Skessuhorn - 21.10.2020, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 21. oKtóBER 2020 11
Háskólinn á Bifröst – Þjónustustjóri
upplýsingatækni
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
•Samskipti við rekstraraðila kennslukerfa og innri kerfa skólans um notkun og þróun þeirra.
•Þróun, samþætting og viðhald tæknilegs umhverfis kennslu, innra nets og upplýsingaveita.
•Dagleg umsýsla og umsjón kennslukerfa og innra nets skólans.
•Almenn ráðgjöf og stuðningur við kennara vegna tæknilegra mála tengdum kennslukerfum.
•Umsjón og ábyrgð á viðburðum sem sendir eru út í beinu streymi eða teknir upp.
•Þátttaka í gerð kennslumyndbanda og leiðbeininga um notkun kerfa fyrir kennara, starfsfólk
og nemendur.
•Tölfræðileg úrvinnsla upplýsinga úr kerfum og framsetning þeirra fyrir stjórnendur.
•Önnur tilfallandi störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf (BS) sem nýtist í starfi.
• Upplýsingatæknibakgrunnur er mikilvægur.
• Meistarapróf sem nýtist í starfi er kostur.
• Kennsluréttindi og/eða kennslureynsla er kostur.
• Starfsreynsla úr skólastarfi á háskólastigi er kostur.
• Frumkvæði, drifkraftur og þjónustulipurð.
• Góð skipulags- og samskiptahæfni.
• Greiningarfærni og tölufærni.
• Mjög góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Umsókn: Með umsókn skulu fylgja náms- og starfsferilsskrá,
afrit af útskriftarskírteinum og kynningarbréf þar sem kemur
fram m.a. stutt lýsing á hugmyndum umsækjanda um hlutverk
og áskoranir þjónustustjóra upplýsingatækni við Háskólann
á Bifröst.
Starfsstöð: Bifröst og eftir atvikum og þörfum á starfsstöð í
Reykjavík.
Háskólinn á Bifröst vinnur samkvæmt jafnréttisáætlun skólans
og hvetur alla óháð kyni til að sækja um.
Nánari upplýsingar: Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir
kennslustjóri (kennslustjori@bifrost.is).
Auglýst er laust starf þjónustustjóra upplýsingatækni við Háskólann á Bifröst. Viðkomandi
ber ábyrgð á þróun og rekstri kennslukerfa, á innra neti skólans og samþættingu kerfa sem
nýtt eru í kennslu. Starfið felur í sér margþætta þróun upplýsingatækni, þjónustu, samstarf og
samskipti við kennara, starfsfólk, stjórnendur og utanaðkomandi rekstraraðila kerfa. Háskólinn
á Bifröst er framsækinn háskóli sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á
háskólastigi hér á landi síðastliðin 20 ár.
Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2020
- í fararbroddi í fjarnámi
Um liðna helgi var skrifað und-
ir kaupsamning að Apóteki ólafs-
víkur, sem hjónin óli Sverrir Sig-
urjónsson lyfsali og Sigríður Þór-
arinsdóttir hafa átt og rekið und-
anfarin 34 ár. Kaupandi er ólafur
Adolfsson, eigandi Apóteks Vestur-
lands, og er í kaupsamningi gert ráð
fyrir að hann taki við rekstrinum
um næstu áramót. „Afmælisdagur-
inn minn hefur jafnan verið mér
til gæfu og reynst mér góður til að
taka stórar ákvarðanir,“ sagði ólaf-
ur Adolfsson síðastliðinn sunnudag
þegar skrifað var undir samninginn.
„Ég hlakka til að takast á við þetta
verkefni og leggja mitt af mörkum
inn í samfélagið hér í Snæfellsbæ,“
segir hann, en sjálfur er hann upp-
alinn ólsari.
ólafur hefur undanfarin þrett-
án ár rekið Apótek Vesturlands á
Akranesi. Auk þess á hann ásamt
meðeigendum sínum tvö apótek
á höfuðborgarsvæðinu; Reykja-
víkur Apótek við Seljaveg 2 og
nýlega opnaði hann nýtt apótek
undir merkjum Reykjavíkur Apó-
teks í Skeifunni 11b. Apótek í
hans eigu eru því orðin fjögur. En
hyggst ólafur færa enn frekar út
kvíarnar hér á Vesturlandi? „Ég tel
að á Vesturlandi sé að finna frek-
ari tækifæri fyrir Apótek Vestur-
lands og á mér draum í þeim efn-
um. tíminn mun síðan leiða í ljós
hvort að sá draumur verður að
veruleika,“ segir ólafur í samtali
við Skessuhorn.
mm
Óli Sverrir Sigurjónsson, Sigríður Þórarinsdóttir, Rebekka Guðjónsdóttir, Harpa
Björnsdóttir og Ólafur Adolfsson daginn sem kaupin voru undirrituð. Ljósm. af.
Ólafur kaupir
Apótek Ólafsvíkur