Skessuhorn - 30.08.2020, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 202014
Verkefnið Brúin til framtíðar er að-
gerðaráætlun sem Borgarbyggð hef-
ur unnið að í samstarfi við KpMG
í þeim tilgangi að setja langtíma-
markmið í fjármálum sveitarfélags-
ins. Að sögn Lilju Bjargar Ágústs-
dóttur, forseta sveitarstjórnar Borg-
arbyggðar, hefur verkefnið reynst
vel í sveitarfélaginu og átt þátt í
að algjör viðsnúningur hefur átt
sér stað í fjármálum sveitarfélags-
ins síðustu ár. Eftir efnahagshrun-
ið haustið 2008 hrundi einnig fjár-
hagur Borgarbyggðar og árið 2010
var ákveðið að leggjast í töluverða
vinnu til að rétta af hallareksturinn.
Nokkur árangur náðist en svo árið
2014 var ákveðið að setja enn meiri
kraft í vinnuna og í því skyni farið í
verkefnið Brúin til framtíðar.
Viðsnúningurinn
sást vel
„Það voru allir samstíga í því verk-
efni; embættismenn, kjörnir fulltrú-
ar og starfsmenn sveitarfélagsins.
Það var einhugur um að fara í þetta
samstarf við KpMG og var það
upphafið af þessu verkefni, Brúin til
framtíðar,“ segir Lilja. Í upphafi var
aðeins lagt upp með að setja mark-
mið svo Borgarbyggð gæti upp-
fyllt skuldaviðmið eftirlitsnefndar
með fjármálum sveitarfélaga. Þegar
þeim lágmarkskröfum var náð urðu
markmiðin metnaðarfyllri og stóð
sveitarfélagið mjög vel fjárhagslega
á síðasta ári en rekstrarafgangur
ársins 2018 var 501 milljón króna
og árið 2019 var rekstrarafgangur-
inn 429 milljónir. „Það er gaman að
segja frá því að til dæmis þegar rýnt
er í tölur frá greiningardeild Arion
banka árið 2013 og svo aftur árið
2019 sjáum við skýrt hvaða við-
snúningur hefur átt sér stað. Árið
2013 var Borgarbyggð með alls 15
veikleikamerki í greiningunni en
árið 2019 var sveitarfélagið metið
fjárhagslega sterkt og aðeins með
eitt veikleikamerki. Það snéri að of
litlum fjárfestingum sem við höfum
aldeilis bætt úr síðan. Við vitum að
ástandið í samfélaginu í dag mun
hafa í för með sér bakslag í fjármál
sveitarfélagsins, eins og hjá öðrum
sveitarfélögum,“ segir Lilja og bæt-
ir við að sú staðreynd að sveitar-
sjóður Borgarbyggðar stóð vel fyr-
ir það ástand sem Covid-19 skap-
aði, muni klárlega koma sér vel en
ljóst er að tekjufall sveitarfélagsins
er mikið bæði vegna skertra útsvar-
stekna og minna framlags frá Jöfn-
unarsjóði.
Fjórir megin þættir
„Brúin til framtíðar snýst um að
nálgast fjárhagsáætlunargerð með
heildstæðum hætti og nota skýr
mælanleg markmið í fjórum meg-
in þáttum í starfsemi sveitarfélags-
ins; rekstri, fjárfestingum, efnahag
og sjálfbærni B-hluta fyrirtækja.
Við höfum frá upphafi haft þessi
fjögur megin markmið til hliðsjón-
ar og sett í því skyni smærri tölu-
legar vörður til að fylgja þeim eft-
ir. Er horft til markmiðanna í öllum
ákvörðunum sem teknar eru varð-
andi fjárhag sveitarfélagsins. Þetta
hjálpar okkur við að gæta að jafn-
vægi í rekstri sveitarfélagsins, stilla
af álögur, framkvæmdir og viðhalda
eðlilegu þjónustustigi við íbúa
sveitarfélagsins,“ útskýrir Lilja. „Þá
nálgumst við fjárhagsáætlunagerð
þannig með Brúnni til framtíðar, að
verkefni og ákvarðanir eru skoðaðar
og mátaðar inn í þessi fjögur mark-
mið, þá hvaða áhrif ákvörðun í einu
boxi getur haft á annað,“ útskýrir
Lilja og bætir við að rekstrarniður-
stöður Borgarbyggðar séu yfirfarn-
ar í hverjum mánuði og KpMG geri
sex mánaða uppgjör og haldi utan-
um verkefnið í heild. „Þetta verk-
efni hefur ekki aðeins hjálpað til við
að byggja upp fjárhag sveitarfélags-
ins heldur líka veitir það kjörnum
fulltrúum aðhald, aukið gegnsæi í
fjármálum sveitarfélagsins og gera
okkur kleift að fylgjast með hvaða
áhrif hver og ein ákvörðun hef-
ur fyrir heildar myndina,“ segir
Lilja. „Þá má segja að verkefnið sé
meira að segja ópólitískt en á síð-
asta kjörtímabili urðu meirihlutaslit
í Borgarbyggð en verkefnið Brúin
til framtíðar og þau markmið sem
því fylgdu, héldu sér öll. Þannig
að einhugur var um að vinna eftir
þeirri stefnu sem sett var með verk-
efninu,“ bætir hún við.
Önnur sveitarfélög
haft samband
Síðastliðið haust hélt Lilja Björg,
fyrir hönd Borgarbyggðar, erindi á
fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og
sagði frá þeim viðsnúningi sem hef-
ur átt sér stað í fjármálum sveitar-
félagsins. „Í kjölfarið hafa önnur
sveitarfélög haft samband og sýnt
mikinn áhuga á að fræðast um okk-
ar aðferðir og verkefnið Brúna til
framtíðar. Eins hafði samband við
okkur starfshópur á vegum Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga sem
vinnur að breytingum á fjármála-
kafla sveitarstjórnarlaga í því skyni
að fræðast um hvernig staðið er að
fjárhagsáætlanagerð í Borgarbyggð.
Það var mjög ánægjulegt að fá að
greina frá okkar vinnubrögðum og
koma með innlegg inn í þann hóp.
Fjárhagsáætlunargerð hefur verið
mjög skemmtileg síðustu ár enda
reksturinn gengið vel en við erum
þó meðvituð um að nú horfum
við fram á töluverðar skerðingu á
tekjum. Ljóst er að þetta mun verða
nokkuð högg fyrir fjárhag sveit-
arfélagsins og áskoranir blasa við
hvert sem litið er, en við munum að
sjálfsögðu nota þessi vinnubrögð og
aðgerðaráætlun til að rétta við fjár-
haginn að nýju,“ segir Lilja. arg
Bókaútgáfan Sæmundur hefur gef-
ið út bókina Mótorhausasögur.
„Þetta rit segir sannar og sann-
lognar gamansögur af alls konar
fólki í, við, undir, í kringum og ofan
á bílum, hér og þar. Þar má nefna
Baldur búktalara, Dóru gjafmildu,
Jón góðan daginn, Benna bensín-
stígvél, Alexöndru Mist, Magga á
80, Dóna í Garðlist, Stefni í Óefni,
Stíg í Minna-Viti og Jesú Krist
ásamt löggum, leigubílstjórum,
bifvélavirkjum, flutningabílstjór-
um, páfanum og einni klækjóttri
nunnu,“ segir í kynningu.
Ritinu er gert að svara áleitnum
spurningum, eins og hvort hægt
sé að mæðast við akstur og fest-
ast undir mælaborði, hvað varð
um Badda á Bjúkkanum sem Stuð-
menn ortu um, hvort apakött-
ur hafi einhvern tímann sigrað í
kappakstri, hvort sterkar hásingar
geti valdið skilnaði, hvernig Ca-
dillac klúðraði hönnun öskubakka,
hvers vegna Bretar framleiða ekki
tölvur og hvers vegna Skilnaðar-
Barbie kostar meira en Útivistar-
Barbie.“
Mótorhausasögur eru gefnar út í
vandaðri litprentaðri bók, prýddri
fjölda ljósmynda sem sumar hafa
hvergi birst áður, svo sem mynd-
in af þeim Stefni í Óefni og Stíg
í Minna-Viti sem skreytir bókar-
kápu. mm
Mótorhausasögur sem
kitla hláturtaugarnar
Brúin til framtíðar hefur reynst vel í Borgarbyggð
Önnur sveitarfélög skoða nú að taka upp sambærilega vinnu
Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Ljósm. úr safni/ ss.