Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2020, Side 12

Skessuhorn - 30.08.2020, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 202012 Álfheiður Ágústsdóttir tók við starfi forstjóra Elkem Ísland nú um miðjan mánuðinn. Hún var áður framkvæmdastjóri fjármála og innkaupa hjá fyrirtækinu en hefur starfað hjá Elkem frá 2006, fyrst í framleiðslunni og síðar á fjármálasviði. Hún sinnti ýmsum störfum hjá fyrirtækinu samhliða námi í reikningshaldi og endurskoðun en hefur verið í fullu starfi hjá Elkem undan- farin ellefu ár. Álfheiður er fædd og uppalin í Grundarfirði og býr ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum þeirra á Akra- nesi. Skessuhorn hitti Álfheiði að máli síðdegis á mánudag og ræddi við hana um nýja starfið og helstu verkefni Elkem Ísland. Flókin kostnaðarstaða Aðspurð segir Álfheiður að nýja starfið leggist vel í sig. „Þetta er virkilega flott fyrirtæki. Ég er stolt af því að vinna hérna og taka þátt í þessari vegferð og hrærð yfir því að fá það verkefni í hendurn- ar að vinna með fyrirtækið áfram og skapa framtíðargrundvöll fyr- ir það,“ segir Álfheiður. „Það er ekkert launungarmál að kostn- aðarstaðan er flókin, eftir gerð- ardóm í raforkunni á síðasta ári. Það er okkar helsta verkefni, en ég er bara spennt. Það er flott fólk hérna sem gaman er að vinna með í að finna leiðir til að skapa grundvöll fyrir fyrirtækið til fram- tíðar,“ segir hún. En það er fleira sem spilar inn í en raforkuverð- ið, markaðsaðstæður hafa líka ver- ið erfiðar undanfarin ár. „En það ráðum við ekkert við, markaður- inn sveiflast alltaf,“ segir hún. „Ef maður horfir á rekstur svona verk- smiðju á Íslandi þá erum við hér af því við erum nálægt endurnýjan- legri orku, sem var til reiðu á sam- keppnishæfu verði. Þegar það síð- an breytist þá grefur það svolítið undan kostnaðarstöðu verksmiðj- unnar, og það er alltaf okkar verk- efni sem stjórnenda að hugsa um kostnaðarstöðuna,“ segir Álfheið- ur. „Hér erum við staðsett, hvorki nálægt hráefnum né endamörkuð- um. Þannig að flutningskostnaður verður alltaf áhallandi miðað við aðrar verksmiðjur í sambærilegri framleiðslu. Launakostnaður á Ís- landi er líka hærri en gerist ann- ars staðar. Við erum stolt af því að borga hér góð laun, en það skekk- ir samkeppnisstöðuna. Þegar síð- an orkuverðið breytist þá breytist myndin. Fram að þeim tíma hafði orkuverðið hjálpað til varðandi hina þættina, því það er í raun eng- in önnur ástæða sem dregur fram- leiðsluna til Íslands önnur en raf- orkan,“ segir hún og bætir því við að hún hafi fulla trú á að það tak- ist að skapa kostnaðarstöðu sem er samkeppnishæf. „Ég hef mikla trú á þessum hópi og þessari verk- smiðju,“ segir Álfheiður. Langur ferill hjá Elkem Álfheiður hefur starfað lengi hjá Elkem, eða allt frá því hún hóf þar störf sem sumarstarfsmaður í fram- leiðslu árið 2006. Spurð hvern- ig það kom til segir hún það til- viljunum háð, eins og svo margt annað. „Ég var á leiðinni í nám og fékk vinnu hér í daggenginu, sóttist hingað af því það voru fínar tekjur,“ segir hún. „Seinna fékk ég svo tæki- færi til að vinna hér á fjármálasviði fyrirtækisins, sem var í takt við það sem ég var að læra á þeim tíma,“ bætir hún við, en Álfheiður nam þá viðskiptafræði við Háskólann á Bif- röst. „Með náminu tók ég helgar- vaktir í framleiðslunni með skól- anum en var á fjármálasviðinu á sumrin og í jólafríum,“ segir hún. Álfheiður ætlaði sér að verða end- urskoðandi og fór í meistaranám í reikningsskilum og endurskoðun. Á meðan því námi stóð var henni boðið að taka að sér eins árs verk- efni hjá Elkem, sem hún og gerði. Að því verkefni liðnu, á meðan hún var enn í meistaranámi, var henni boðið starf á endurskoðunarskrif- stofu en einnig að taka að sér verk- efni hjá Elkem í Ameríku, sem fólst í því að innleiða tölvukerfi bæði þar og hér á Íslandi. „Mér fannst það spennandi, svo ég gerði hlé frá námi og fór í það. Þegar síðan kom að því að halda áfram að læra þá langaði mig frekar að vera hér og grípa þau tækifæri sem buðust hjá Elkem á þeim tíma,“ segir Álfheiður. Örfá- um árum seinna tók hún við starfi framkvæmdastjóra fjármála og innkaupa og er nú orðin forstjóri. „Þetta hefur bara þróast svona og mér hefur aldrei leiðst hérna. Það er virkilega gaman að vinna í fram- leiðslu. Maður er nálægt allri verð- mætasköpuninni og nálægt fólkinu. Framleiðsla Elkem er að mörgu leyti flókin, við erum alltaf í rekstri og þetta er at. Það hentar sumum og virðist henta mér rosa vel,“ segir hún og brosir. Forstjórinn styður við teymið Aðspurð segir Álfheiður að verk- efni forstjóra séu síbreytileg frá degi til dags. „Meginhlutverk for- stjórans er að styðja við teymið sem hann vinnur með. Allt starfið mark- ast af því. Unnið er með það sem kemur upp hverju sinni og maður reynir að styðja við hópinn í að ná árangri í því sem hann er að gera hverju sinni,“ segir hún. „Svo kem- ur inn í þetta stefnumótun og fram- tíðarsýn, auk mikilla samskipta við móðurfélagið,“ bætir hún við. Álf- heiður segir stefnu Elkem til næstu ára tiltölulega einfalda; annars veg- ar að hámarka framleiðslugetu verksmiðjunnar, gæði framleiðsl- unnar og þar með virði hennar, en hins vegar að vinna með kostnaðar- stöðuna. „Þetta tvennt skiptir okk- ur mestu máli núna, næstu þrjú til fimm árin eða svo,“ segir hún.Kísiljárnverksmiðja Elkem á Grundartanga. Ljósm. úr safni/ kgk. „Hef mikla trú á þessum hópi og þessari verksmiðju“ - segir Álfheiður Ágústsdóttir, nýr forstjóri Elkem Ísland Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem Ísland. Ljósm. kgk.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.