Ægir

Volume

Ægir - 2020, Page 6

Ægir - 2020, Page 6
Mannkynið hefur undanfarna mánuði upplifað ástand um gjörv- alla heimsbyggðina sem engan óraði fyrir. Engan veginn er hægt að segja fyrir um hver þróun verður í heimsfaraldri Co- vid-19 en því má slá föstu að margt mun breytast vegna veiru- faraldursins. Sumir ganga svo langt að segja að heimurinn verði ekki samur og þá ber ekki endilega að túlka það í neikvæðri merkingu. Heimsfaraldurinn og afleiðingar hans eru áminning um að lífsgæði nútímafólksins geta gjörbreyst á skömmum tíma. Heimsfaraldrar eru samt ekki eitthvað sem enginn sá fyrir. Þeir hafa í sögunni gengið yfir nokkuð reglulega og munu gera í framtíðinni. Möguleikarnir til að takast á við ástand sem þetta eru þó allt aðrir en hefði verið fyrir örfáum áratugum, þökk sé framþróun í vísindum, tækni, upplýsingatækni og þannig mætti áfram telja. Gríðarlegur hraði í útbreiðslu smitsjúkdómsins und- irstrikar að heimurinn er mun minni en hann áður var og litla Ísland reyndist ekkert afskekkt eyríki, verndað frá umheiminum þegar útbreiðslan fór á fulla ferð. Íslendingar eru víða, fara víða og taka á móti ferðafólk daglega frá flestum heimshornum. Allir verða varir við áhrif veirufaraldursins, öll heimili, öll fyrirtæki, allar atvinnugreinar. Íslenskur sjávarútvegur varð þess var strax þegar byrjað var að loka veitingahúsum í helstu viðskiptalöndum okkar. Jafnvel þó að einhverju leyti verði aukn- ing í sölu á fiski í verslunum er samdráttur í afurðasölu óumflýj- anlegur. Að minnsta kosti á meðan mesti hvirfilbylur veirusýk- ingarinnar gengur yfir. Horft til stóru myndarinnar í áhrifum veirusýkingarinnar á sjávarútveginn og fiskvinnsluna sést að enn og aftur kemur fjölbreytni greinarinnar sér vel. Þó við höf- um fært framleiðsluna í vaxandi mæli yfir í ferskar afurðir er frysting ennþá traust undirstaða hennar, sem og söltun. Vissu- lega mun höggið hins vegar verða mikið fyrir þau fyrirtæki sem alfarið hafa framleitt fyrir veitingakeðjur sem nú þurfa að loka sínum matsölum svo vikum skiptir. Líkt og á vísindasviðinu nýtur sjávarútvegurinn aukinnar tæknivæðingar í fiskvinnslu sem fjallað um í þessari útgáfu Æg- is. Það hefur verið mikil áskorun fyrir vinnslurnar og sjávarút- vegsfyrirtækin að halda sinni starfsemi gangandi en á þessu sviði atvinnulífsins, sem öðrum í þjóðfélaginu, er starfsfólk í sjávarútvegi staðráðið í því að standa þetta öldurót af sér. Vissulega er þessi alda býsna stór miðað við þær sem greinin er vön að takast á við í sínum sveiflukennda umhverfi en hún mun enn á ný rísa undir því að vera burðarstoð þjóðfélagsins þegar mest á reynir. Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar Sjávarútegur á tímum Covid-19 Vökvakerfislausnir Vökvadælur, vökvamótorar og stjórnbúnaður Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100 www.danfoss.is Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan og skilvirkan búnað. Út gef andi: Ritform ehf. ISSN 0001-9038 Rit stjórn: Ritform ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri. Rit stjór i: Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.) GSM 899-9865. Net fang: johann@ritform.is Aug lýs ing ar: Inga Ágústsdóttir. inga@ritform.is Hönnun & umbrot: Ritform ehf. Suðurlandsbraut 30, Reykjavík. Sími 515-5215. Á skrift: Hálfsársáskrift að Ægi kostar 7100 kr. Áskriftar símar 515-5215 & 515-5205. Af Ægi koma út 10 tölublöð á ári. Eft ir prent un og ívitn un er heim il, sé heim ild ar get ið. Leiðari 6

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.