Skessuhorn - 01.07.2020, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 1. JúLÍ 2020 31
Íslandsmeistararnir í KR gerðu
góða ferð á Skagann þegar þeir
unnu ÍA í 3. umferð úrvalsdeildar
karla í knattspyrnu á sunnudags-
kvöldið í fjörugum leik á Akranes-
velli. Öll mörkin komu snemma í
seinni hálfleik þrátt fyrir góð færi
frá báðum liðum í þeim fyrri.
Fyrsta markið kom frá heima-
mönnum á 48. mínútu. Þeir gul-
klæddu áttu skyndisókn upp völl-
inn eftir dauðafæri frá KR sem
Árni Snær markvörður ÍA varði.
Upp úr því kom Viktor Jónsson
boltanum inn á teig til Tryggva
Hrafns Haraldssonar sem náði að
snúa sér listilega og leggja bolt-
ann á Steinar Þorsteinsson sem
lagði boltann í bláhornið. 1-0 fyr-
ir Skagamönnum. Íslandsmeistar-
arnir voru ekki lengi að svara fyrir
sig því næsta mark kom strax á 53.
mínútu. Eftir nokkrar hornspyrn-
ur í röð frá KR og misheppnaðar
tilraunir Skagamanna að hreinsa
boltann úr eigin teig náði Aron
Bjarki Jósepsson að nýta tæki-
færið fyrir þá röndóttu. Eftir smá
klafs í teig ÍA náði Aron Bjarki að
snúa sér og leggja knöttinn í mark
heimamanna og jafnaði þannig
metin, 1-1.
Eitthvað hefur einbeitingin far-
ið úr Skagamönnum eftir jöfn-
unarmarkið því gestirnir skor-
uðu aftur á 61. mínútu. Eftir gott
þríhyrningaspil endaði með því
að Kristján Flóki Finnbogason
lagði boltann fram hjá markverði
Skagamanna og kom þannig KR
yfir í fyrsta skipti í leiknum.
KR-ingar fengu gott tækifæri til
að bæta í forskot sitt rétt undir lokin
en vítaspyrnan sem þeir fengu á 84.
mínútu fór forgörðum. Ekki urðu
mörkin fleiri í leiknum og Íslands-
meistararnir með góð þrjú stig í vas-
anum og færa sig þannig yfir Skaga-
menn í deildinni.
Eftir þrjár umferðir er ÍA í 6. sæti
með einungis einn sigur á meðan
KR-ingar eru einu sæti fyrir ofan
með 6 stig.
Næsti leikur ÍA er gegn Valsmönnum
á Hlíðarenda. Leikurinn er á föstudag-
inn og hefst kl. 20:00. glh/ Ljósm. gbh.
Víkingur Ó. þurfti að játa sig sigr-
aðan þegar Keflvíkingar unnu
sannfærandi sigur á Ólafsvíkur-
velli í 2. umferð fyrstu deildar
karla í knattspyrnu á sunnudags-
kvöldið. Bæði lið höfðu unnið sína
leiki í fyrstu umferð og mátti því
búast við hörku leik.
Leikurinn fór hægt af stað en
það voru gestirnir sem reyndust
sprækari á upphafs mínútunum.
Ólsarar komu sér hægt og rólega
inn í leikinn eftir því sem leið á,
en hvorugt lið var að ógna mar-
ki að einhverri alvöru. Markalaus
var staðan því þegar gengið var til
búningsklefa.
Síðari hálfleikur varð heldur
betur viðburðaríkari. Strax á 48.
mínútu var dæmt víti á Pétur Stei-
nar Jóhannsson í liði Víkings. Joey
Gibbs fór á punktinn fyrir gestina
og skilaði boltanum í markið. 1-0
fyrir Keflavík. Mikið líf færðist í
leikinn og skiptust liðin á að sæk-
ja. Það var svo á 80. mínútu sem
Keflvíkingar komust í stöðuna
2-0. Eftir langt innkast inn í teig
heimamanna náði Adam Árni
Róbertsson að leggja knöttinn
snyrtilega í fjærhornið fyrir sína
menn.
Eftir þetta fór botninn undan
Víkingi en gestirnir bættu við þrið-
ja markinu á 90. mínútu og svo því
fjórða áður en leikurinn var á enda.
Niðurstaðan 4-0 Keflavík í vil.
Reykjarnesliðið færir sig í efsta
sæta deildarinnar með fullt hús sti-
ga en á meðan sitja Ólsarar í 7. sæti
með þrjú stig.
Næsti leikur Víkings verður gegn
ÍBV í Vestmannaeyjum á föstudag-
inn kl. 18:00.
glh
Mikill spennuleikur átti sér stað
í 32-liða úrslitum Mjólkurbik-
ars karla þegar ÍA og Kórdrengir
mættust á þriðjudag í liðinni viku.
Leikurinn var spilaður í Safamýr-
inni í Reykjavík.
Allt stefndi í skyldusigur Skaga-
manna en þeir spila í úrvalsdeild
karla á meðan Kórdrengir eru ný-
liðar í 2. deild. Það kom því efa-
laust sumum á óvart að fyrsta mark
leiksins kom frá Kórdrengjum strax
á níundu mínútu. Daníel Gylfason
átti þá stórfína sendingu á liðsfélaga
sinn Magnús Þóri Matthíasson sem
lyfti boltanum snyrtilega yfir Árna
Snæ í marki Skagamanna. Kór-
drengir héldu dampi út hálfleikinn
og reyndust Skagamönnum erfiðir
sem færðu boltann vel á milli sín en
án þess þó að ógna marki heima-
manna. 1-0 var því staðan í hálf-
leik.
Síðari hálfleikur fór hægt af stað
hjá báðum liðum. Á 69. mínútu
fékk ÍA hornspyrnu sem þeir gul-
klæddu nýttu sér til fulls. Þá átti
Tryggvi Hrafn Haraldsson góða
fyrirgjöf á Viktor sem skallaði bolt-
ann örugglega í netið og jafnaði
þannig metin.
Mikið fjör færðist í leikinn undir
lokin. Kórdrengir komust aftur yfir
á 81. mínútu eftir skallamark frá
Einari Orra Einarssyni. Skagamenn
voru ekki lengi að svara fyrir sig og
jöfnuðu á nýjan leik á 85. mínútu
þegar Stefán Teitur Þórðarson átti
góða fyrirgjöf á Hlyn Sævar Jóns-
son sem skallaði knöttinn framhjá
markverði heimamanna. Ekki réð-
ust úrslit í venjulegum leiktíma og
uppbótartíma, svo blásið var til
framlengingar. Þar hafði ÍA betur
og reyndist Stefán Teitur Þórðar-
son bjargvættur Skagamanna þeg-
ar hann kom sínum mönnum yfir
í fyrsta skipti á 110. mínútu eftir
gott samspil þeirra gulklæddu. Ekki
reyndist nægur tími fyrir Kórdrengi
að jafna og Skagamenn því komnir
áfram í 16-liða úrslit í Mjólkurbik-
arnum. glh
Snæfell þurfti að sætta sig við tap
gegn SR á heimavelli í 4. deild karla
í knattspyrnu í miklum markaleik á
föstudaginn síðasta. Gestirnir byrj-
uðu leikinn af krafti og skoruðu
fyrstu þrjú mörkin í fyrri hálfleik.
Fyrst á 9. mínútu svo á 22. mínútu
og loks á 31. mínútu. 3-0 var stað-
an því fyrir SR þegar liðin gengu til
hálfleiks.
Eitthvað hefur hálfleiksræðan
skilað árangir hjá Hólmurum því
heimamenn komu mun sprækari til
leiks í síðari hlutanum. Brynjar Vil-
hjálmsson minnkaði muninn á 53.
mínútu þegar hann skilaði knet-
tinum í markið. Tveimur mínú-
tum síðar var Leó Örn Þrastarson
á ferðinni fyrir Hólmara og minn-
kaði muninn í eitt mark. Gestirnir
bættu hins vegar í forskot sitt á
78. mínútu þegar Jóhann Vignir
Guðmundsson skoraði fjórða mark
SR. Ekki náðu heimamenn að ógna
frekar og niðurstaðan 4-2 SR í vil.
Eftir tvær umferðir sitja Snæfell-
ingar í neðsta sæti B-riðils 4. deil-
dar með 1 stig, jafn mörg stig og
Álafoss og Kormákur/Hvöt.
Snæfell lék gegn KFR á Hvols-
velli í gærkvöldi, en leikurinn var
ekki hafinn þegar Skessuhorn var
sent í prentun.
glh/ Ljósm. þa.
Skagamenn áfram í
Mjólkurbikarnum
Snæfellstap
í Hólminum
Steinar Þorsteinsson skoraði eina mark Skagamanna í leiknum.
Íslandsmeistararnir höfðu betur
Hart var barist á Akranesvelli.
Víkingur Ó. þurfti að sætta sig við tap um helgina. Ljósm. af.
Kjöldregnir á heimavelli