Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 6

Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 20206 Magnús ráðinn hafnarstjóri SV-LAND: Stjórn Faxaflóa- hafna sf. hefur samþykkt að ráða Magnús Þór Ásmundsson í starf hafnarstjóra. Tekur hann við af Gísla Gíslasyni 5. ágúst næstkomandi. Magnús Þór er rafmagsnsverkfræðingur að mennt. Hann starfaði hjá Mar- el frá 1990-2009 en hefur ver- ið forstjóri Fjarðaráls á Reyðar- firði undanfarin ár. -mm Ætla að leita á Hexydal VESTURLAND: Björgunar- sveitir á Vesturlandi hafa verið boðaðar til leitar á laugardaginn í Hnappadal. Óskað hefur verið eftir allt að 150 björgunarsveit- armönnum til að taka þátt í leit að manni sem týndist 30. des- ember síðastliðin og hefur ekk- ert til spurst síðan. Búið er að vinna leitarskipulag og stefnt á að leita öll skilgreind leitar- svæði þar sem svæðið var komið meira og minna undir snjó þeg- ar leit hófst í vetur. -mm Láta vita sé ekið á á VESTURLAND: Töluvert berst af tilkynningum til Lög- reglunnar á Vesturland um að ekið sé á sauðfé á vegum. Þá eru einnig dæmi um að ökumenn séu að stinga af án þess að láta vita sem er slæmt. Fyrr í vikunni var sem dæmi ekið á kind með tvö lömb og drapst bæði kindin og annað lambið og í þannig til- fellum er mikilvægt fyrir lamb- ið sem eftir er að málið sé til- kynnt svo hægt sé að koma því til hjálpar. -arg Innbrot í Botnsskála HVALFJ.SV: Aðfararnótt þriðjudags var tilkynnt um innbrot í Botnsskála í Hvalfirði. Viðvörunarkerfi fór í gang en búið var að brjóta upp hurð þegar lög- reglan kom á staðinn. Var aðili stöðvaður skömmu síðar grunaður um aðild að málinu auk þess sem hann reyndist aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna en hann svaraði jákvætt við amfeta- míni. Var hann fluttur til skýrslutöku á Akranesi og er málið til rannsóknar. –arg Fólk duglegt að tilkynna VESTURLAND: Nokk- uð er um að lögreglu ber- ist tilkynningar um undar- legt eða hættulegt aksturs- lag. Mánudaginn 29. júní kom ökumaður inn á lög- reglustöðina á Akranesi og tilkynnti um glannaakstur á Akranesi og gaf upp bíl- númer á viðkomandi bíl. Þá barst lögreglu tilkynn- ing um tvo ökumenn sem höfðu fengið sér áfengi á veitingastað í Borgarnesi og sest svo undir stýri og ekið af stað. Bílarnir fundust ekki. Einnig var lögreglu gert viðvart um hættulegt aksturslag á dráttarvél með hugsanlega laust hjól við Borgarfjarðarbrú. Fór lög- reglan og hafði upp á öku- manninum og reyndist til- kynningin eiga við rök að styðjast. Þá var tilkynnt um ölvaðan ökumann í Stykk- ishólmi 26. júní. Fékk lög- reglan upplýsingar um bíl- númer en bíllinn fannst síðar mannlaus. -arg Föst á Skorra- dalsvatni SKORRADALUR: Um kl. 16 á laugardaginn var hringt og beðið um aðstoð á Skorradalsvatni. Var þar maður í báti með tvö börn og höfðu þau tapað annarri árinni í vatnið og komust því ekki í land. Um klukku- stund síðar, þegar lögregl- an var á leiðinni til þeirra, var tilkynnt um að allir væru komnir heilir í land og spennustig lækkað hjá unga fólkinu. -arg Fann veiði- mann á Arnar- vatnsheiði BORGARFJ: Lögreglu barst tilkynning um kl. 01 aðfararnótt laugardags- ins 27. júní að veiðimaður væri týndur á Arnarvatns- heiði. Var þá 16 manna hópur saman í veiðiferð á heiðinni og allir höfðu skil- að sér nema einn. Verið var að undirbúa leit þegar lög- reglumaður á frívakt var við veiðar á heiðinni og sá manninn og kom honum til bjargar. Fannst maður- inn heill á húfi en orðinn frekar kaldur og þreyttur. -arg Forystufólk ríkisstjórnarinnar kynnti í síðustu viku aðra útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum. Með aðgerðunum er áætlað að los- un gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands muni hafa dreg- ist saman um ríflega eina milljón tonna CO2-ígilda árið 2030 miðað við losun ársins 2005. Það þýðir að Ísland á að ná alþjóðlegum skuld- bindingum sínum í loftslagsmál- um um 29% samdrátt og gott bet- ur, eða 35%. Til viðbótar eru að- gerðir sem eru í mótun taldar geta skilað 5-11%, eða samtals 40-46% samdrætti. 46 milljörðum króna verður var- ið til helstu aðgerða í loftslagsmál- um á fimm ára tímabili, 2020-2024. Áætlunin samanstendur af 48 að- gerðum, þar af 15 nýjum, sem hafa bæst við frá því að fyrsta útgáfa áætlunarinnar var gefin út haust- ið 2018. Samhliða víðtæku sam- ráði við gerð nýrrar útgáfu áætl- unarinnar hefur verið lögð áhersla á að hrinda aðgerðum strax af stað. Þannig eru 28 aðgerðir af 48 þegar komnar til framkvæmda. Breyttar ferðavenjur fá nú auk- ið vægi, úrgangsmál og sóun eru dregin sérstaklega fram, markvisst er ýtt undir ýmiss konar loftslags- vænar breytingar í samfélaginu og áhersla er lögð á aðgerðir þar sem ríkið getur leitt mikilvægar sam- félagsbreytingar með umskiptum í eigin starfsemi. Nýjar aðgerðir sem koma inn í áætlunina í kjöl- far samráðs eru m.a. aðgerðir til þess að auka innlenda grænmetis- framleiðslu, fjölga vistvænum bíla- leigubílum, styðja við orkuskipti í þungaflutningum, fanga kolefni frá stóriðju, bæta fóðrun búfjár til að draga úr iðragerjun og draga úr losun frá byggingariðnaði. mm Verja á 46 milljörðum á fimm árum til að bæta loftslagsmál Barinn útgerðin verður opnaður á Akranesi á morgun, fimmtudag. Um er að ræða nýjan bar sem er til húsa við Stillholt 16-18, þar sem Svarti Pétur var áður til húsa. Búið er að taka húsnæðið allt í gegn og setja upp nýjar innréttingar og stækka staðinn. Eva Maren Guð- mundsdóttir er rekstrarstjóri út- gerðarinnar og í forsvari fyrir lít- inn hóp innfæddra Skagamanna sem fjárfest hafa í verkefninu með liðsauka og sérþekkingu af bar- rekstri á Laugarveginum. Hjá út- gerðinni ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en barinn er hugsaður til að endurvekja lífið á Akranesi eins og það var þegar út- gerðin og fótboltinn var upp á sitt besta. „Þetta á að vera vettvang- ur skemmtunar fyrir alla Skaga- menn,“ segir Eva Maren í samtali við Skessuhorn. Hjá útgerðinni getur fólk komið og horft á helstu íþróttaviðburði, stigið á svið og tekið lagið eða bara komið og not- ið þess að hitta fólk og hafa gam- an. „Við gerum okkur grein fyrir að það passa ekki alltaf allir saman og er barinn hugsaður þannig að við ætlum að bjóða upp á eitthvað fyrir alla; bingó, pub quiz, karíókí og fleira og munum skipta þess- um viðburðum niður eftir dögum,“ segir Eva Maren. „Það þarf ekki alltaf að fara í gegnum göngin“ Hugmyndin er að allir vilji kíkja á útgerðina og eru Skagamenn allt- af sérstaklega velkomnir en einnig þeir sem vilja renna upp á Akranes og kíkja í heimsókn. „Við ætlum að bjóða upp á að taka á móti fyrir- tækjum eða öðrum hópum og sýna þeim Akranes, fara í Guðlaugu, kíkja í Akranesvita og koma svo í útgerðina og skemmta sér. Akra- nes hefur svo margt að bjóða. Það þarf ekki alltaf að fara í gegnum göngin til að skemmta sér.“ Að- spurð segir hún ekki ætlunina að bjóða upp á veitingar eða slíkt hjá útgerðinni. „Þetta er bara bar. En það verður ýmislegt skemmtilegt í boði og fólk má alltaf gera ráð fyrir að þekkt andlit láti sjá sig með gít- arinn hjá okkur,“ segir Eva Maren og bætir við að hægt sé að fylgjast með útgerðinni á bæði Instagram og Facebook. arg Eva Maren Guðmunsdóttir rekstrarstjóri Útgerðarinnar. Barinn Útgerðin opnaður á Akranesi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.