Skessuhorn - 30.08.2020, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 2020 13
Stórt verkefni að verða
kolefnishlutlaus
En framtíðarsýn fyrirtækisins snýr
ekki eingöngu að peningahliðinni.
Elkem setti sér fyrir ekki löngu síð-
an það markmið að verða kolefnis-
hlutlaust fyrir árið 2040. Verður
það að teljast metnaðarfullt í ljósi
þess að um stóriðju er að ræða.
Hvernig er unnið að því mark-
miði um þessar mundir? „Við vij-
um starfa í sátt við okkar umhverfi
og samfélag. Við skiljum að við
erum stór losandi af CO2 og skilj-
um eftir umhverfisfótspor,“ segir
hún. „Við lögðum af stað í þessa
vegferð og höfum verið í alls kon-
ar skemmtilegri vinnu í tengslum
við hana,“ segir Álfheiður og nefn-
ir sem dæmi verkefni í samvinnu
við Þróunarfélag Grundartanga
um framleiðslu rafeldsneytis með
því að nýta glatvarma og koldíox-
íð sem fellur til við framleiðslu El-
kem, eins og lesendur Skessuhorns
þekkja. „En ég ætla ekki að draga
neinar hyljur yfir það að breytt
kostnaðarstaða fyrirtækisins hef-
ur dregið úr krafti til slíkra verk-
efna,“ segir hún. „En við stöndum
samt keik, erum stolt fólk sem vill
gera góða hluti í umhverfismálum
og gerum það, samanber verkefni
okkar í samstarfi við Sorpu, en við
tökum nær allan við sem þangað
er skilað og nýtum í okkar fram-
leiðslu. Eins höfum við stutt ís-
lenska skógrækt og leggjum mik-
ið upp úr því að endurnýta allt í
okkar ferlum sem og hjá okkar
viðskiptavinum. Í samstarfi við þá
höfum við búið til hringrásarkerfi
sem miða að því að nýta allar af-
urðir betur,“ segir hún. „En þetta
er stórt verkefni. Það þarf nýsköp-
un og framtíðarsýn til að ná þessu
markmiði,“ segir Álfheiður. „Akk-
úrat núna þurfum við að einbeita
okkur að því að tryggja rekstur
þessarar verksmiðju áfram. Og það
ætlum við okkur að gera,“ segir
hún en bætir því við að vörur El-
kem Ísland séu með sterka mark-
aðshlutdeild í rafmagnsstáli, sem
sé ef til vill stærsta framlag Íslands
til alþjóðlegra loftslagsverkefna.
Virkja þekkingu starfs-
fólksins
Álfheiður áætlar að milli 200 og
250 manns mæti til vinnu á starfs-
svæði Elkem á hverjum degi og hafi
með beinum hætti lífsviðurværi sitt
af starfsemi verksmiðjunnar. Þá er
átt við starfsfólk Elkem, auk þeirra
sem starfa hjá Meitli - Gtt tækni,
Hamri, Héðni, Rafmiðlun, Snóki,
Klafa og fleiri fyrirtækjum. „Við
erum í viðskiptum við fjöldann all-
an af félögum,“ segir hún, en sé
eingöngu litið til Elkem starfa þar
í kringum 180 manns. Fyrirtækið
hefur verið þekkt fyrir litla starfs-
mannaveltu í gegnum tíðina og
þannig er það enn, að sögn for-
stjórans. „Það er nær engin starfs-
mannavelta og fólki líður vel hjá
okkur. Við erum virkilega stolt af
því og það skiptir miklu máli,“ seg-
ir Álfheiður. „Hér er hópur fólks
sem veit alveg hvað það er að gera.
Hugsun okkar er að virkja þá þekk-
ingu og getu til að finna út hvað við
getum gert enn betur. Það er stórt
verkefni fyrir höndum, ég ætla ekk-
ert að draga dul á það, en við eig-
um helling inni þegar kemur að
því að framleiða eins mikið og við
getum og nýta vöruna eins vel og
mögulegt er. til þess þurfum við að
nýta hugarafl fólks,“ segir hún. „Ég
held að fólkið sem starfar að því að
skapa verðmætin viti hlutina oftast
betur en við hin. Mitt hlutverk og
okkar stjórnendanna er að draga
fram hvaða áskorunum við stönd-
um frammi fyrir og vinna með og
styðja fólk í að finna góðar lausnir á
þeim,“ segir Álfheiður Ágústsdóttir
að endingu.
kgk
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Veturinn nálgast
breyttur afgreiðslutími frá 1. október
Laugardagar eru fjölskyldudagar á bókasafninu. Fylgist með dagskrá
laugardaga og annarri dagskrá á fésbókarsíðu bókasafnsins og Instagram.
Fyrsta sögustund vetrarins fyrir börn er miðvikudaginn 7. október kl. 16:30-17:00 og verður •
síðan á hálfs mánaðar fresti í vetur.
Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10, fyrir foreldra í fæðingarorlofi. •
Karlaspjall á föstudögum kl. 12. •
Leshringir starfa í vetur – nánari upplýsingar í afgreiðslu. •
Á Bókasafninu er gætt að sóttvarnarreglum í hvívetna og fjöldatakmarkanir eru á viðburði, eftir •
því sem við á.
Verið velkomin
Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200
bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranessofn.is
Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 10 – 18
(sjálfsafgreiðsla 10-12)
Laugardaga kl. 11-14 (okt-apríl)
volundarhus.is · Sími 864-2400
GARÐHÚS 14,5 m²
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
VH
/2
0-
01
GARÐHÚS 4,7m²
44 mm bjálki / Tvöföld nótun
GARÐHÚS 4,4m²
GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
GARÐHÚS 9,7m²
HAUSTTILBOÐ
Síðasta sendingin
sem við bjóðum á gamla verðinu*
Næsta sending mun hækka um 15-25%
www.volundarhus.is
*Verð samkvæmt gengi evru 01.11.2019 sem var 133,70 kr en er í dag um 160,60 kr.
FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is