Skessuhorn - 01.07.2020, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 2020 13
Borgarbyggð auglýsir starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs laust til umsóknar. Um er að
ræða fjölbreytt og áhugavert starf í lifandi umhverfi. Viðkomandi verður einn af þremur
sviðsstjórum sem heyra beint undir sveitarstjóra í skipuriti Borgarbyggðar.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs stýrir starfsemi sviðsins í samræmi við lög og reglugerðir,
stefnumörkun og samþykktir sveitarstjórnar, fjárhagsáætlun og greiðsluáætlanir á
hverjum tíma.
STAÐA SVIÐSSTJÓRA
FJÖLSKYLDUSVIÐS Í BORGARBYGGÐ
Starfssvið:
• Umsjón með gerð og eftirfylgni
fjárhagsáætlana, starfs- og
framkvæmdaáætlana sem undir sviðið heyra
• Framkvæmd verkefna í samræmi við
samþykktir sveitarstjórnar hverju sinni
• Undirbúningur og framkvæmd stefnumótunar
og áætlanagerðar
• Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og
reglugerða sem gilda hverju sinni og heyra
undir sviðið
• Samskipti við opinberar stofnanir, íbúa
sveitarfélagsins og aðra þá sem tengjast
verkefnum sviðsins
• Önnur verkefni sem undir sviðið heyra hverju
sinni
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi er
skilyrði
• Þekking á lögum og reglugerðum í þeim
málaflokkum sem heyra undir sviðið er skilyrði
• Haldbær reynsla af stjórnun og opinberri
stjórnsýslu í málaflokkum sviðsins
• Reynsla af stefnumótun, verkefnastjórnun og
áætlanagerð
• Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í
ræðu og riti
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í
vinnubrögðum
• Góð samskiptahæfni
Undir fjölskyldusvið heyra
félagsþjónusta, málefni aldraðra,
málefni fatlaðra, æskulýðsmál,
forvarnarmál, leik-, grunn- og
tónlistarskóli og íþrótta- og
tómstundamál. Markmið sviðsins
er meðal annars að stuðla að
barnvænu, heilsueflandi og
valdeflandi samfélagi.
Umsóknarfrestur er til 14. júlí nk.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir óskast fylltar út
á hagvangur.is
Snæfellsjökulshlaupið fór fram í tí-
unda skiptið á laugardaginn. Var
hlaupið frá Arnarstapa yfir Jökul-
háls til Ólafsvíkur. Þetta er um 22
kílómetrar og er erfið hlaupaleið
á köflum, þar sem hlaupið er upp
brekkur og um snjóalög. Keppend-
ur voru að þessu sinni 270 sem er
metþátttaka. Hjónin Fannar Bald-
ursson og Rán Kristinsdóttir hafa
haldið utan um þetta hlaup frá upp-
hafi, ásamt aðstoðarmönnum og
styrktaraðilum.
Það var Maxime Sauvageon sem
sigraði í karlaflokki á tímanum
01:36:26. Sigurjón Ernir Sturluson
varð annar á tímanum 01:37:25 og
Grétar Örn Guðmundsson þriðji á
tímanum 01:39:59. Í kvennaflokki
sigraði Thelma Björk Einarsdóttir
á tímanum 01:51,57, Helen Ólafs-
dóttir varð önnur og hljóp hún á
01:57:45. Mari Jaersk varð í þriðja
sæti á tímanum 02:01:21.
af
Svo virðist sem smálaxinn hafi
gengið í árnar á Jónsmessustraumn-
um. Vatnið er gott í ánum og ekki
erfitt fyrir laxinn að koma sér upp í
árnar. Næstu dagar munu skera úr
um veiðina í sumar.
„Veiðin gengur vel núna, smá-
laxinn er að hellast inn og við erum
komnir í yfir 300 laxa, svona á þetta
á vera,“ sagði Einar Sigfússon við
Norðurá í Borgarfirði en veiðiskap-
urinn hefur gengið vel það sem af
er sumri, gott vatn og fallegur fisk-
ur. „Fiskurinn ríkur upp ána, áin er
hlý núna og fínt vatn. Eins árs lax-
inn er vel haldinn og það stefnir í
gott sumar hérna núna. Tveir góð-
ir straumar eftir í júlí,“ sagði Einar.
Nokkru ofar í ánni var Siggi Skúli
leiðsögumaður með veiðimenn og
sagði hann að veiðin gengi vel, fisk-
ur væri að ganga á hverju flóði.
Frægir opnuðu
Haffjarðará
Haffjarðará var opnuð 18. júní og
hefur veiðin verið góð. Nú eru
komnir um 65 laxar á land og opn-
unarhollið fékk yfir 20 laxa. Í opn-
uninni var Björgólfur Thor Björg-
ólfsson. Hann hefur oft veitt í ánni,
en með honum nú voru þeir David
Beckham og Guy Ritchie. Veiðin
gekk vel hjá þeim félögum og fengu
þeir yfir 20 laxa, mest tveggja ára
fisk. Þeir voru jafnframt við veiðar í
opnun Haffjarðarár í fyrra. gb
Metþátttaka í
Snæfellsjökulshlaupinu
Þrír fyrstu í karlaflokki.
Hjónin Fannar Baldursson og Rán Kristinsdóttir með sigurvegarann í kvenna-
flokki Thelmu Björk Einarsdóttur á milli sín.
Oddur Orri Brynjarsson varð fyrstur í mark af heimamönnum og fékk aðstoð frá
frænda sínum Erik Erni Atlasyni síðustu metrana.
Hákon Már Örvarsson kokkur í veiðihúsinu við Norðurá grípur stundum stöngina
og þennan fallega lax veiddi hann nýverið.
Veiðiskapurinn
gengur vel