Skessuhorn - 01.07.2020, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 20202
Í ljósi þess að smitum fer fjölg-
andi hér á landi að nýju er gott
að minna á að við erum öll sótt-
varnir og megum hvergi slá
slöku við í baráttunni gegn Kór-
ónaveirunni.
Á morgun, fimmtudag, verð-
ur víða léttskýjað en þó skýj-
að við austurströndina ásamt
stöku skúrum sunnanlands.
Hiti frá 7 stigum. Á föstudag og
laugardag má búast við aust-
lægri átt, bjart verður með köfl-
um en víða skýjað og úrkomu-
lítið við ströndina sunnan- og
austanvert. Hiti frá 8 til 15 stig.
Á sunnudag og mánudag er
gert ráð fyrir norðlægri átt og
skýjuðu veðri en bjart með köfl-
um sunnan heiða. Dálítil væta
af og til, kólnar í veðri norðan-
lands.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns hvort fólk noti al-
mennt sólarvörn. Helmingur
kjósenda eða 50% svöruðu, „já,
stundum, en þó aðallega í út-
löndum.“ 30% svöruðu, „nei,
hvað er það?“ Að lokum voru
19% sem sögðu „Já, alltaf þegar
sólin skín.“
Í næstu viku er spurt:
Hvaðan sækir þú
helst fréttirnar?
Ingileif Aðalheiður Gunnars-
dóttir hefur starfað sem hár-
greiðslumeistari í 40 ár. Ingileif
er Vestlendingur vikunnar að
þessu sinni, hress og skemmti-
leg að vanda.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Fimmtudag-
laugardag
T
I
L
B
O
Ð
verslunin_bjarg
15%
afsláttur af öllum
fatnaði og snyrti-
vörum fyrir dömur
og herra
30%
afsláttur af sér-
völdum snyrti-
vörum og fatnaði
Fylgist með okkur
á Facebook
Faxaflóahafnir og Tækniskólinn
hafa undirritað samkomulag um
að auka samstarf og aðgerðir til að
jafna hlut kynjanna í skipstjórnar-
og vélstjóranámi. Um margþættan
ávinning verður að ræða fyrir báða
samningsaðila. Meðal annars vilja
Faxaflóahafnir gera störf í hafnar-
þjónustu fyrirtækisins aðgengilegri
fyrir konur og ætla að ráða tvær
konur sem stunda nám í skipstjórn
eða vélstjórn frá maímánuði til loka
ágústmánaðar ár hvert. Starf þeirra
verði í hafnarþjónustu fyrirtækis-
ins þar sem þær fái starfsreynslu
við móttöku skipa, vinnu um borð
í lóðs- og dráttarbátum fyrirtækis-
ins og hafnsöguþjónustu. Þá munu
Faxaflóahafnir og Tækniskólinn
útfæra sameiginlega tillögu að veit-
ingu viðurkenningar fyrir konu eða
konur sem stunda nám í skipstjórn
og vélstjórn.
mm
Karen Jónsdóttir, eigandi Matar-
búrs Kaju og Café Kaju á Akranesi,
hlaut í síðustu viku viðurkenningu
frá Náttúrulækningafélagi Reykja-
víkur fyrir frumkvöðlastarf í sátt
við náttúru og umhverfi. Kaja rek-
ur eins og kunnugt er verslun með
umbúðalausum, lífrænt vottuðum
vörum og lífrænt kaffihús. Ingi Þór
Jónsson, formaður Náttúrulækn-
ingafélags Reykjavíkur hélt stutt
erindi þar sem hann þakkaði Kaju
fyrir gott starf í þágu náttúrunn-
ar og afhenti henni viðurkenningu
félagsins.
arg
Átta af tíu sveitarfélög á Vesturlandi
verða af samtals um 400 milljónum
króna í tekjur úr Jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga sökum minni tekna sjóðsins
sem skrifast á efnahagsáhrif vegna
Covid-19. Hlutverk Jöfnunarsjóðs
er að veita sveitarfélögum framlög til
jöfnunar á mismunandi tekjumögu-
leikum þeirra og útgjaldaþörf ásamt
því að greiða lögbundin framlög til
samtaka og stofnana sveitarfélaga.
Tvö sveitarfélaganna á Vesturlandi,
Skorradalshreppur og Hvalfjarðar-
sveit, eru það vel sett að þau fá ekki
framlög úr Jöfnunarsjóði og snert-
ir breytingin þau því ekki. Hin nýja
áætlun um tekjur Jöfnunarsjóðs ger-
ir ráð fyrir að tekjur hans lækki um
tæpa 3,8 milljarða króna. Mest lækka
þau framlög sem byggja á skatt-
tekjum ríkissjóðs. Það eru framlög
vegna lækkandi tekna af fasteigna-
skatti, útgjaldajöfnunarframlög og
almenn framlög vegna málefna fatl-
aðs fólks en þau síðastnefndu byggja
bæði á framlögum vegna skatttekna
ríkissjóðs og tekjum sjóðsins af
álagningarstofni útsvars 2020. Sig-
urður Ingi Jóhannsson, samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra, hefur
staðfest þessar tillögur ráðgjafar-
nefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Samtals skerðast tekjur Jöfnunar-
sjóðs til vestlensku sveitarfélaganna
átta um 399 milljónir króna þeg-
ar tekin eru saman framlög vegna
lækkunar tekna vegna fasteigna-
skatta og útgjaldajöfnunarframlag.
Framlög til Borgarbyggðar skerðast
alls um 123 milljónir króna, til Akra-
neskaupstaðar um 119 milljónir, til
Dalabyggðar um rúmar 30 milljónir,
Snæfellsbæjar um rúmar 57 milljón-
ir, Stykkishólmsbæjar um 26,5 millj-
ónir, Eyja- og Miklaholtshrepps um
18,4 milljónir og Helgafellssveitar
um 3,2 milljónir. Fyrir fámennustu
sveitarfélögin verður þannig um að
ræða töluvert högg í tekjustofn.
Samkvæmt breytingu á lögum um
tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995
sem samþykkt var á Alþingi 11. maí
síðastliðinn er Jöfnunarsjóði heimilt
að nýta allt að 1.500 m.kr. úr Fast-
eignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga á þessu ári til mótvægisaðgerða
vegna lækkunar tekna Jöfnunarsjóðs
á árinu 2020. Ekki hefur verið tek-
in ákvörðun um ráðstöfun þess fjár-
magns en gert er ráð fyrir því að
ákvörðun um ráðstöfun þess verði
tekin í haust.
mm
Veruleg lækkun framlaga til vestlenskra
sveitarfélaga úr Jöfnunarsjóði
F.v. Ingi Þór Jónsson, formaður Náttúrulækningafélags Reykjavíkur, Karen
Jónsdóttir, eigandi Café Kaju, Brynja Gunnarsdóttir og Björg Stefánsdóttir,
stjórnarmenn í Náttúrulækningafélagi Reykjavíkur.
Kaju veitt viðurkenning fyrir
gott starf í þágu náttúrunnar
Gera sitt til að fleiri konur
mennti sig í skipstjórn