Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2020, Page 30

Skessuhorn - 30.08.2020, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 202030 Þegar þú hefur tíma fyrir sjálfan þig, hvað gerir þú? Spurning vikunnar (Spurt í gegnum síma) Anna Kristjánsdóttir „Þá sest ég niður með handa- vinnuna mína eða fer út að ganga.“ Steinunn Inga Óttarsdóttir „Þá fer ég út að ganga, les góða bók eða tek nokkrar léttar jóga- æfingar.“ Pétur Ingason „Fer í golf.“ Sólveig Magnúsdóttir „Ég fer að hlaupa, hjóla, á gönguskíði eða prjóna.“ Jens Heiðar Ragnarsson „Ætli ég slaki ekki bara á með fjölskyldunni.“ Snæfell mátti sætta sig við tap gegn nýliðum Fjölnis, 91-60, þegar lið- in mættust í fyrstu umferð Dom- ino’s deildar kvenna í körfuknatt- leik. Viðureignin fór fram í Grafar- vogi síðastliðið miðvikudagskvöld. Snæfellskonur voru fáliðaðar, en vegna hópsmits Covid-19 í Stykk- ishólmi gat liðið aðeins teflt fram sjö leikmönnum. Aðrir leikmenn liðsins eru í sóttkví. Munar heldur betur um minna eins og kom í ljós í leiknum. Jafnt var á með liðunum en lít- ið skorað fyrstu sex mínúturnar, en að þeim loknum var staðan jöfn, 7-7. Þá tóku Snæfellskonur við sér, skoruðu 14 stig gegn þremur næstu mínúturnar og leiddu 10-21 eft- ir fyrsta leikhluta. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina lengst af í öðr- um leikhluta. Mest leiddu þær með 16 stigum um hann miðjan, en þeg- ar dró nær hálfleik sóttu heimakon- ur í sig veðrið og tókst að minnka forskot Snæfells í tvö stig áður en flautað var til hálfleiks, 39-41. Fjölniskonur réðu lögum og lof- um í síðari hálfleik. Þær skoruðu 30 stig gegn tíu í þriðja leikhluta og höfðu því náð 18 stiga forskoti fyr- ir lokafjórðunginn. Snæfellskonur náðu ekki að svara í lokafjórðungn- um og Fjölnir skilaði sigrinum því örugglega í hús. Iva Gergieva var atkvæðamest í liði Snæfells með 18 stig, tíu frá- köst, sjö stoðsendingar og fjóra stolna bolta. Anna Soffía Lárus- dóttir skoraði 14 stig og tók 14 frá- köst, tinna Guðrún Alexanders- dóttir var með 13 stig og fimm frá- köst, Vaka Þorsteinsdóttir skoraði sjö stig og Ingigerður Sól Hjartar- dóttir skoraði þrjú stig. Fiona O’Dwyer skoraði 20 stig fyrir Fjölni, tók 16 fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Emme Sól- dís Svan Hjörleifsdóttir skoraði 18 stig, Lina pikciuté skoraði 17 stig og tók tólf fráköst og Margrét Ósk Einarsdóttir var með ellefu stig. Snæfellskonur sitja í sjöunda sæti deildarinnar, án stiga eins og lið- in þrjú í kringum þær sem einnig töpuðu sínum fyrsta leik í mótinu. Næst leika Snæfellskonur gegn Haukum í kvöld, miðvikudaginn 30. september, í fyrsta heimaleik vetrarins. kgk/ Ljósm. úr safni/ sá. Fyrstu umferð meistarakeppni ung- menna í keilu er lokið. Náðu kepp- endur Keilufélags Akraness prýði- legum árangri og skiluðu sex verð- launum í hús. Í þessari fyrstu um- ferð sýndi Matthías Leó Sigurðs- son frábæra spilamennsku og náði 1109 í sex leikjum í erfiðari olíu- burði en í fyrra. Var hann næstefst- ur allra spilara, þar sem elsti flokk- urinn var U20. Í 4. flokki stúlkna sigraði Birta Líf Gunnarsdóttir úr ÍR en Særós Erla Jóhönnudóttir úr ÍA hreppti silfrið. Friðmey Dóra Richter úr ÍA vann til bronsverðlauna. Sól- ey Líf Konráðsdóttir sigraði í 3. fl. stúlkna. Hún spilaði fyrir KFR en lék áður undir merkjum ÍA. Vikt- oría Hrund Þórisdóttir úr ÍA varð önnur og Nína Rut Magnúsdóttir þriðja. Þá hafnaði Marinó Sturlu- son í þriðja sæti í 3. fl. pilta. Einnig voru veitt verðlaun fyrir síðasta vetur þar sem einungis náð- ist að spila fjórar umferðir af fimm, vegna Covid-19 faraldursins. Fjölga æfingum Í vetur mun Keilufélag Akraness bjóða upp á þrjár æfingar í viku í stað tveggja áður. „Á það eflaust eftir að skila sér þegar fram líða stundir,“ segir í tilkynningu frá keilufélaginu. Þjálfarar félagsins eru þrír; Guðmundur Sigurðsson þjálf- ar afrekshópinn, Sigurður Þ. Guð- mundsson er með unglingahóp- inn og Jónína Björg Magnúsdótt- ir annast þjálfun yngstu iðkend- anna. Starfsemi félagsins er komin á fullt, deildarleikir og æfingar og svo er keilustarf FEBAN að fara af stað þessa dagana, en eldri borgar- ar hafa verið með fasta æfingatíma frá opnun keilusalarins á Akranesi á sínum tíma. Um miðjan október er svo von á nýjum vélum frá Svíþjóð í Keilu- sal Akraness. „Er mikil tilhlökkun í herbúðum keilara fyrir bættum að- stæðum,“ segir í tilkynningu frá fé- laginu. kgk/ Ljósm. Keilufélag Akraness. Skallagrímur vann þriggja stiga sigur á Haukum í spennandi leik, 51-54, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Domino’s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Hafnar- firði á miðvikudagskvöld. Mikill haustbragur var á liðun- um í upphafi leiks og lítið skorað framan af fyrsta leikhluta. Þegar sjö mínútur voru liðnar var staðan 6-6. En þá náðu Skallagrímskonur yfir- höndinni og leiddu 7-10 eftir upp- hafsfjórðunginn. Þær komust síðan í 7-15 snemma í öðrum leikhluta en skoruðu ekki næstu fjórar mín- úturnar og á meðan tókst Haukum að jafna. Liðin skiptust á að skora síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik og Haukar leiddu með einu stigi í hléinu, 23-22. Þriðji leikhluti var mjög jafn og spennandi þó körfuboltinn væri kannski ekki áferðarfagur. Heima- konur voru tveimur stigum yfir fyr- ir lokafjórðunginn, 38-36. Skalla- grímskonur náðu undirtökunum að nýju þegar fimm mínútur lifðu leiks og leiddu með örfáum stigum. Haukar gerðu atlögu undir lok- in, þegar liðið minnkaði muninn í eitt stig. En Borgnesingar létu for- ystuna ekki af hendi og sigruðu að lokum með þremur stigum, 51-54. Sanja Orozovic var atkvæðamest í liði Skallagríms með 22 stig, sex fráköst og fimm stoðsendingar. Ni- kita telesford skoraði 15 stig og tók 13 fráköst. Keira Robinson fann sig ekki í leiknum, tók aðeins sjö skot utan af velli sem ekkert fór ofan í. Hún setti hins vegar niður átta víta- skot og tók 13 fráköst. Maja Mic- halska skoraði fimm stig og tók sex fráköst og Sigrún Sjöfn Ámunda- dóttir skoraði fimm stig sömuleið- is. Í liði Hauka var Alyesha Lovett stigahæst með 21 stig og 15 frá- köst að auki. Bríet Sif Hinriksdótt- ir skoraði 14 stig en aðrar komust ekki í tveggja stafa tölu á stigatöfl- unni. Skallagrímur situr í fjórða sæti með tvö stig, eins og liðin þrjú í sæt- unum fyrir ofan sem einnig unnu sína leiki í fyrstu umferð mótsins. Leik Skallagríms og Keflavíkur, sem átti að fara fram í kvöld, mið- vikudaginn 30. september, hefur verið frestað vegna kórónuveirunn- ar. Ástæðan er sú að leikmannahóp- ur Keflvíkinga er kominn í sóttkví. Skallagrímskonur eiga að mæta KR á laugardaginn, 3. september næst- komandi, en KR-liðið er sömuleið- is komið í sóttkví. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort sá leikur fer fram. kgk Fáliðaðar Snæfellskonur töpuðu fyrsta leiknum Spennusigur í fyrsta leik Sanja Orozovic dró vagninn fyrir Skallagrím í fyrsta leik vetrarins. Ljósm. Skallagrímur/ Ómar Örn. Keilan komin af stað Verðlaunahafar í 3. fl. stúlkna, þær Sóley Líf Konráðsdóttir, Viktoría Hrund Þórisdóttir og Nína Rut Magnúsdóttir. Brita Líf Gunnarsdóttir, Særós Erla Jóhönnudóttir og Friðmey Dóra Richter röðuð sér í þrjú efstu sætin í 3. fl. stúlkna. Matthías Leó Sigurðsson úr ÍA náði frábærum árangri og fékk samtals 1109 í sex leikjum og hafnaði næst- efstur allra spilara. Marinó Sturluson úr ÍA hafnaði í þriðja sæti í 3. fl. pilta.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.