Skessuhorn - 23.08.2020, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 23. SePTeMBeR 2020 11
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Thelma Lind Smáradóttir hóf
störf sem sálfræðingur á Heil-
brigðisstofnun Vesturlands fyr-
ir tveimur vikum síðan, mánudag-
inn 7. september. „Ég er bara al-
veg nýbyrjuð,“ segir Thelma í sam-
tali við Skessuhorn. „Núna starfa
ég aðallega með börnum og ung-
lingum en mun að líkindum starfa
með ungmennum einnig og jafnvel
fullorðnum þegar fram líða stund-
ir,“ segir hún um sínar fyrstu vik-
ur í starfi.
Starfsstöð Thelmu er á heilsu-
gæslunni í Borgarnesi og var hún
ráðin til eins árs. „Vegna Covid-19
var ákveðið að fjölga sálfræðingum
á heilsugæslustöðvum landsins. Ég
kem þar inn og er ráðin í eitt ár,“
segir Thelma, sem er ekki í vafa um
að þörf hafi verið á slíku. „Ég held
að við þekkjum mörg hver hvað
virkni er ofboðslega mikilvæg. Þeg-
ar fólk má gera minna en venjulega
er mjög algengt að því fari að líða
verr, bæði þeim sem eiga það til
að vera kvíðnir eða þungir og svo
þeim sem eru fullfrískir. Ég myndi
halda að ástandið hafi áhrif á alla,“
segir hún.
Thelma er nýlega útskrifuð úr
námi, búsett í Reykjavík en á eng-
in tengsl við Borgarnes. Hvern-
ig kom það þá til að hún ákvað að
ráða sig sem sálfræðing þar í bæ?
„Ég þekki konuna sem starfar sem
fullorðinssálfræðingur í Borgar-
nesi, en er nú komin í óvænt veik-
indaleyfi fram að fæðingarorlofi.
Henni fannst starfið svo frábært og
mér finnst ekkert að því að keyra á
milli frá Reykjavík, þá er alltaf tími
fyrir podcast og að syngja í bílnum
og svona,“ segir hún létt í bragði.
Hún ákvað því að láta slag standa
og réði sig til starfa á heilsugæsl-
unni í Borgarnesi. Og hvernig líkar
henni það sem af er? „Þetta er búið
að vera æðislegt. Það er ótrúlega
flott fólk að vinna bæði hér í Borg-
arnesi og annars staðar og innan
HVe er starfandi mjög sterkt og
flott geðheilbrigðisteymi skipað
fólki af öllu starfssvæðinu,“ segir
hún. „Ég er eins og staðan er núna
eini sálfræðingurinn í Borgarnesi
en verið er að auglýsa eftir öðrum.
Ég starfa náið með hjúkrunarfræð-
ingum og læknum og það er ótrú-
lega hresst og skemmtilegt fólk og
mikið fagfólk,“ segir Thelma Lind
Smáradóttir að endingu.
kgk/ Ljósm. aðsend.
Nú á tímum kórónuveirunnar hafa
flestar atvinnugreinar hér á landi
sem annarsstaðar orðið fyrir mikl-
um búsifjum á undanförnum mán-
uðum. Atvinnu- og rekstraröryggi
fjölda fólks og fyrirtækja er stefnt
í mikla óvissu. Þar er menningar-
og afþreyingageirinn engin und-
antekning. Kvikmyndahús, leik-
hús, tónlistarfólk og tónleikahald-
arar glíma við mikinn restrarvanda
vegna samkomubannsins sem nú
gildir. Bíóhöllin, menningarhús
Akurnesinga, er þar engin undan-
tekning. Starfsemi í húsinu hefur
að mestu legið niðri síðan í mars
eftir að kórónuveiran barst hingað
til lands.
Dýrin í Hálsaskógi á
fjalirnar
„Við vorum að undirbúa sýningar á
barnaleikritinu Dýrunum í Hálsa-
skógi sem leikhópur NFFA ætlaði
að setja á svið í mars þegar samko-
mubannið var sett á og allt stöðv-
aðist. en nú þessa dagana er stefnt
að því að hefja sýningar á leikritinu,
sem eru góðar fréttir,“ segir Ísólf-
ur Haraldsson, rekstrarstjóri Bíó-
hallarinnar í samtali við Skessu-
horn. Ísólfur segir að sóttvarna-
reglum verði fylgt eftir á sýning-
unum en gert er ráð fyrir að stærsti
hluti leiksýningargesta verði á aldr-
inum15 ára og yngri.
„en við bíðum einfaldlega færis
að geta hafið fulla starfsemi í hús-
inu að nýju þegar hægir á faraldr-
inum og sóttvarnareglur rýmkast.
Við höfum verið með breiða línu
af viðburðum á undanförnum árum
sem saman standa af kvikmynda-
sýningum, tónleikum og leiksýn-
ingum og byrjum af krafti þegar að
því kemur.“
Beðið eftir góðum
myndum
Kvikmyndasýningar hafa legið
niðri í Bíóhöllinni síðan í mars. Þó
að kvikmyndahúsin á höfuðborgar-
svæðinu hafi verið með sýningar í
sölum sínum þá hafa það að mestu
verið endursýningar á vinsælum
kvikmyndum fyrri ára. ”Ég tel ekki
grundvöll fyrir slíku hér hjá okkur.
Auk þess sem þær kvikmyndir sem
eru nýjar erlendis frá hafa ekki verið
þess eðlis að þær sópi að sér áhorf-
endum. en við ætlum að koma inn
af krafti þegar að stórsmellirnir fara
að berast fyrrihluta vetrar og von-
andi getum við hafið sýningar eigi
síðar en með nýjustu James Bond
myndinni ”No time to die” sem er
sú tuttugusta og fimmta í röðinni
um breska ofurnjósnarann. Stefnt
er að hefja sýningar á myndinni í
nóvember, en sýningar á henni áttu
upphaflega að hefjast í apríl.”
Kvikmyndaiðnaðurinn hefur
nánast verið í öndunarvél frá því
að faraldurinn hófst og hafa kvik-
myndarisarnir neyðst til þess að
selja framleiðslu sína til streymis-
veitna og nýjustu dæmin eru stór-
mynd Tom Hanks; Greyhound,
sem seld var til Apple+ á 70 milljón-
ir bandaríkjadala og einnig barna-
myndin Mulan, sem sýnd verður á
Disney+ og spurning hvort þessar
myndir munu nokkurn tímann rata
í kvikmyndahúsin. Ísólfur segir að
vissulega hafi verið samkeppni við
þessa miðla en kvikmyndahúsin
hafa staðið það af sér í gegnum tíð-
ina og býst hann við að þau geri það
áfram.
Bubbi öflugur bakhjarl
ein af þeim nýjungum sem ver-
ið hafa í Bíóhöllinni var kvik-
myndahátíðin ”IceDocs” sem fram
fór í annað sinn á Akranesi í sumar
og hefur Ísólfur stutt vel við bak-
ið á aðstandendum hátíðarinnar.
Hefur þessi hátíð vakið verðskuld-
aða athygli langt út fyrir Akranes.
Hafa gestir m.a. komið erlendis frá
og hrifist mjög af Bíóhöllinni sem
kvikmyndahúsi og skrifað um hús-
ið í erlend blöð. en það eru fleiri
en erlendir kvikmyndaáhugamenn
sem hafa hrifist af Bíóhöllinni og
er einn þeirra tónlistarmaðurinn
Bubbi Mortens:
„Það má alveg flokka Bubba sem
einn af okkar aðal bakhjörlum á
þann hátt að hann liggur ekkert á
skoðunum sínum um það að Bíó-
höllinn sé eitt besta tónleikahús
landsins. Hann hefur sýnt okk-
ur mikla tryggð í gegnum tíðina.
Hann hefur verið með tónleika í
Bíóhöllinni á hverju einasta ári síð-
an ég tók við rekstrinum árið 2001.
Nú síðustu árin með Þorláksmessu-
tónleikunum og þegar er búið að
bóka tónleikanna á þessu árs þann
19. desember næstkomandi. Við
stefnum að því auka tónleikahald-
ið enn frekar þegar ástandið batnar
sem við útfærum og kynnum síðar,”
sagði Ísólfur Haraldsson. se
Fiskistofa réði nýverið sex nýja
eftirlitsmenn til starfa í stað eldri
starfsmanna sem látið hafa af störf-
um. Tveir þessara nýju veiðieftir-
litsmanna voru ráðnir á starfsstöð
stofnunarinnar í Stykkishólmi, en
það eru þeir Jón Bek og Ríkarð
Ríkarðsson.
Fiskistofa er með starfsstöðvar
á sex stöðum á landinu og dreif-
ast nýju eftirlitsmennirnir á höfuð-
stöðvar Fiskistofu á Akureyri og á
starfsstöðvarnar á Höfn í Horna-
firði, í Stykkishólmi og Hafnarfirði.
Veiðieftirlitið er einn veigamesti
þátturinn í starfsemi Fiskistofu og
eru störf veiðieftirlitsmanna í stöð-
ugri þróun. Starfsvettvangur veiði-
eftirlitsmanna er bæði á sjó og landi.
Á sjó eru helstu verkefni veiðieftir-
litsmanna að lengdarmæla fisk og
að fylgjast með því að afladagbækur
séu rétt út fylltar og í samræmi við
veiðar og afla um borð. Þá gera þeir
tillögur um lokanir veiðisvæða eft-
ir því sem þurfa þykir. Á landi hafa
eftirlitsmenn Fiskistofu eftirlit
með löndun, vigtun og skráningu
afla í aflaskráningarkerfi Fiskistofu
og fylgjast með veiðarfærum og
aflasamsetningu. Þá sinna þeir eft-
irliti með löndunum erlendra skipa
og gera úttektir á afurðum vinnslu-
skipa auk eftirlits með lax- og sil-
ungsveiði.
mm
Jón Bek og Ríkarð Ríkarðsson. Samsett mynd/Skessuhorn.
Tveir nýir
veiðieftirlitsmenn
í Stykkishólmi
„Vonandi getum við hafið sýningar aftur
með nýjustu James Bond myndinni“
Ísólfur Haraldsson bíóhallarstjóri.
Ljósm. úr safni.
Nýr sálfræðingur tekinn til starfa á HVE í Borgarnesi
Thelma Lind Smáradóttir sálfræðingur.