Skessuhorn - 01.07.2020, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 202030
Hvað á helst hug þinn þessa
dagana?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Káramenn gerðu jafntefli gegn
Þrótti V. þegar liðin mættust í Vog-
um í annarri umferð 2. deildar karla
í knattspyrnu um helgina.
Bæði mörkin komu úr vítaspyr-
num. Andri Júlíusson fór á punk-
tinn fyrir Kára á 42. mínútu og
skilaði knettinum í mark heimam-
anna. Strax í upphafi síðari hál-
fleiks fengu svo Þróttarar vítaspyr-
nu. Þá fór Sigurður Gísli Snorra-
son á punktinn og jafnaði metin.
Ekki komu fleiri mörk í leiknum og
skildu liðin því jöfn.
Eftir tvær umferðir er Þróttur V.
einu sæti fyrir ofan Kára með tvö
stig í 8. sæti deildarinnar en Skag-
amenn með eitt stig í 9. sæti.
Næsti leikur Kára er gegn KF á
Ólafsfjarðarvelli á fimmtudaginn
kl. 19:15.
glh/ Ljósm.
Knattspyrnufélag Kára.
Kvennalið ÍA spilaði sinn fyrsta
heimaleik í Lengjudeildinni, fyrstu
deild kvenna, á tímabilinu síðast-
liðinn föstudag. Liðið tók á móti
Gróttu frá Seltjarnarnesi í annarri
umferð. Liðin skildu jöfn.
Fyrsta markið kom snemma
leiks, eða á 16. mínútu og áttu ge-
stirnir það. Þar var á ferðinni Rakel
Lóa Brynjarsdóttir fyrir Gróttu
sem leiddu með einu marki þegar
gengið var til hlés.
Í síðari hálfleik voru Skagastúlkur
beittari í sínum sóknaraðgerðum.
Rétt undir lokin náðu þær að jaf-
na metin. Erla Karitas Jóhannes-
dóttir skoraði fyrir ÍA á 84. mínú-
tu. Ekki komu fleiri mörk í leiknum
og fengu því liðin sitt hvort stigið
í vasann.
Þær gulklæddu hafa gert jafnte-
fli í báðum leikjum sínum og eru
því í 6. sæti með tvö stig að loknum
tveimur umferðum á mótinu. Grót-
ta aftur á móti hefur sigrað einn og
gert eitt jafntefli og eru því í 4. sæti
deildarinnar með fjögur stig.
Næst spilar ÍA gegn Haukum á
Ásvellum á fimmtudaginn kl. 19:15.
glh
Meistaraflokkur Skallagríms í
knattspyrnu karla fer vel af stað á
Íslandsmótinu og hefur nú sigrað
fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu.
Borgnesingar tóku efsta sætið í 4.
deild karla C-riðli eftir góðan úti-
sigur gegn KM á fimmtudags-
kvöldið.
Þeir gul- og grænklæddu heim-
sóttu liðsmenn Knattspyrnufélags
Miðbæjar Reykjavíkur eða KM á
KR-vellinum í Reykjavík. Bæði
mörk leiksins komu frá varnarman-
ninum Declan Joseph Redmond,
sem tryggði Skallagrímsmönnum
sigur og þrjú stig í leiknum. Fyrsta
mark kom á 36. mínútu og það
síðara á 66. mínútu. Eins og fyrr se-
gir lyfta Skallagrímsmenn sér upp í
efsta sætið með sigrinum sem eru
þó jafn mörg stiga og Hamarsmenn
en með betri markatölu.
Næsti leikur Borgnesinga var á
dagskrá í gærkvöldi, þriðjudag, í
Borgarnesi gegn KFB. Leikurinn
hófst kl. 20:00, eða eftir að Skes-
suhorn var sent í prentun.
glh
Víkingur Ólafsvík tók á móti nú-
verandi bikarmeisturum Vík-
ings Reykjavík á Ólafsvíkurvelli
fimmtudaginn 25. júní síðastlið-
inn. Leikurinn var sá síðasti í þrjá-
tíu og tveggja liða úrslitum bikar-
keppni KSÍ. Víkingar frá Reykjavík
spila í Pepsí deildinni og því um
erfiðan andstæðing að ræða fyrir
heimamenn.
Leikurinn var í járnum frá byrj-
un og heimamenn gáfu nöfnum
sínum ekkert eftir. Liðin spiluðu
fínan bolta og var hart barist. Það
var svo á 43. mínútu, markamínút-
unni, að spánverjinn Gonzalo Za-
morano Leon skoraði fyrir heima-
menn með glæsilegu skoti sem
reyndist óverjandi fyrir markvörð
gestanna. Staðan í hálfleik var því
1-0 heimamönnum í vil. Í síðari
hálfleik hélt sama baráttan áfram
en gestirnir fóru að pressa stífar
er líða tók á leikinn. Víkingar frá
Ólafsvík féll aðeins aftar á völlinn
og freistuðu þess að halda fengnum
hlut og beita skyndisóknum. Þeir
fengu nokkur ágæt tækifæri til að
bæta við marki en gestirnir fengu
einnig fín færi til að jafna metin.
Þegar níutíu mínútur voru komnar
á vallarklukkuna bættu dómararn-
ir fimm mínútum í uppbótartíma
fyrir tafir í leiknum og þegar tvær
mínútur voru liðnar af þeim jöfn-
uðu gestirnir loks metin. Þar var að
verki Helgi Guðjónsson en hann
hafði áður komið inná sem vara-
maður. Við þetta þurfti að fram-
lengja leikinn enda leikið til þraut-
ar í bikarnum. James Dale fékk að
líta sitt annað gula spjald á 102.
mínútu og heimamenn því einum
færri. Þeir færðu sig því enn aftar á
völlinn og Víkingur Reykjavík sótti
nánast látlaust það sem eftir lifði
af framlengingunni. Hvorugu lið-
inu tókst þó að skora og því þurfti
að grípa til vítaspyrnukeppni. Þeg-
ar bæði lið voru búin að taka fimm
vítaspyrnur var staðan jöfn 4-4 þar
sem bæði liðin misnotuðu eina
spyrnu. Í sjöttu vítaspyrnu heima-
manna fór boltinn yfir markið og
því gátu gestirnir tryggt sæti sitt í
16 liða úrslitum með því að skora
úr síðustu spyrnunni sem og þeir
gerðu. Þeir fóru því kátir upp í
rútu með farseðilinn í næstu um-
ferð bikarkeppninnar en heima-
menn sátu svekktir eftir. Þeir geta
þó verið stoltir af frammistöðunni
því að þeir gáfu bikarmeisturunum
ekkert eftir og voru óheppnir að slá
þá ekki úr keppni.
tfk
Mikil barátta var í leik ÍA og Gróttu. Ljósm. gbh.
Jafntefli í fyrsta heimaleik
Víkingur Ólafsvík féll úr bikarnum
Vignir Snær Stefánsson leikmaður Víkings Ó. verst hér fimlega skoti frá Óttari
Magnúsi Karlssyni leikmanni Víkings R.
Jafnt suður með sjó
Declan Joseph Redmond skoraði bæði mörk Borgnesinga. Ljósm. Úr safni.
Skallagrímsmenn
á toppinn
Sól Elíasdóttir
„Covid-19“
Ása María Björnsdóttir
„Sumarfríið mitt“
Soffía Pétursdóttir
„Að komast í sumarfrí“
Hinrik Þór Guðbjartsson
„Candyrat tónlist“