Skessuhorn - 30.08.2020, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 202024
Sunnudaginn 27. september náðist
loks að rétta í Hrafnkelsstaðarétt í
Kolgrafafirði. Upphaflega átti að
rétta laugardaginn 19. september
en því var frestað um viku vegna
veðurs. Svo var einnig leiðinda-
veður laugardaginn 26. september
og því var frestað til sunnudags. Þá
brast á með blíðskaparveðri og vel
gekk að heimta fé af fjalli. Ágætis
stemning var í réttunum þó að Co-
vid hafi að sjálfsögðu sett sinn svip
á andrúmsloftið.
tfk
„Þetta hófst í raun allt með því að
ég keypti miða á leik Liverpool á
vafasamri vefsíðu haustið 2009.
Fékk þó miðann á endanum og
skemmti mér vel enda vann Liver-
pool 6:1 sigur á Hull City. Sá sem
afhenti mér miðann benti mér á
að umrædd vefsíða væri ótraust
og næst þegar ég hefði áhuga á að
fara á völlinn skyldi ég hafa beint
samband við hann. Þannig hófust
tengsl mín við ungan mann í Liver-
pool, sem hefur ekki aðeins orðið
samstarfsmaður heldur einnig mjög
góður og traustur vinur,“ segir Sig-
urður Sverrisson, fyrrum útgefandi
og bóksali á Akranesi, sem nú er
búsettur ytra og starfar við skipu-
lagningu ferða á knattspyrnuleiki
og sölu miða.
Premierferðir stofnaðar
„Satt best að segja gerði ég mér ekki
grein fyrir því hve mikil eftirspurn
væri eftir miðum á Anfield þegar ég
byrjaði milligöngu á miðum í hjá-
verkum árið 2010. Þetta fór rólega
af stað fyrstu árin en eftir að ég setti
upp vefsíðu 2014 spurðist fljótt út
að ég væri með góðan tengilið.
Smám saman vatt þetta svo upp á
sig,“ segir Sigurður. Algjör spreng-
ing varð svo í þessu fyrir leiktíðina
2014-15. „Ekki var einungis eftir-
spurn eftir miðum á leiki heldur
einnig skipulögðum ferðum sem
við fórum að bjóða upp á í kjölfar-
ið. Ég helgaði mig þessu alfarið frá
miðju ári 2016 og með enn frekari
vexti urðu premierferðir svo til árið
2017 í samstarfi við tA Sport tra-
vel. Þar sem við vorum orðið með
skipulagðar hópferðir á nánast alla
heimaleiki Liverpool liðsins lá eig-
inlega í hlutarins eðli að við Helga
flyttum búferlum enda auðveld-
ara að sinna þessu frá Bretlandi.
Við fluttum í mars 2018, fyrst til
Formby, rétt norður af Liverpool,
en færðum okkur svo til borgarinn-
ar í maí á síðasta ári.“
Hafa aðgengi að flestum
völlum Englands
Sigurður segir að í Formby hafi þau
Helga búið í námunda við þekkt
nöfn úr knattspyrnuheiminum á
borð við Klopp, Gerrard, Robert-
son, Keita, Ross Barkley, Leighton
Baines og fleiri. „Við búum núna í
14 íbúða blokk á góðum og mjög
gróðursælum stað í Liverpool. Þrjár
slíkar blokkir eru hver við hlið ann-
arrar í lítilli botnlangagötu. Á efstu
hæðinni hjá okkur bjuggu t.d. bæði
Victor Moses og Nathaniel Clyne
áður en við fluttum inn. Í húsunum
sitt hvorum megin við okkur hafa
Klopp, Brendan Rodgers, Matip,
Mascherano og Wijnaldum allir
búið um tíma, að ógleymdum Guð-
laugi Victori pálssyni. Síðasta leik-
tíð sló öll met hjá okkur þrátt fyr-
ir að hún yrði endaslepp vegna Co-
vid-19. Við gáfum okkur strax, þeg-
ar allt fór í baklás í mars síðastliðn-
um, að óraunhæft væri að reikna
með neinum ferðum fyrr en um ára-
mót. Við töldum það raunhæft mat
en eins og mál standa nú kann það
að dragast jafnvel enn lengur. Þrátt
fyrir alla óvissuna erum við tilbúin
með tugi hóp- og pakkaferða inni
á www.premierferdir.is þótt ekki sé
hægt að verðleggja þær fyrr en allar
forsendur skýrast. Við höfum lagað
framboð okkar að eftirspurninni á
síðustu árum og einbeitt okkur að
þeim liðum sem hafa notið mestra
vinsælda. Þótt ferð á einhvern til-
tekinn leik sé ekki til sölu á síðunni
þá þýðir það samt ekki að fólk geti
ekki komist á hann. Við höfum orð-
ið aðgengi að nánast öllum völlum í
Englandi og höfum skipulagt fjölda
slíkra ferða fyrir smærri sem stærri
hópa. Ef fyrirvarinn er nægur er
flest hægt,” segir Sigurður.
Svekkjandi fyrir
stuðningsmenn
„Ástandið sem nú ríkir vegna kó-
vidfaraldursins er auðvitað hund-
fúlt fyrir alla knattspyrnuunnendur,
en sérstaklega sárt fyrir stuðnings-
menn Liverpool og Leeds United.
Liverpool vann sinn fyrsta Eng-
landsmeistarartitil í 30 ár í sum-
ar og Leeds komst að nýju upp í
premier League eftir 16 ára eyði-
merkurgöngu. Að stuðningsmenn
þessara liða geti ekki tekið þátt í
gleðinni sem þessu fylgir er óneit-
anlega svekkjandi,“ segir Sigurð-
ur. „Þótt ný leiktíð sé rétt hafin þá
bendir margt til þess að baráttan
um Englandsmeistaratitilinn verði
jafnari nú en á þeirri síðustu. Liver-
pool stakk þá fljótlega af og var í
raun búið að vinna titilinn í janú-
ar. Chelsea hefur keypt grimmt af
mannskap og ætlar sér stóra hluti.
Arsenal er eins og nýtt lið í hönd-
um Arteta og Manchester City leyf-
ir Liverpool ekki að stinga af eins
og síðast. Endurkoma Bale ætti að
verða vítamínsprauta fyrir Spurs og
Manchester United hefur ekki sagt
sitt síðasta orð. Þessi sex lið, efstu
sæti deildarinnar, Leicester og jafn-
vel Everton gætu líka bankað þarna
upp á þótt ég reikni síður með því.
Mig grunar að bæði WBA og Ful-
ham muni verða í basli í vetur og
lið eins og Sheffield United, Burn-
ley, Southampton og jafnvel West
Ham gætu átt erfitt uppdráttar en
auðvitað vill maður ekki spá nokkru
liði þess að falla,“ segir Sigurður að
endingu.
se/ Ljósm. aðsendar.
Þessi myndarlegi hrútur bíður þess að komast á sinn heimabæ.
Réttað í
Hrafnkelsstaðarétt
Séð yfir Hrafnkelsstaðarétt í Kolgrafafirði.
Bjarni Sigurbjörnsson bóndi á Eiði ferjar hér eitt lambið sem kom örmagna af
fjalli.
Verið að smala síðustu metrana í réttina.
Guðrún Lilja Arnórsdóttir bóndi á Eiði er hér að sjá til þess að þetta lamb rati í
réttan dilk.
„Ástandið hundfúlt fyrir alla
knattspyrnuunnendur“
Rætt við Skagamannin Sigurð Sverrisson sem býr í Liverpool og
skipuleggur ferðir Íslendinga á leiki á Anfield Road
Sigurður ásamt Lizz Carr úr Silent Wit-
ness á Lime Street Station í Liverpool.
Sigurður á „selfie“ mynd á leik á Anfield. Finninn Sami Tuomas Hyypiä mættur
líka.
Í leik Liverpool og Everton í FFA Cup í janúar.