Skessuhorn - 23.08.2020, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 202010
Árlegar umhverfisviðurkenning-
ar Borgarbyggðar voru afhent-
ar síðastliðinn fimmtudag fyr-
ir snyrtimennsku við hús og lóð-
ir í sveitarfélaginu auk þess sem
hvatningarverðlaun voru veitt.
Það voru þær Þórdís Sif Sigurð-
ardóttir sveitarstjóri og Halldóra
Lóa Þorvaldsdóttir, varaformaður
umhverfis- og landbúnaðarnefnd-
ar, sem afhentu viðurkenningarn-
ar. Sem fyrr er það umhverfis- og
landbúnaðarnefnd sveitarfélags-
ins sem hafði forgöngu um verk-
efnið; auglýsti eftir tilnefningum,
heimsótti staðina sem tilnefnd-
ir voru og valdi að endingu hverj-
ir ættu að hljóta viðurkenningar. Í
máli Halldóru Lóu kom fram að
óvenjulega margar tilnefningar
hafi borist að þessu sinni. Í flest-
um flokkum hafi verið erfitt að
velja úr hverjir sköruðu framúr og
því hafi nefndin ákveðið að birta
að þessu sinni nöfn þeirra sem til-
nefndir voru.
Smátún
snyrtilegasta lóðin
Í flokki lóða við hús fengu eftir-
taldar lóðir tilnefningar: Borgarvík
5, Arnarklettur 19, Kveldúlfsgata
2a, Smátún á Kleppjárnsreykjum,
Þorsteinsgata 11 og Þórunnargata
7. Smátún á Kleppjárnsreykjum
varð fyrir valinu sem snyrtilegasta
lóðin. Smátún er í eigu þeirra evu
Lind Jóhannsdóttur og Unnars
Bjartmarssonar. Smátún er mik-
ið gróin eins hektara lóð í Klepp-
járnsreykjahverfinu. Þar er íbúðar-
hús sem endurbyggt var og stækk-
að af núverandi eigendum. Upp-
haflega var húsið byggt til að hýsa
þvottahús sveitarinnar en þar var
auk þess ýmis önnur atvinnustarf-
semi eftir að sjálfvirkar þvottavél-
ar komu á bæi. Lóðin er óvenjuleg
að því leyti að í norðurjaðri henn-
ar rennur hveralækur. Þar eru
einnig nokkur lítil gróðurhús og
útiræktun á grænmeti, hænur og
endur vappa um, pínulítil hand-
verksbúð húsfreyjunnar en auk
þess verkstæðisaðstaða húsbónd-
ans. Hús og lóð er eins og lítið æv-
intýraland þegar þangað er komið
og sannarlega verðskulduð viður-
kenning. Í niðurstöðu nefndarinn-
ar segir: „Lóðin umhverfis Smá-
tún er stór og gróðurmikil, fallega
máluð brú er yfir lækinn og lítið
hringtorg eru mikil prýði. einn-
ig er mikill og fjölbreyttur gróð-
ur á lóðinni. Hænur og endur eru
í garðinum ásamt tjörn og gróður-
húsum þar sem ávaxtatré og ýmis
grænmetisræktun fer fram. Í um-
sögn frá þeim sem tilnefndi kemur
einnig fram að miklar endurbæt-
ur farið fram á lóðinni að undan-
förnu. Þar er nú einkar gróðursælt
og snyrtilegt.“
Snyrtileg lóð
við atvinnuhúsnæði
Í flokknum snyrtilegasta lóð við at-
vinnuhúsnæði voru eftirtalin fyrir-
tæki tilnefnd: Framköllunarþjón-
ustan, Bifræðaverkstæðið Hvannnes
Sólbakka 3, Gróðrastöðin Gleym-
mér-ei, og Límtré- Vírnet. Það var
Límtré-Vírnet sem hlaut viður-
kenninguna að þessu sinni. Í um-
sögn nefndarinnar segir: „Límtré-
Vírnet er sérlega snyrtileg atvinnu-
lóð í hjarta bæjarins, húsum vel við
haldið og ávallt til sóma fyrir Borg-
arnes. Blóm eru í kerjum, plön sóp-
uð og efni er snyrtilega raðað við
húsin.“
Snyrtilegt bændabýli
Fyrir snyrtilegustu bændabýl-
in voru eftirtaldar jarðir tilnefnd-
ar: Litla-Brekka, Bóndhóll, Hall-
kelsstaðahlíð, Brekkukot, Hvamm-
ur í Hvítársíðu, Steindórsstaðir,
Hvítárvellir og Ytri-Skeljabrekka.
Hvammur í Hvítársíðu hlýtur við-
urkenninguna að þessu sinni. Um-
sögn nefndarinnar er svohljóðandi:
„Hvammur hefur í mjög langan
tíma verið eitt snyrtilegasta bænda-
býli í Borgarbyggð og varð fyrst til
að fá þessi verðlaun 2006. Bygg-
ingum, aðkeyrslu, girðingum, lóð
og umhverfi er nú sem áður vel við
haldið og vélum ávallt vel upp rað-
að. Öll umgengni er til fyrirmyndar
og Borgarbyggð til mikils sóma.“
Steinka Páls hlýtur
samfélagsverðlaunin
Tilnefnd til samfélagsviðurkenn-
ingar Borgarbyggðar vegna um-
hverfismála voru: Agnes Guð-
mundsdóttir á Síðumúlaveggj-
um, Steinunn Pálsdóttir Borgar-
nesi, Reykholtsstaður, Sigur-Garð-
ar garðaþjónusta á Laufskálum og
Birgir Hauksson og Gróa Rögn-
valdsdóttir í Tröð í Norðurárdal.
Það er Steinunn Pálsdóttir sem
hlýtur viðurkenninguna árið 2020.
Steinka hefur auk tónlistarkennslu
á vetrum verið umsjónarmaður
með Skallagrímsgarði í Borgarnesi
frá 1994. Hún hefur sinnt garðin-
um og ræktun hans af alúð allan
þennan tíma.
Í umsögn nefndarinnar segir:
„Steinunn hefur unnið við umhirðu
í Skallagrímsgarði í mörg ár og á
stóran þátt í því hversu vel garður-
inn lítur út. Garðurinn á hug henn-
ar hvert vor og sumar og er hún
mætt þar við fyrsta tækifæri. Natni,
skipulag og dugnaður er lýsing sem
á vel við Steinunni en auk þess að
sinna garðinum ár hvert tekur hún
einstaklega vel á móti ungmenn-
um úr Vinnuskóla Borgarbyggðar,
kennir þeim rétt handtök og hvern-
ig þau stígi sín fyrstu skref í garð-
yrkju.“
mm
Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar afhentar
Verðlaunahafar ásamt Halldóru Lóu og Þórdísi Sif. Á myndina vantar þau Evu Lind og Unnar, eigendur Smátúns í Reykholts-
dal. F.v. Halldóra Lóa, Þórdís Sif, Torfi Guðlaugsson í Hvammi ásamt dóttur sinni, Steinunn Pálsdóttir og Aðalsteinn
Símonarson sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Límtrés – Vírnets.
Steinunn Pálsdóttir hefur af alúð sinnt umhirðu Skallagrímsgarðs í Borgarnesi í
26 ár.
Límtré – Vírnet í Borgarnesi.
Hvammur í Hvítársíðu.
Íbúðarhúsið í Smátúni á Kleppjárnsreykjum.
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir afhendir Unnari
Bjartmarssyni í Smátúni verðlaun sín. Eva Lind
Jóhannsdóttir var að heiman.
Á lóð Smátúns eiga hænur og endur einnig heima. Safn- og moltukassar í Smátúni.
Horft inn í eitt
af gróðurhús-
unum í Smátúni
þar sem meðal
annars epla- og
perutré er að
finna.
Andapollur í Smátúni, gróðurhús og grænmetis-
beðin fjær.
Göngubrú yfir hveralækinn hjá
Smátúni.