná-
lægt byggð og á einum mest áber-
andi stað sem hægt er að hugsa sér
í sveitinni og bæði verkefnin nán-
ast ofaní tveimur bestu laxveiðiám
héraðsins.
Áður en lengra er haldið, þá
langar mig til þess að þú, lesandi
þessara orða, veltir fyrir þér tveim-
ur spurningum. Í fyrsta lagi; mynd-
ir þú vilja hafa sem nágranna 40
stykki 180 metra háar vindmyllur
með tilheyrandi blikkljósum, al-
mennri sjónmengun, hljóðmengun,
þungaflutningum, vinnubúðum,
veglagningu gegnum landið hjá þér
og bara öllu því stórkostlega raski
sem svona framkvæmd mun hafa
í för með sér? Í öðru lagi, myndir
þú vilja kaupa jörð eða fasteign þar
sem vindorkuvirkjun væri starfrækt
í eins til tveggja kílómetra fjarlægð?
Ef þér finnst þig vanta forsendur til
að mynda þér skoðun bendi ég á
myndband sem hægt er að nálgast á
síðunni www.hagsmunir.is og sýn-
ir byggingu stærstu vindorkuvirkj-
unar í suð-austur Asíu. Það er sam-
bærilegt að stærð og virkjunin sem
áformað er að byggja að Hróðnýj-
arstöðum.
Næst langar mig til að þú veltir
því fyrir þér af hverju lítið sveitar-
félag úti á landi er svo mikið sem að
íhuga að leyfa að sett verði upp vind-
orkuvirkjun á stað sem er svo aug-
ljóslega vondur kostur fyrir sveitina
og fólkið sem þar býr. Og það áður
en ríkisstjórn Íslands hefur myndað
stefnu og sett lög um virkjun vind-
orku. Við nágrannarnir höfum svo
sannarlega velt þessu fyrir okkur
og spurt. Þau svör sem við höfum
fengið snúast aðallega um að fram-
kvæmd sem þessi skapi svo mörg
störf í heimabyggð. Hins vegar
þegar gengið er á sveitarstjórn og
verkfræðistofuna Eflu sem skrifar
aðalskipulagslýsinguna fyrir sveit-
arstjórn og fullyrðir í henni að at-
vinnuframboð muni aukast í sveit-
inni með þessari framkvæmd, þá er
fátt um svör um það hversu mörg
og hvernig störf þau telji að skapist
fyrir heimamenn né heldur hvenær
þau störf verði að veruleika. Okkar
álit er að á starfstíma svona virkj-
unar verði engin íbúi Dalabyggðar
með atvinnu af því að hafa eftirlit
með virkjuninni og gefum lítið fyrir
fleiri órökstuddar fullyrðingar í að-
alskipulagslýsingunni.
Okkur finnst líka ótrúlegt að
ennþá í dag árið 2020 þegar um-
ræðan snýst um að skapa störf, þá
séu staðbundin láglaunastörf það
eina sem fólki dettur í hug. Það var
bylting fyrir framan nefið á okk-
ur fyrir nokkrum vikum. Allir sem
vettlingi gátu valdið stunduðu fjar-
vinnu í lengri eða skemmri tíma.
Eftir þessa byltingu er fyrirtækjum
ljóst að þau geta sparað stórar fjár-
hæðir í húsnæðiskostnaði með því
að láta starfsmenn vinna heima og í
þessum töluðu orðum eru flest fyr-
irtæki að móta sér stefnu varðandi
fjarvinnu. úrval starfa fyrir Dala-
menn jókst um mörg hundruð pró-
sent á fyrri helmingi 2020!
Þann 3. júní s.l. var haldinn
kynningarfundur um aðalskipu-
lagsbreytinguna. Dalabyggð boð-
aði fundinn og tefldi fram skipu-
lagsfulltrúa sveitarfélagsins, starfs-
manni Eflu og framkvæmdaraðil-
um. Einungis einn sveitarstjórnar-
maður tjáði sig á kynningarfundin-
um og þá var það aðallega til þess
að snúa út úr fyrir okkur og setja út
á orðalag okkar sem tjáðum okkur á
móti framkvæmdinni. Það er væg-
ast sagt undarlegt að sveitarstjórn
sé að leggja til þessa breytingu,
halda þennan kynningarfund fyrir
íbúa og tjá sig svo ekkert um mál-
ið. Það er okkar mat að sveitarstjór-
nir í svona litlum samfélögum ráði
ekki við verkefni af þessari stærðar-
gráðu. Dalabyggð er ör-samfélag.
Þar búa milli 600 og 700 manns á
mjög dreifðu landsvæði. Sveitar-
stjórnarfólk er kosið einstaklings-
kosningu. Það þýðir að það hefur
ekkert bakland að leita í. Þetta er
allt frábært fólk sem er að gera sitt
besta, en það hefur bara því miður
ekki þá burði sem þarf til að glíma
við svona risavaxin mál. Svona mál
verða að vera tækluð á landsvísu!
Nú erum við búin að hamast í
þessu máli af veikum mætti í tvö
og hálft ár með tilheyrandi vinnu,
kostnaði og áhyggjum. Okkur
finnst við vera að róa lífróður. Ekki
bara til bjargar okkur sjálfum held-
ur sveitinni okkar og landinu okk-
ar. Það getur ekki verið að við Ís-
lendingar viljum að ævintýramenn
með fulla vasa fjár frá erlendum
fjárfestum geti riðið hér um héruð
og helgað sér land til þess að setja
upp vindorkuvirkjanir í stórum stíl.
Það getur hins vegar vel verið að
það sé sniðugt fyrir Íslendinga að
virkja vind einhversstaðar. En ger-
um þetta eins og fólk. Fórnum ekki
meiri hagsmunum fyrir minni, velj-
um staðsetningu og framkvæmda-
raðila af kostgæfni. Við eigum nógu
mörg dæmi eins og vatnsátöppun-
arverksmiðjurnar í Snæfellsbæ og
verksmiðjuna í Helguvík svo ein-
hver svipuð sorgardæmi séu nefnd.
Í guðanna bænum vöndum okkur!
Ég biðla hér með til yfirvalda og
almennings um að hjálpa okkur að
stoppa þessi mál í Dalabyggð áður
en illa fer og þjóðin missir þetta úr
höndunum á sér.
Steinunn M. Sigurbjörnsdóttir,
Vígholtsstöðum
Brynjólfur Ottesen, bóndi á Ytra-
Hólmi í Hvalfjarðarsveit, var lík-
lega með fyrstu bændum til að hefja
slátt á Vesturlandi þetta sumarið, ef
ekki sá fyrsti. Hann festi sláttuvél-
ina aftan í traktorinn síðastliðinn
fimmtudag. Hann ætlar þó ekki
að halda slætti áfram í bili, kvaðst
bara hafa verið að hreinsa aðeins í
kringum bæinn, enda sprettan ekki
ýkja mikil enn sem komið er. Enn
er lambfé í túnum á Ytra-Hólmi,
en Brynjólfur reiknar með að ám
og afkvæmum þeirra verði ekið
til fjalls um og eftir miðjan mán-
uðinn. Hann á síðan von á að hefja
heyskap af fullum krafti í kringum
mánaðamótin og kveðst bjartsýnn á
gott heyskaparsumar.
Hann þarf enda nokkuð af heyi
til að fóðra ærnar, en á Ytra-Hólmi
eru um sex hundruð fjár. Ytra-
Hólmsbændur þurfa þó ekki að
kvíða því að verða heylausir, eiga
enn töluverðar fyrningar frá síðasta
sumri, sem var bændum einstaklega
hagfellt til heyskapar víðast hvar á
landinu. kgk/ Ljósm. kgk.
Pennagrein
Stjórnlaus virkjanaáform –
Dalabyggð ríður á vaðið
Sólveig Olga Sigurðardóttir frá Eflu kynnti á íbúafundi í síðustu viku drög að til-
lögu um breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar. Ljósm. sm.
Kynntu breytingar á aðalskipulagi
vegna fyrirhugaðra vindorkugarða
Flatt á túnum á Ytra-Hólmi. Akrafjallið í baksýn.
Sláttur hafinn á Ytra-Hólmi
Brynjólfur Ottesen bóndi á Ytra-Hólmi.