Skessuhorn - 30.08.2020, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 30. SEptEMBER 2020 31
ÍA og Víkingur R. skildu jöfn, 2-2,
þegar liðin mættust í pepsi Max deild
karla í knattpsyrnu á sunnudagskvöld.
Leikið var á Akranesi. Skagamenn
höfðu verið á fínu skriði í deildinni
fyrir viðureignina og unnið tvo leiki
í röð, síðast 1-3 útisigur á Fjölni á
fimmtudaginn. Víkingur R. hafði hins
vegar ekki unnið leik síðan þeir lögðu
Skagamenn 6-2 á Víkingsvelli í júlí.
Gestirnir úr Reykjavík voru betri
í fyrri hálfleik og komu sér ítrekað í
álitlegar stöður, en náðu samt aldrei
að skapa sér nein dauðafæri. Skaga-
menn lágu hins vegar til baka og
beittu skyndisóknum. Besta færi fyrri
hálfleiksins áttu Skagamenn, þegar
Ingvar Jónsson, markvörður gestanna,
kýldi hornspyrnu beint á Stefán teit
Þórðarson en hann skallaði boltann
rétt yfir markið.
Það var síðan fjör í upphafi síðari
hálfleiks. Á 51. mínútu sendu Skaga-
menn boltann inn fyrir vörn gestanna
á tryggva Hrafn Haraldsson sem
slapp einn í gegn. Víkingar reyndu að
hlaupa hann uppi en höfðu ekki erindi
sem erfiði. tryggvi þakkaði fyrir sig
með því að lyfta boltanum yfir Ingvar
í markinu og í netið.
En Skagamenn voru ekki lengi í
forystu, því aðeins tveimur mínútum
seinna skoraði Ágúst Eðlvald Hlyns-
son glæsilegt mark þegar hann klippti
boltann í netið eftir að Erlingur Agn-
arsson vippaði honum út í teiginn. Á
56. mínútu komust gestirnir síðan yfir.
Sölvi Geir Ottesen vann skallabolta
utarlega í teignum eftir hornspyrnu.
Hann skallaði boltann að markinu þar
sem hann rataði á Halldór Jón Sigurð
Þórðarson sem tók laglegan snúning
í teignum og skoraði með góðu skoti.
Gestirnir þar með komnir yfir og
litlu munaði að Halldór Jón Sigurð-
ur kæmi þeim í 1-3 tíu mínútum síðar
þegar hann átti skot í stöngina.
En eftir að boltinn small í stöng-
inni brunuðu Skagamenn upp völlinn.
tryggvi óð inn í vítateiginn þar sem
hann var felldur og vítaspyrna dæmd.
tryggvi fór sjálfur á punktinn og skor-
aði af miklu öryggi. Staðan því orðin
2-2 eftir 65. mínútna leik og öll fjög-
ur mörkin litu dagsins ljós á korters-
kafla. Fleiri urðu mörkin ekki, þó bæði
lið hafi fengið ágæt marktækifæri það
sem eftir lifði leiks. Liðin skildu því
jöfn, 2-2.
Skagamenn hafa 21 stig í 7. sæti
deildarinnar eftir 17 leiki. Þeir hafa
tveggja stiga forskot á KA sem á leik til
góða en eru þremur stigum á eftir KR,
sem á tvo leiki til góða. Næsti leikur
Skagamanna er gegn FH, sunnudag-
inn 4. október. Sá leikur fer fram á
Akranesvelli.
kgk
Kári vann góðan sigur á Fjarða-
byggð, 5-2, þegar liðin mættust í 2.
deild karla í knattspyrnu á sunnu-
dagskvöld. Leikið var í Akranes-
höllinni. Staðan var jöfn í hálfleik,
2-2, en eftir að gestirnir misstu
mann af velli á 58. mínútu tóku
Káramenn öll völd í leiknum og
sigruðu að lokum með fimm mörk-
um gegn tveimur.
Leikurinn byrjaði fjörlega,
því Ruben Lozano Ibancos kom
Fjarðabyggð yfir strax á 7. mínútu
leiksins, en Andri Júlíusson jafnaði
fyrir Kára á 13. mínútu. Á 23. mín-
útu varð Mikael Natan Róbertsson,
leikmaður Fjarðabyggðar, fyrir því
óláni að skora sjálfsmark og heima-
menn komnir í forystu. En Jose
Antonio Fernandez jafnaði fyrir
gestina á 37. mínútu og staðan var
jöfn í hálfleik.
Skömmu áður en klukkustund
hafði verið leikin fékk Joel Ant-
onio Cunningham að líta sitt ann-
að gula spjald og Fjarðabyggð því
manni færri það sem eftir lifði leiks.
Reyndist það vera ákveðinn vendi-
punktur í leiknum, því Káramenn
voru miklu beittari eftir það. Andri
skoraði annað mark sitt á 69. mín-
útu og kom Skagaliðinu yfir að
nýju, 3-2. Hann fullkomnaði síð-
an þrennu sína á 80. mínútu áður
en Bjartur Hólm Hafþórsson skor-
aði annað sjálfsmark Fjarðabyggð-
ar í leiknum skömmu fyrir leikslok.
Lokatölur því 5-2, Kára í vil
Kári hefur 25 stig og situr í 6.
sæti deildarinnar, með jafn mörg
stig og KF í sætinu fyrir neðan en
átta stigum á eftir Haukum. Kára-
menn eiga þó leik til góða á bæði
liðin. Næsti leikur Kára er heima-
leikur gegn Njarðvík, laugardaginn
3. október.
kgk/ Ljósm. Knattspyrnufélag
Kára.
Víkingur Ó. vann mikilvægan sigur
á Leikni F. þegar liðin mættust í 1.
deild karla í knattspyrnu á laugar-
daginn. Leikið var í Fjarðabyggðar-
höllinni og eftir frekar rólegan fyrri
hálfleik dró heldur betur til tíð-
inda í þeim seinni. Þegar lokaflaut-
an gall höfðu Ólafsvíkingar skorað
fjögur mörk gegn tveimur mörkum
heimamanna. Leikmenn hvors liðs
um sig voru reknir af velli, auk þess
sem þjálfari Leiknis fékk rautt und-
ir lok leiksins.
Ólafsvíkingar komu boltan-
um einu sinni í netið í fyrri hálf-
leiknum en Gonzalo Zamorano
var dæmdur rangstæður og markið
stóð því ekki. Áhorfendur fengu þó
aldeilis að sjá mörk. Kristofer Ja-
cobson Reyes kom Ólafsvíkingum
yfir í upphafi síðari hálfleiks þegar
hann skoraði með skalla. Gonzalo
Zamorano kom Víkingi Ó. í 2-0 á
54. mínútu með skoti í slá og inn og
Harley Willard skoraði þriðja mark
Ólafsvíkinga á 65. mínútu.
tveimur mínútum síðar var
Emmanuel Eli Keke rekinn af velli
með sitt annað gula spjald og liðs-
menn Víkings Ó. þar með orðn-
ir manni færri. Korteri síðar var
þó aftur orðið jafnt í liðunum, því
povilas Krasnovskis, leikmanni
Leiknis, var vísað af velli.
Lokamínúturnar áttu eftir að
vera tíðindamiklar. Á 87. mín-
útu fengu heimamenn vítaspyrnu.
Arkadiusz Jan Grzelak fór á punkt-
inn og minnkaði muninn í 1-3. Á
lokamínútu leiksins var Brynjar
Skúlason, þjálfari Leiknis, rekinn af
velli og enn áttu tvö mörk til við-
bótar eftir að líta dagsins ljós. Arka-
diusz minnkaði muninn í 2-3 þeg-
ar komið var fram yfir venjulegan
leiktíma en Gonzalo innsiglaði 2-4
sigur Ólafsvíkinga á þriðju mínútu
uppbótartímans.
Víkingur Ó. situr í 9. sæti deild-
arinnar með 19 stig eftir 18 leiki.
Sigurinn var Ólafsvíkingum mikil-
vægur í botnbaráttu deildarinnar.
Þegar fjórir leikir eru eftir hafa þeir
sjö stiga forskot á Leikni F. og Þrótt
R. í sætunum fyrir neðan, en síðar-
nefnda liðið situr í efra fallsætinu.
Ólafsvíkingar mættu Grindvíking-
um í gær, þriðjudaginn 29. septem-
ber. Þeim leik var hins vegar ekki
lokið þegar Skessuhorn fór í prent-
un.
kgk
Skagakonur tryggðu áframhaldandi
veru sína í 1. deild kvenna í knatt-
spyrnu þegar þær lögðu Fjölni á
heimavelli á mánudagskvöld, 2-0.
Fyrir leikinn sat ÍA í 8. sæti deildar-
innar með fimm stiga forskot á Fjölni
í efra fallsætinu. Því var um sannkall-
aðan botnslag að ræða. Eftir sigurinn
eru Skagakonur átta stigum fyrir ofan
fallið þegar tvær umferðir eru eftir og
sæti þeirra í deildinni þar með tryggt.
Skagakonur voru öflugri í upphafi
leiks. Þær voru mun beittari fram á
við, áttu nokkrar álitlegar sóknir og
fengu sæmileg marktækifæri, en eng-
in dauðafæri. Besta færi leiksins fram-
an af áttu hins vegar Fjölniskonur á
12. mínútu. Þá náði Aníta Ólafsdótt-
ir, markvörður ÍA, að kasta sér fyrir
hættulega fyrirgjöf á undan sóknar-
manni gestanna og slá boltann út í
teiginn. Ásta Sigrún Friðriksdóttir
kom á ferðinni og átti skot sem Aníta
varði. Ásta fékk frákastið en var ekki
í jafnvægi og brenndi af fyrir opnu
marki nálægt vinstra markteigshorn-
inu.
Fyrsta mark leiksins leit dagsins
ljós á 30. mínútu og þar var á ferðinni
Unnur Ýr Haraldsdóttir. Sandra Ósk
Alfreðsdóttir lyfti boltanum inn fyrir
vörnina frá vinstri á Unni Ýr sem sem
lyfti boltanum laglega yfir Dagbjörtu
Ínu Guðjónsdóttur í marki Fjölnis og
í netið. Virkilega snyrtileg afgreiðsla
hjá Unni og Skagakonur komnar yfir.
Þannig stóðu leikar þar til seint í
leiknum. Bæði lið fengu ágæt tæki-
færi til að koma boltanum í netið en
rétt eins og í fyrri hálfleiknum voru
marktilraunir Skagakvenna hættu-
legri. Erla Karitas Jóhannesdótt-
ir slapp ein í gegn á 56. mínútu en
Dagbjört varði frá henni í horn. Upp
úr hornspyrnunni átti Erna Björt
Elíasdóttir síðan þrumuskot í þver-
slána.
Það var síðan Jaclyn poucel Árna-
son sem innsiglaði 2-0 sigur ÍA á
84. mínútu leiksins. Boltinn barst til
hennar eftir hornspyrnu. Hún var yf-
irveguð í teignum, lagði boltann fyrir
sig og skoraði með góðu skoti framhjá
Dagbjörtu í markinu. Þar með var
sæti ÍA í deildinni tryggt en Fjölnis-
konur eru á leiðinni niður.
Skagakonur eiga tvo leiki eftir í Ís-
landsmótinu þetta keppnistímabilið.
Sá fyrri þeirra er gegn tindastóli á
laugardaginn, 3. október næstkom-
andi. Sá leikur fer fram á Akranesi.
kgk
Snæfell mun ekki keppa í 1. deild
karla í körfuknattleik á komandi
vetri, eins og áformað var. Ákveðið
hefur verið að draga liðið úr keppni
og leggja meistaraflokk karla niður,
tímabundið. „Ákvörðunin var erfið,
eins og gefur að skilja, en við höf-
um átt í miklum erfiðleikum með að
manna liðið og erfiðleikar í rekstri
hjálpa ekki. Körfuknattleiksdeild
Snæfells á því engra annarra kosta
völ en að draga liðið úr keppni,“
segir í tilkynningu sem Körfuknatt-
leiksdeild Snæfells sendi frá sér á
sunnudagskvöld. Allt kapp verður
lagt á að efla yngri flokka Snæfells
svo hægt verði að koma karlaliðinu
af stað að nýju sem allra fyrst, að því
er fram kemur í tilkynningunni.
Skessuhorn ræddi við Halldór
Steingrímsson, þjálfara Snæfells, á
fimmtudaginn. Þá reyndu aðstand-
endur liðsins eftir fremsta megni að
fullmanna leikmannahópinn. „Þetta
er mikið púsluspil þessa dagana,“
sagði Halldór en kvaðst ánægður
með þá leikmenn sem ætluðu að
taka slaginn með liðinu. „Það er fín
stemning þó það séu svona óljós-
ir punktar,“ sagði hann. Var hann
nokkuð bjartsýnn á að tækist að
fullmanna liðið þó stutt væri í mót,
vonaðist til þess að málin myndu
skýrast á næstu dögum og var stað-
ráðinn í að Snæfellsliðið myndi eiga
góðan vetur saman.
En nú er ljóst að svo verður
ekki. Það var á sunnudaginn, sem
fyrr segir, að tilkynnt var að karla-
liðið hefði verið dregið úr keppni
og ákveðið að leggja meistaraflokk
karla niður, tímabundið. Snæfell-
ingar munu því ekki taka þátt í Ís-
landsmótinu í körfuknattleik karla
þennan veturinn, en allt kapp verð-
ur lagt á að koma liðinu af stað að
nýju sem fyrst.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Snæfell dregur karlaliðið úr keppni
Markaveisla í Akraneshöllinni
Skagakonur öruggar
Mikilvægur sigur
fyrir austan
Gonzalo Zamorano var á skotskótnum þegar Víkingur Ó. lagði Leikni F.
Ljósm. úr safni/ af.
Jafnt á Akranesvelli
Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði
bæði mörk Skagamanna í jafnteflinu
gegn Víkingi R. Ljósm. gbh.