Skessuhorn - 01.07.2020, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 2020 15
Aðalfundur björgunarsveitarinnar
Heiðars var haldinn á Varmalandi í
Borgarfirði á mánudaginn í liðinni
viku. Áður en fundurinn hófst bauð
stjórn sveitarinnar til grillveislu þar
sem félagar og ættingjar Hreins
Heiðars Árnasonar komu sam-
an. Björgunarsveitin var stofnuð í
minningu Hreins Heiðars 31. mars
1973 í kjölfar leitar að honum sem
fram fór í september 1972. Hreinn
Heiðar fór í fjárleitir og skilaði sér
ekki til baka úr þeim.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
og kosninga í stjórn var við sama
tilefni frumsýnd ný Econoline
björgunarbifreið sem sveitin hefur
fest kaup á.
mm/ Ljósm. bj.sv. Heiðar
Nýverið fóru fjórir Borgfirðingar
norður í Skagafjörð og sóttu tæp-
lega fimmtíu ára rútu sem þar hef-
ur lengi verið staðsett í suðurhlíð-
um Öxnadalsheiðar. Upphaflega
var byggt yfir þennan bíl á Bif-
reiðaverkstæði Guðmundar Kjer-
úlf veturinn 1972-73 og fékk nafn-
ið Soffía III, tók 35 farþega og
bar skrásetningarnúmerið M-719.
Lengi framan af þjónaði bíllinn
sem skólabíll fyrir Barnaskólann á
Kleppjárnsreykjum og gerður út af
þeim Guðmundi Kjerúlf og Guðna
Sigurjónssyni. Þeir nýttu svo bílinn
í fjallaferðir á sumrin. Fyrir nokkr-
um árum var Soffía II endurbyggð
eins og ítarlega hefur verið fjallað
um í Skessuhorni. Hún er til húsa
hjá Fornbílafjelagi Borgarfjarðar í
Brákarey þar sem meiningin er að
Soffía III muni sömuleiðis dvelja.
Það voru fjórir einstaklingar;
Kristján Andrésson, Jakob Jónsson,
Steindór Theódórsson og Arnar
Guðnason, sem sameinuðust um
kaupin á Soffíu III, keyptu bílinn
af dánarbúi fyrri eiganda sem bjó
á Fremri Koti í Skagafirði sem er
innsta býli í Skagafirði þar sem ekið
er upp á Öxnadalsheiðina. Kristján
sagði í samtali við Skessuhorn að
bíllinn væri í ótrúlega góðu ástandi
miðað við aldur og að hann hafi
staðið óhreyfður síðustu tólf árin.
„Við einfaldlega fengum aksturs-
leyfi, skrúfuðum númerplöturnar á,
settum í gang og keyrðum heim,“
sagði Kristján í samtali við Skessu-
horn. Hann segir að til standi að
lagfæra ýmislegt smálegt sem að
bílnum er, sprauta hann í uppruna-
legu litunum og koma honum svo
fyrir á fornbílasafninu í Brákarey,
við hlið hinnar tíu árum eldri syst-
ur, Soffíu II. mmNýi bíll Heiðarsmanna.
Heiðar kaupir nýja
björgunarbifreið
Félagar í björgunarsveitinni ásamt fjölskyldu Hreins Heiðars Árnasonar.
Soffía III í upprunalega litnum.
Soffía III hefur nú hitt að nýju
eldri systur sína
Soffía III stendur hér framan við eldri systur hennar í Brákarey.
ÚTILEIKIR!
ALLIR FÁ GLAÐNING
MEÐ SÉR HEIM!
WWW.SMAPRENT.IS
AFMÆLI SMÁPRENTS
FIMMTUDAGINN 2. JÚLÍ | KL. 14-18
SKREYTINGAR
FYRIR ÍRSKA DAGA
FÁST HJÁ OKKUR
SPIL OG
LEIKIR
POPP & SMÁ LÆTI
AFMÆLIVÖRURNÝTT!
Anít� Rós
MERKT TASKA
3.290 KR
FJÖLNOTAPOKI
690 KR
MITTISTASKA
VERÐ FRÁ 1.000 KR
MERKT SVUNTA
3.490 KR
2. JÚLÍ
FRÁ KL. 14-18
DALBRAUT 16
AKRANESI
10
ÁRA
MERKTUR SPORTPOKI
Selma Rut
AFMÆLIS-
TILBOÐ
2.000 KR
10
ÁRA