Skessuhorn - 30.08.2020, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 20208
Afstunga
SNÆFELLSBÆR: Haft
var samband við Neyðar-
línu á miðvikudaginn í síð-
ustu viku og tilkynnt að öku-
maður hefði stungið af frá
vettvangi eftir að hafa ekið á
kyrrstæðan bíl, sem stóð fyr-
ir utan Ráðhús Snæfellsbæj-
ar á Hellissandi. Að endingu
tókst að hafa uppi á viðkom-
andi og ökumenn ætluðu að
hittast til að fylla út tjónatil-
kynningu, að sögn lögreglu.
-kgk
Varðeldur á
miðju gólfi
SNÆFELLSBÆR: Síðast-
liðinn föstudag var tilkynnt
að „tveir litlir gaurar“ hefðu
hlaupið út úr kofa á svæði
Skógræktar Ólafsvíkur og
sást svo reykur koma út úr
húsinu. Slökkvilið Snæfells-
bæjar sinnti erindinu og
mætti liðsmönnum þess lít-
ill eldur á miðju gólfinu,
eins og varðeldur. Eldurinn
var slökktur og ekkert tjón
hlaust af þessu.
-kgk
Djúp hola
AKRANES: Haft var sam-
band við lögreglu í liðinni
viku og greint frá djúpri og
hættulegri óvarðri holu sem
hafði verið grafin við Aspar-
skóga á Akranesi. Haft var
samband við verktaka og
honum bent á að honum beri
skylda til að tryggja öryggi
slíkra svæða að uppgreftri
loknum, enda geta djúpar
holur, svo sem húsgrunnar,
skapað slysahættu.
-kgk
Yfirgefinn um
langa hríð
BORGARBYGGÐ: Haft
var samband við lögreglu á
föstudag og sagt frá bifreið
sem hefði staðið við veginn
í Norðurárdal undanfarnar
tvær vikur, en enn hefði ekki
náðst í eigandann. En lokst
tókst að hafa upp á honum.
Kvaðst hann hafa þurft að
skilja bílinn eftir þegar hann
bilaði hálfum mánuði fyrr.
Sagðist hann einmitt hafa
ætlað að fara og sækja hann
um helgina, að sögn lög-
reglu.
-kgk
Eftirlit í sumar-
húsahverfum
BORGARBYGGÐ: Lög-
reglan á Vesturland fór eft-
irlitsferð í sumarhúsahverfi
í Borgarfirði síðastliðinn
laugardag, skömmu fyrir
miðnætti. Farið var m.a. um
sumarhúsabyggðina í Mun-
aðarnesi og Svignaskarði.
Allt var þar með kyrrum
kjörum, að því er fram kem-
ur í dagbók lögreglunnar.
-kgk
Nagladekk eftir
aðstæðum
VESTURLAND: Lögregl-
unni á Vesturlandi hafa bor-
ist nokkrar tilkynningar um
slæma færð undanfarna viku,
til dæmis frá einum sem
lenti í basli sunnanmegin á
Bröttubrekku á miðvikudag-
inn í síðustu viku. Sömuleiðis
hefur lögregla fengið marg-
ar fyrirspurnir um notkun
nagladekkja og vill árétta að í
reglum segir að þrátt fyrir að
reglur segi að notkun nagla-
dekkja sé almennt heimil eft-
ir 1. nóvember þá sé í regl-
unum klausa sem kveði skýrt
á um að ökumenn megi búa
bíl sinn miðað við aðstæður.
Ef fólk á erindi um leiðir þar
sem færð kallar á nagladekk
þá er leyfi til þess til staðar
í reglum.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
19.-25. september
Tölur frá Fiskistofu
Akranes: 2 bátar.
Heildarlöndun: 13.830 kg.
Mestur afli: Ísak AK-67:
13.185 kg í fjórum róðrum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 720 kg.
Mestur afli: Hrólfur AK-29:
720 kg í einum róðri.
Grundarfjörður: 9 bátar.
Heildarlöndun: 338.481
kg.
Mestur afli: Hringur
SH-153: 69.791 kg í einni
löndun.
Ólafsvík: 12 bátar.
Heildarlöndun: 171.582
kg.
Mestur afli: Steinunn
SH-167: 31.474 kg í fimm
löndunum.
Rif: 8 bátar.
Heildarlöndun: 89.234 kg.
Mestur afli: Magnús
SH-205: 47.012 kg í þremur
löndunum.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 3.252 kg.
Mestur afli: Fjóla SH-7:
2.216 kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH-153 - GRU:
69.791 kg. 23. september.
2. Runólfur SH-135 -
GRU: 63.274 kg. 21. sept-
ember.
3. Sturla GK-12 - GRU:
59.723 kg. 21. september.
4. Sigurborg SH-12 -
GRU: 58.094 kg. 21. sept-
ember.
5. Farsæll SH-30 - GRU:
46.670 kg. 22. september.
-kgk
Ríkisstjórn Íslands hefur sam-
þykkt að Ísland taki á móti fimm-
tán manna hópi flóttafólks frá Les-
bos á Grikklandi, með áherslu á
sýrlenskar fjölskyldur í viðkvæmri
stöðu. Fjölskyldurnar bjuggu áður
í flóttamannabúðunum Moria sem
eyðilögðust í eldsvoða fyrr í mán-
uðinum. Flóttafólkið frá Lesbos
mun bætast í hóp þeirra 85 sem
ríkisstjórnin hyggst taka á móti á
þessu ári og er það langfjölmenn-
asta móttaka flóttafólks á einu ári
hingað til lands.
Flóttamannanefnd mun ann-
ast undirbúning við móttöku fjöl-
skyldnanna og verður móttaka
þeirra unnin í samvinnu við Evr-
ópusambandið og grísk stjórnvöld.
Evrópusambandið hafði áður sent
frá sér ákall um nauðsyn á flutningi
barna og barnafjölskyldna vegna
bruna Moria flóttamannabúðanna.
Þá mun Flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna vera íslenskum
stjórnvöldum innan handar varð-
andi það hvernig best verður stað-
ið að því að koma fjölskyldunum til
landsins. mm
26. september árið 1970 rakst Fok-
ker Friendship flugvél Flugfélags
Íslands, tF-FIL, á fjallið Knúk á
eyjunni Mykines í Færeyjum. Slys-
ið varð skömmu fyrir áætlaða lend-
ingu á flugvellinum í Vogi. Skall
vélin niður í hlíðar fjallsins með
þeim afleiðingum að flugstjórinn,
Bjarni Jensson, og sjö færeyskir far-
þegar fórust. 26 sem um borð voru
björguðust, sumir mikið slasaðir.
Vélin hafði verið í áætlunarflugi frá
Kaupmannahöfn með millilend-
ingu í Björgvin í Noregi, en veður-
aðstæður voru slæmar í Færeyjum.
Þrír færeyskir farþegar sem sluppu
lítt meiddir gengu klukkutíma leið
um óbyggt fjallendi að Mykines-
þorpi til að gera viðvart. Fóru þá
flestir íbúar þorpsins á slysstað til
að liðsinna slösuðum en björgun-
arþyrla komst ekki strax á vettvang
vegna þoku.
mm
Ólafsvíkurkirkju barst góð gjöf á
dögunum. Var henni fært píanó af
gerðinni Yamaha. Nýja hljóðfær-
ið verður í safnaðarheimili Ólafs-
víkurkirkju og mun leysa af hólmi
eldra píanó sem þjónað hefur sókn-
inni og kirkjukór Ólafsvíkur vel og
lengi. Kórinn æfir einu sinni í viku
í safnaðarheimilinu. Var því vel við
hæfi að píanóið væri afhent á kór-
æfingu og tók Gunnsteinn Sigurðs-
son við gjöfinni fyrir hönd sóknar-
nefndar en gefandinn óskaði eftir
að verða ekki nefndur á nafn. Vilja
félagar í kirkjukórnum og sókn-
arnefnd Ólafsvíkurkirkju koma á
framfæri kæru þakklæti fyrir þessa
höfðinglegu gjöf.
þa
Ónefndur einstaklingur gaf
Ólafsvíkurkirkju píanó
Fimmtán manna hópur sýr-
lenskra flóttamanna væntanlegur
Fimmtíu ár frá flugslysinu í
Mykinesi í Færeyjum