Skessuhorn - 30.08.2020, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 2020 17
Námsgluggi
Skráðu þig í stök námskeið á háskólastigi.
Í boði eru einingabær námskeið á seinni
hluta haustannar.
Símenntun Háskólans á Bifröst býður fólki að hefja háskólanám nú á
haustmánuðum.
Nemendur geta skráð sig í stök námskeið í gegnum símenntunarmiðstöð
skólans.
Námskeið þessi eru kennd í grunn- og meistaranámi skólans. Nemendur
geta í framhaldinu, eða um næstu áramót sótt um formlega skólavist á
Bifröst.
Umsóknarfrestur er til 12. október
- í fararbroddi í fjarnámi
Steypustöðin/Loftorka í Borgarnesi óskar
eftir að taka á leigu 3-4 herbergja íbúð eða
hús í Borgarbyggð.
Um langtímaleigu er að ræða.
Áhugasamir sendi upplýsingar á netfangið
trausti@steypustodin.is
Íbúð óskast til leigu
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2020
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & Smur, Nesvegi 5
Fimmtudaginn 8. október
Föstudaginn 9. október
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Fjölmenningarhátíð Snæfellsbæj-
ar, sem haldin hefur verið í október
ár hvert, hefur verið aflýst að þessu
sinni vegna aðstæðna í samfélaginu.
„Það er ekki fyrirséð að hátíðin geti
farið fram með óbreyttu sniði í ár
og því er það samfélagsleg ábyrgð
skipuleggjenda að aflýsa henni að
svo stöddu,“ segir um málið á vef
Snæfellsbæjar.
Hátíðin hefur fest sig í sessi sem
einn af stærstu menningarviðburð-
um bæjarfélagsins ár hvert og hefur
hún vaxið með hverju árinu. Margir
koma að skipulagi og vinnu vegna
hátíðarinnar og enn fleiri hafa not-
ið afrakstursins. Stefnt er að því að
halda hátíðina að ári liðnu í félags-
heimilinu Klifi í Ólafsvík.
kgk
Um þessar mundir er rannsókna-
skip Hafrannsóknastofnunar,
Bjarni Sæmundsson, í hálfsmán-
aðarleiðangri í Arnarfirði og í Ísa-
fjarðardjúpi. Um borð er unnið að
fjölbreyttum verkefnum, m.a. með
rækjuvörpu, sjótöku, botngreip,
botnkjarnatöku eða neðansjávar-
myndavél. Meðal verkefna leiðang-
ursmanna er að meta stofn rækju,
rannsaka ungþorsk auk almennra
umhverfisrannsókna. Sérstaklega er
Arnarfjörður til skoðunar þar sem
meta á áhrif fiskeldis á lífríki botns
fjarðarins. Upplýsingum er safnað í
botngreipar og með myndavélum.
Er þetta þriðja árið í röð sem slíkar
rannsóknir eru gerðar. „Með slík-
um árlegum vöktunum fást upplýs-
ingar um þéttleika og samsetningu
botndýra á fjarsvæðum eldissvæða
og breytingar sem þar gætu orð-
ið. Að auki eru botnkjarnar tekn-
ir og súrefni, brennisteinsmagn og
sýrustig mælt úr setinu til að meta
ástand þess,“ segir í tilkynningu frá
Hafró.
mm
Frá Arnarfirði. Ljósm. Ingibjörg G. Jónsdóttir leiðangursstjóri.
Kanna meðal annars áhrif
fiskeldis í Arnarfirði
Frá Fjölmenningarhátíð Snæfellsbæjar í fyrra. Ljósm. úr safni.
Fjölmenningarhátíðinni aflýst