Skessuhorn - 01.07.2020, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 27. tbl. 23. árg. 1. júlí 2020 - kr. 950 í lausasölu
Á mánudaginn var spilað fyrsta af þremur mótum sumarsins sem félag eldri borgara á Akranesi og í Borgarbyggð spila sín á milli í sumar. Seinni mótsdagarnir verða í
Nesi 21. júlí og Borgarnesi 13. ágúst. Fimmtíu manna hópur kom saman eftir hádegið á mánudaginn á púttvellinum við Garðavöll og lauk keppni síðdegis. Veðrið lék við
fólkið, en 23 gráðu hiti var á Akranesi, sól og logn. Ljósm. mm.
Smitum af Covid-19 hefur verið
að fjölga að nýju frá því landið var
opnað fyrir ferðalög 15. júní síð-
astliðinn. Staðfest smit á landinu
eru nú 12 og 415 eru í sóttkví. Á
Vesturlandi eru sjö í sóttkví sam-
kvæmt tölum frá Lögreglunni á
Vesturlandi í gær; fimm á Akranesi,
einn í Borgarnesi og einn í Stykk-
ishólmi. Lögreglustjórar og aðr-
ir yfirmenn hjá lögregluembætt-
um landsins funduðu um stöðuna
með sóttvarnalækni, almannavörn-
um og heilsugæslunni í gærmorg-
un. „Við höfum áhyggjur af því að
fólk sé að slaka á sóttvörnum,“ seg-
ir Ásmundur Kr. Ásmundsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn í samtali
við Skessuhorn. Sumrinu fylgja
viðburðir þar sem fjölmenni kemur
saman. Segir Ásmundur lögregluna
hafa áhyggjur af smitvörnum þeg-
ar kemur að bæjarhátíðum, íþrótta-
viðburðum og öðrum fjölmennum
samkomum. Minnir hann á að enn
eru í gildi 500 manna samkomutak-
markanir.
Hreinlæti besta vörnin
Um næstu helgi verða m.a. Írskir dag-
ar á Akranesi og bæjarhátíðin Heim
í Búðardal, þar sem alla jafnan kem-
ur saman fjöldi fólks. Vill Lögreglan
á Vesturlandi minna alla á að gæta vel
að persónulegu hreinlæti og sóttvörn-
um. „Þó svo að ekki verði brekkusöng-
ur eða ball á Írskum dögum verða aðr-
ir viðburðir þar sem margir koma sam-
an, hverfasamkomur og skemmtanir
í heimahúsum. Við verðum með auk-
inn mannskap þessa helgi og sérsveit-
in verður okkur innan handar. En við
sjáum að fólk er farið að slaka mikið á
hvað varðar persónulegt hreinlæti og
viljum við minna alla á að gleyma sér
ekki. Veiran er greinilega ekki farin og
besta vörnin er að þvo hendur, spritta
og hugsa vel hvern er verið að faðma,“
segir Ásmundur. arg
Covid-19 tekur sig
upp að nýju
Þjóðin gekk til kosninga á laug-
ardaginn og valdi sér forseta lýð-
veldisins næstu fjögur árin. Ein-
muna veðurblíða einkenndi kosn-
ingadaginn og margir því í hátíð-
arskapi þegar þeir nýttu sér hinn
æðsta rétt sem þegnum í lýðræð-
isríki er veittur. Niðurstaða kosn-
inganna var afgerandi. Guðni Th
Jóhannesson var endurkjörinn
forseti Íslands. Hlaut hann 92,2%
greiddra atkvæða, en áskorand-
inn Guðmundur Franklín Jóns-
son 7,8%. Kjörsókn á landsvísu
var 66,9%.
Yfirkjörstjórn í Norðvest-
urkjördæmi hafði aðsetur sitt
í Borgarnesi. Lokatölur það-
an bárust á sjöunda tímanum á
sunnudagsmorgun. Þar féllu at-
kvæði þannig að Guðni Th. hlaut
um 92% atkvæða og Guðmundur
Franklín Jónsson um 8%. Kjör-
sókn var 69,2 prósent í kjördæm-
inu.
mm
Guðni Th Jóhannesson
endurkjörinn forseti Íslands
Tilboð gildir út júlí 2020
With ham and cheese
329 kr.
með skinku og osti
Írskt skraut
Faxafeni 11, 108 Reykjavík s: 5340534
sendum á
landsbyggðina!
Arion appið
Skv. könnun MMR.
Besta bankaappið
�jórða árið í röð
Írskir dagar
1.-5. júlí 2020