Skessuhorn - 30.08.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 20206
island.is í nýrri
útgáfu
LANDIÐ: Vefurinn island.is
er upplýsinga- og þjónustu-
veita opinberra aðila á Íslandi.
Hann hefur nú verið opnaður
í nýrri og endurbættri útgáfu
með það að markmiði að gera
viðmót gagnvart notendum
skýrara og betra. Í tilkynningu
frá fjármálaráðuneytinu segir
að á vefnum verði auðvelt að
finna það sem leitað er að og
eru þrjár meginleiðir til þess.
Sú fyrsta er í gegnum lífsvið-
burði, svo sem upplýsingar
um nám, flutninga, barneign-
ir eða stofnun fyrirtækja. Þá er
búið að skilgreina helstu þjón-
ustuflokka á vefnum, t.d. um
akstur og bifreiðar, fjármál og
skatta, heilbrigðismál og fjöl-
skyldu og velferð. Ennfrem-
ur hefur leit á vefnum verið
styrkt og er auðvelt að sækja
upplýsingar í gegnum hana.
-mm
Fullir á golfbíl
BORGARNES: Haft var
samband við Neyðarlínu um
kl. 2:00 að nóttu á mánudag
og óskað eftir aðstoð sjúkra-
bíls, vegna manns sem hafði
fallið af bensínknúnum golf-
bíl skammt fyrir utan Borgar-
nes. Er hann talinn hafa fót-
brotnað við fallið auk þess sem
hann var með skurð á höfði.
Var hann fluttur undir læknis-
hendur. Þrír voru á golfbílnum
og eru þeir allir grunaðir um
að hafa verið undir áhrifum
áfengis. Voru mennirnir tveir
sem ekki slösuðust handtekn-
ir og færðir á lögreglustöðina
á Akranesi þar sem þeir voru
síðan látnir gefa skýrslu. Golf-
bíllinn var fluttur á stöðina í
Borgarnesi til skoðunar. Mál-
ið er til rannsóknar. -kgk
Olíubrák
í höfninni
STYKKISH: Lögreglumaður
í eftirlitsferð varð var við olíu-
brák í höfninni í Stykkishólmi
á laugardag og fann hann lykt
af dísilolíu. Gerði hann hafn-
arstjóra viðvart, en talið er að
olían hafi komið úr sjálfvirkum
lensibúnaði báts eins í höfn-
inni. Haft var samband við
eiganda bátsins vegna þessa.
-kgk
Fór út af
HVALFJSV: Ökumaður
missti stjórn á bifreið sinni
í ískrapa á Akrafjallsvegi við
Litlu-Fellsöxl á þriðjudaginn í
síðustu viku, með þeim afleið-
ingum að bíllinn hafnaði utan
vegar. Engin slys urðu á fólki
en bíllinn skemmdist nokkuð.
Um bílaleigubíl var að ræða
og ætlaði bílaleigan að gera
ráðstafanir til að fjarlægja bíl-
inn. -kgk
Sólveig ráðin
félagsmálastjóri
HVALFJSV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar samþykkti
á síðasta fundi sínum að ráða
Sólveigu Sigurðardóttur í
starf félagsmálastjóra. Um er
að ræða fullt starf, tímabundið
til eins árs. Um mánaðamót-
in rennur út samstarfssamn-
ingur við Akraneskaupstað
um félagsþjónustu, barna-
vernd og málefni fatlaðra. Um
var að ræða eins árs tilrauna-
samning, með þriggja mán-
aða framlengingu. Í tillögu
sem sveitarstjórn Hvalfjarðar-
sveitar samþykkti kemur fram
að vel hafi verið staðið að fag-
þjónustunni samkvæmt samn-
ingnum. Hins vegar hafi sam-
tal um áframhaldandi samstarf
ekki borið árangur. „Hval-
fjarðarsveit hefur því ákveð-
ið að ráða, tímabundið til eins
árs, Sólveigu Sigurðardóttur í
100% starf félagsmálastjóra,“
segir í fundargerð, þar sem
sveitarstjórn þakkar jafnframt
Akraneskaupstað fyrir gott
samstarf og samvinnu. -kgk
Bayonne og
Feta bannað
LANDIÐ: Mat-
vælastofnun hef-
ur beint tilmæl-
um til nokk-
urra mat-
v æ l a f y r -
i r t æ k j a
að stöðva
n o t k -
un vernd-
aðra afurðarheita á
merkingum. Ástæðan er að
vöruheitin njóta alþjóðlegr-
ar verndar samkvæmt milli-
ríkjasamningi. Um er að ræða
heiti eins og „Feta-ostur“ og
„Bayonne-skinka.“ Feta nýt-
ur verndar sem skráð afurðar-
heiti í Grikklandi og Bayonne
nýtur verndar sem skráð af-
urðarheiti í Frakklandi. -mm
Frænkurnar Kristín Jónsdóttir og
Sandra Björk Bergsdóttir hittust nú
á dögunum á bílaplani í Borgarnesi
þar sem þær voru báðar í sendiferð.
Kristín var á á leið í Húsasmiðj-
una að sækja járn á Scania bifreið
hennar og tryggva eiginmannsins
á Hálsum en hjá Söndru var förinni
heitið um sveitir Borgarfjarðar með
pakka, en hún starfar sem sendibíl-
stjóri fyrir Júlíus Jónsson í Borgar-
nesi. Kristín lauk við meiraprófið
nú í lok sumars og tekur nú að sér
ýmis verkefni fyrir Vélaþjónustuna
Hálstak.is auk þess sem hún starf-
ar sem ljósmyndari. „Við ætluð-
um að fara saman í meiraprófið en
það tókst ekki alveg, Sandra klár-
ar það seinna. En við erum báðar
með mikla bíladellu,“ segir Kristín
í samtali við Skessuhorn. arg
Um klukkan 11:30 á mánudags-
morgun barst björgunarsveitinni
Lífsbjörgu í Snæfellsbæ útkalls-
beiðni á björgunarbátinn Björgu.
Dragnótarbáturinn Ólafur Bjarnas-
son SH hafði fengið pokann í skrúf-
una þar sem hann var á veiðum um
tvær og hálfa sjómílu út af Ólafsvík.
Vel gekk að koma taug milli skip-
anna og gekk heimferðin vel í frem-
ur hægu veðri. Var Björgin komin
með Ólaf til hafnar í Ólafsvík um
klukkan 13. Víðir Haraldsson kaf-
aði að skrúfu skipsins um kvöld-
ið og var Ólafur Bjarnason klár til
veiða morguninn eftir.
þa
Ólafur Bjarnason fékk
pokann í skrúfuna
Frænkur á ferð um Borgarfjörð
Frænkurnar í sendiferð í Borgarnesi. Ljósm. Tryggvi Valur Sæmundsson.