Skessuhorn - 01.07.2020, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 202012
Tjaldsvæðið í Fossatúni í Borg-
arfirði hefur nú verið enduropnað
eftir að því var lokað fyrir fimm
árum. Þá hefur Tröllagarðurinn
verið lagfærður mikið og byrjað að
selja aðgang í hann. Að sögn Stein-
ars Berg er þessi viðbót tjaldsvæðis-
ins og Tröllagarðsins við veitinga-
húsið og hina fjölbreyttu gistiað-
stöðu á svæðinu, þ.e. svefnpokagist-
ing, gistiheimili, smáhýsi og hótel-
gisting að skapa Fossatúni sérstöðu
í ferðaþjónusturekstri hér á landi.
Aðdráttarafl er að sögn Steinars
sömuleiðis af tröllabókarskrifum
og tónlistartengingu eigenda sem
hefur mótað umhverfið og skapað
sérstöðu.
„Við höfum nú opnað tjaldsvæð-
ið í Fossatúni að nýju. Við ákváð-
um að loka því fyrir fimm árum og
leggja áherslu á uppbyggingu inni-
gistingar. Það gerðum við, sökum
þess að samkeppnislegar leikreglur
eru einkaaðlilum óhagstæðar í sam-
keppni við hið opinbera. Á þessum
árum hefur uppbygging gistiað-
stöðu gengið vel og skapað traust-
an rekstrargrundvöll. Samkeppnis-
aðstæður er þó enn hinar sömu og
þær voru. Þær eru einstaklingum í
rekstri óhagstæðar, því ríki og sveit-
arfélög niðurgreiða rekstur tjald-
svæða í samkeppni við einkarekst-
ur. Ýmislegt annað hefur þó breyst
sem veldur því að tjaldsvæðisrekst-
ur verður nú skilgreindur hluti af
framtíðarrekstri okkar í Fossatúni.
Svæðið er hólfað niður með skjól-
beltum og hefur gróið og batnað
á tímabilinu og skapað skjólgóða
sælureiti. Auk þess hentar hólfunin
einstaklega vel vegna breyts ástands
í samneyti fólks svo og kröfum um
tiltækan félagslegan aðskilnað og
aukið rými vegna Covid-19,“ segir
Steinar.
„Aðaláhersla ferðaþjónustunnar í
Fossatúni verður á að leigja út hólf-
in í heilu lagi fyrir lágmark fjórar
einingar; hjólhýsi, fellihýsi, tjöld,
húsbíla o.s.frv. En einnig verða
sérstök svæði fyrir einstaklinga fá-
anleg. Panta þarf stæði fyrirfram í
gegnum bókunarkerfi og við leggj-
um mikla áherslu á afþreyingarþátt-
inn. Aðgengi verður því takmarkað
og gestir hafa tryggingu fyrir rúm-
góðri aðstöðu. Þannig er aðgengi
að heitum pottum, leikaðstöðu,
mini golfi og Tröllagarðinum inni-
falið þegar fólk leigir hjá okkur
tjaldsvæði. Á svæðinu eru einnig
svokallaðir poddar, þ.e. svefnað-
staða í lúxus timburtjaldi.“
Tröllagarðurinn í Fossatúni er
göngu,- leik- og útivistarsvæði sem
nýtur vinsælda sem áfangastaður
í Borgarfirði. „Undanfarið hefur
verið unnið að skipulagi svæðisins
og það samanstendur nú af trölla-
og þjóðlagagöngu ásamt tröllaleikj-
um, svo sem tröllafet, tröllaspark,
tröllaorð og fleira. Þetta stuðlar að
skemmtilegri og fjölskylduvænni
samveru í fallegri náttúru,“ segir
Steinar Berg.
mm
Bæjarhátíðin Heim í Búðardal fer
fram um komandi helgi. Vegna
fjöldatakmarkana í samfélaginu er
dagskráin með aðeins breyttu sniði
í ár en engu að síður verða fjöl-
breyttir viðburðir fyrir alla ald-
urshópa. Hátíðin hefst með hefð-
bundnum hætti á kjötsúpurölti á
föstudagskvöldinu. Þá ætla þrjú
heimili að opna fyrir gestum og á
tveimur þeirra verður boðið upp á
kjötsúpu og á því þriðja á að kveikja
upp í grillinu. „Við ætlum að reyna
að hafa fleiri og smærri viðburði í
ljósi aðstæðna og dreifa þeim vel
um svæðið. Það verður ekkert ball
eða aðrir slíkir viðburðir þar sem
margir koma saman. Þeir sem
vilja halda tveggja metra millibili
ættu að geta það og samt skemmt
sér vel,“ segir Jóhanna María Sig-
mundsdóttir, verkefnastjóri hátíð-
arinnar í samtali við Skessuhorn.
Á laugardeginum verður fjölbreytt
dagskrá fyrir alla. „Það verður boð-
ið upp á ungbarnastund á bókasafn-
inu fyrir þá allra minnstu og svo
verður vinsæla froðureinnibraut-
in sett upp með aðstoð slökkviliðs-
ins. Vestfjarðarvíkingurinn verður á
sínum stað og svo verður sett upp
markaðstorg sem margir hafa sýnt
áhuga á að taka þátt í. Við verðum
með bátakeppni fyrir allan aldur og
ætlar björgunarsveitin að aðstoða
fólk þar. En til að taka þátt þarf að
uppfylla nokkur skilyrði eins og að
báturinn sé heimagerður, komist
ákveðið langt og að þeir sem sigli
séu þurrir allavega fyrir ofan hné,“
segir Jóhanna.
Fólk ber marga hatta
Boðið verður upp á göngur um
bæinn með leiðsögn og verslanir,
ferðaþjónar og fyrirtæki í sveitar-
félaginu taka einnig þátt í hátíð-
inni með góðum opnunartímum
og tilboðum. „Það hafa allir ver-
ið mjög jákvæðir og skipulag há-
tíðarinnar hefur gengið svo vel
að ég er í raun bara að bíða eftir
að eitthvað klikki,“ segir Jóhanna
og hlær. „En þegar maður býr í
svona litlu þorpi og er að skipu-
leggja svona hátíð er mikilvægt að
vera meðvitaður um að fólk ber
gjarnan marga hatta. Við þurfum
til dæmis að hafa varaspyril fyrir
Pub quiz því spyrillinn gæti ver-
ið kallaður út á sjúkrabílavakt,“
segir Jóhanna og hlær. „En þetta
fylgir því að skipuleggja svona í
litlu samfélagi.“ Á laugardags-
kvöldinu verður ekki ball eins og
er venja en þess í stað koma íbúar
saman í brekkusöng þar sem gætt
verður að því að nóg pláss sé fyr-
ir alla.
Opnun Vínlandsseturs
Á sunnudeginum verður formleg
opnun Vínlandsseturs í Leifsbúð
klukkan 15:00. „Við byrjum niðri
í Leifsbúð þar sem verður klippt á
borða og sýningin formlega opn-
uð. Því næst förum við í Dalabúð
þar sem við verðum með móttöku
og þar geta allir komið og fengið að
fræðast um sýninguna og að kynnast
aðeins listamönnunum sem komu
að því að gera sýninguna,“ segir
Jóhanna. Aðspurð segir hún sýn-
inguna verða opna í sumar eins og
hægt verður. „Þetta er bara tilbúið
til að vera opið. Það er sérstaklega
gaman að heyra hvað heimamenn
eru jákvæðir fyrir þessu en það er
líka ekki aðeins verið að opna sýn-
inguna heldur líka nýjan veitinga-
stað. Á veitingastaðnum verður
boðið upp á létta rétti með áherslu
á íslenskt hráefni,“ segir Jóhanna.
Aðspurð segir hún sýninguna sjálfa
vera svipaða þeirri sem er í Land-
námssetrinu í Borgarnesi en Kjart-
an Ragnarsson sem rekur Land-
námssetrið bjó einnig til sýninguna
á Vínlandssetrinu. „Þetta er í raun
systursýning sýningarinnar í Land-
námssetrinu. En Kjartan mun ein-
mitt koma á opnunina og segja frá
sýningunni og hvernig hún kom í
raun til hans,“ segir Jóhanna.
arg
Líkt og hvert undanfarin ár verð-
ur bæjarhátíðin Írskir dagar hald-
in á Akranesi fyrstu helgina í júlí.
Hátíðin verður með breyttu sniði
vegna Covid-19 og ýmis hagræð-
ing og breytingar gerðar á dagskrá
til að gæta að öryggi íbúa og gesta.
„Við verðum með dagskrána víðar
um bæinn til að dreifa fjöldanum
eins og kostur er. Dagskráin verður
að vanda mikið miðuð út frá börn-
um og unglingum,“ segir Fríða
Kristín Markúsdóttir, viðburða-
stjóri Akraneskaupstaðar í samtali
við Skessuhorn.
„Fjölmennustu viðburðirnir
verða felldir niður. Brekkusöng-
num verður að vísu streymt svo fólk
getur notið hans. Götugrillin verða
á sínum stað og hvetjum við alla
til að skrá sitt grill til að fá óvænta
gesti í heimsókn. Einnig verða
verðlaun fyrir mest skreyttu göt-
una eins og í fyrra. Ég hvet auðvi-
tað íbúa við göturnar til að samein-
ast, skrá sínar götur og njóta þess
að eiga góða stund saman. Hægt
er að skrá sína götu á irskirdagar@
akranes.is. Margt annað er í boði
og ættu flestir að finna eitthvað við
sitt hæfi,“ bætir Fríða við en sjá má
dagskrána í blaðinu í dag.
Fríða segir að gott sé að hafa ýmis
atriði í huga þegar kemur að Írskum
dögum, sérstaklega í ljósi aðstæðna
í samfélaginu. „Það þurfa allir að
huga að persónulegum sóttvörnum
og huga að því að gefa þeim sem
það vilja, tveggja metra svigrúm.
Við þurfum líka að muna eftir því
að hafa gaman og njóta þess sem
við getum á þessum tímum,“ út-
skýrir Fríða og bætir jafnframt við:
„Ég hvet fólk til að kynna sér dag-
skrána á Facebooksíðu Írskra daga
og skagalif.is og minni á að dag-
skráin gæti breyst með stuttum fyr-
irvara vegna aðstæðna.“ glh
Hafa enduropnað tjaldsvæðið í Fossatúni
og aukið fjölbreytni í rekstri
Fjölmennustu viðburðir hátíðarinnar undanfarin ár ýmist falla niður eða verður
streymt, en dagskráin nú sniðin að þörfum barna og unglinga. Ljósm. úr safni.
Írskir Dagar um næstu
helgi á Akranesi
Fríða Kristín Markúsardóttir, viðburðastjóri Akraneskaupstaðar, er skipuleggj-
andi Írskra daga í ár.
Heim í Búðardal um komandi helgi
Svipmynd frá Heim í Búðardal fyrir tveimur árum. Ljósm. úr safni/ sm.