Skessuhorn - 01.07.2020, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 202026
Áralöng hefð er fyrir því að félags-
menn í Félagi skógarbænda á Vest-
urlandi komi saman einu sinni að
sumri. Valinn er ræktarlegur skóg-
ur á starfssvæðinu og gestgjafi leið-
ir síðan áhugasama ræktendur um
skóginn sinn. Að þessu sinni var
komið að heimsókn að Ferstiklu á
Hvalfjarðarströnd og var skógar-
gangan þar síðastliðinn þriðjudag.
Þar hefur skógrækt verið stunduð í
ríflega þrjátíu ár, en Vífill Búason
og Dúfa Stefánsdóttur hófu rækt-
unarstarf sitt árið 1988. Guðmund-
ur Rúnar sonur þeirra og Margrét
Stefánsdóttir kona hans hafa nú
tekið við keflinu og stunda skóg-
ræktina. Á Ferstiklu er nú búið að
rækta upp skóg á 120 hekturum og
var áhugavert að ganga um þetta
fallega svæði í slakkanum ofan við
fjörðinn. Misjafnt er hversu vel ein-
staka plöntutegundir vaxa á þessu
svæði og til dæmis áberandi hversu
furan á þar erfitt uppdráttar. Hins
vegar eru fjölmargar aðrar tegund-
ir sem hafa það mjög gott, svo sem
lerki, greni, birki og ösp, svo dæmi
séu tekin.
Auk gestgjafanna úr Félagi skóg-
arbænda og Ferstiklubænda slóg-
ust í för með hópnum þau Sigríð-
ur Júlía Brynleifsdóttir og Þröstur
Eysteinsson frá Skógræktinni. Ár-
legir fundir þeirra með skógar-
bændum féllu niður í vor vegna
Covid og fara þau nú um landið og
heimsækja skógræktarfólk. Að lok-
inn skógargöngu var boðið upp á
ilmandi ketilkaffi en eftir það var
kvöldverður á Hlöðum. Þar tók
Guðjón Sigmundsson vert á móti
hópnum og sagði frá Hernámssetr-
inu sem hann hefur byggt upp með
glæsibrag í gamla félagsheimilinu.
mm
Skógarbændur á Vesturlandi
komu saman í Ferstikluskógi
Í upphafi skógargöngu stilltu viðstaddir sér upp til myndatöku.
Spáð og spekúlerað í vexti ungtrjánna.
Grenið á gott líf á Hvalfjarðarströndinni og ekki síður öspin sem hér er staldrað við.
Skógræktin gaf gestgjöfunum bol með áletruninni „Minna
kjaftæði meiri skóg.“ F.v. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,
Dúfa Stefánsdóttir, Guðmundur Rúnar Vífilsson og Þröstur
Eysteinsson.
Tyllt sér niður að lokinni skógargöngu í lundi norðan við
Ferstiklubæinn.
Viðeigandi veitingar þegar skógarbændur koma saman.
Ellert Arnar Marísson var að ljúka meistaraprófi í skógrækt.
Hann fékk þakkir og hamingjuóskir frá Félagi skógarbænda
á Vesturlandi. Hér er hann ásamt Bergþóru Jónsdóttur for-
manni félagsins.
Fastur liður í hittingi skógarbænda er að hella upp á ketilkaffi, sem hitað
er á hlóðum. Hér skenkir Hraundís Guðmundsdóttur í bollann hjá Laufeyju
Hannesdóttur í Arnarholti.