Ægir

Árgangur

Ægir - 2020, Blaðsíða 34

Ægir - 2020, Blaðsíða 34
34 Raymond Bjørkås útgerðarmaður frá Båtsfjord í Noregi fékk á dögun- um afhentan nýjan bát frá báta- smiðjunni Trefjum ehf. í Hafnarfirði og er hann af gerðinni Cleopatra 36B. Raymond verður sjálfur skip- stjóri bátnum en þrír verða í áhöfn en báturinn er þegar kominn til veiða í Noregi. Nýi báturinn heitir Frøya. Hann er 11 metrar á lengd og mælist 18 brúttó- tonn. Aðalvél er af gerðinni Doosan 4V158TIM, 600 hestöfl tengd ZF360IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækj- um af gerðinni JRC og Olex. Hann er einnig útbúinn með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Stór borðsalur og fullbúin eldunar- aðstaða eru í brúnni. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar, sem og salerni með sturtu. Báturinn er útbúinn til línuveiða en línubúnaðurinn er frá Mustad í Noregi. Lífbátur og annar öryggisbún- aður bátsins kemur frá Viking. Rými er fyrir 16 660 lítra kör í lest. Trefjar afhenda bát til Noregs ■ Frøya í Hafnarfjarðarhöfn áður en haldið var til Noregs. FRÉTTIR sparnaðurinn er gríðarlegur, fyrir utan öryggið fyrir allan vinnsluferilinn með þetta dýrmæta hráefni. Og tíminn sem ella fer í handsótthreinsun nýtist þá til veiða,“ segir Ragnar. Árangurinn spyrst út D-Tech ehf. er 9 ára gamalt fyrirtæki með aðstöðu í Sjávarklasanum á Granda- garði. D-Tech rekur svo dótturfyrirtæki í Póllandi og þaðan er markaðssetning fyrirtækisins inn á Austur Evrópu. „Við höfum þegar sett upp kerfi hjá fjórum af stærstu kjötvinnslunum í Póllandi og er- um að fikra okkur til nálægra landa. Síð- an eigum við góða viðskiptavini í Skot- landi, Færeyjum, Grænlandi, Lettlandi og Kanada. Næsta verkefni héðan er upp- setning á kerfi í rækjufrystitogara á Ný- fundnalandi.“ Ragnar segir gott að geta boðið lausnir sem skila góðum árangri. Hann sjái fram á vöxt í sölu á næstu árum. „Sem dæmi um aukninguna má nefna að bæði hér á landi og í Póllandi hefur sala þessa árs þegar farið 50% fram úr heildarsölu síðasta árs, sem ætti að gefa til kynna að við séum að horfa fram á að minnsta kosti tvöföldun á veltu. Hafa ber þó í huga að Covid-19 veirufaraldur- inn gæti eitthvað hægt á þessu, farald- urinn gæti þó hugsanlega virkað þveröf- ugt og aukið eftirspurnina verulega. Hér heima hafa kerfin okkar verið sett upp eitt af öðru en þau er t.d. að finna í öllum nýju skipum Samherja og tengdra félaga en fyrir voru kerfi í upp- sjávarvinnslu SVN og Fiskeldi Samherja í Sandgerði. Samtals eru þetta 17 kerfi. Þá er Brim með kerfi frá okkur í uppsjávar- vinnslunni á Vopnafirði, hrognavinnslu á Skaganum og í frystiskipum félagsins. Fleiri fyrirtæki mætti nefna,“ segir Ragnar og bendir á að almennt séð er talið að um 30% af matvælum í heiminum sé hent vegna skemmda eða mengunar í framleiðsluferlinu, flutningi eða geymslu. „Með betri umgengni við hráefni og markvissari sótthreinsun eykst geymslu- þol matvælanna til muna. Því er okkar framlag til aukins matvælaöryggis afar mikilvægt og við sjáum vel að þar sem okkar kerfi hafa verið innleidd batna gæðin og líftími vörunnar eykst. Þar viljum við vera; að taka þátt í að minnka matarsóunina og halda helst virðiskeðj- unni óslitinni.“ ■ Sótthreinsiþokan á vinnsluþilfari frystitogara. Á örfáum mínútum er svæðið allt sótthreinsað.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.